Frjáls verslun - 01.09.2009, Side 136
136 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9
N æ R M Y N d A F K R I S T Í N u I N G ó L F S d ó T T u R
í átta háskólum á Norðurlöndunum sem
eru í hópi 100 bestu, og með fjárhagslegum
stuðningi stjórnvalda töldum við raunhæft að
geta komist í þeirra hóp. Stjórnvöld studdu
stefnu Háskóla Íslands og gerðu við okkur
afkastatengdan samning til að geta framfylgt
stefnunni. Eftir efnahagshrunið hefur ekki
verið hægt að standa við samninginn af hálfu
ríkisvaldsins og er það okkur mikið áfall.
Við höfum náð þeim áfangamarkmiðum
sem sett voru í samningnum og næsta skref
í vinnunni átti að grundvallast á viðbót-
arfjárframlögum. Við munum engu að síður
halda fast við stefnumið okkar og skoða með
hvaða hætti við getum unnið okkur áfram
við þessar erfiðu kringumstæður.
Nemendum við Háskólann hefur fjölgað
mikið í kjölfar kreppunnar samhliða miklum
fjárhagslegum niðurskurði á árinu 2009, auk
þess sem við horfum fram á mikinn nið-
urskurð á næsta ári. Samkvæmt lögum ber
Háskóla Íslands að taka inn alla stúdenta sem
hafa til þess réttindi nema í þeim greinum
þar sem eru fjöldatakmarkanir. Sem stendur
erum við að skoða hvort þetta sé skynsamleg
stefna til framtíðar eða hvort við verðum að
taka upp einhvers konar aðgangstakmark-
anir. Það er alveg ljóst að ekki gengur til
lengdar að fjölga nemendum á sama tíma og
fjármagn til skólans er skorið niður. Gæði
námsins eru það sem skipta mestu í dag,
bæði vegna einstaklinganna sem það stunda
og þeirra væntinga sem samfélagið gerir og á
að gera til náms við Háskóla Íslands.
Hluti af stefnu háskólans er að auka sam-
starf við erlenda háskóla og gefa stúdentum
tækifæri á að taka hluta af sínu námi erlendis
án þess að borga skólagjöld. Þetta hefur tek-
ist. Við höfum gert slíka samninga við marga
af bestu háskólum í heimi og þannig höfum
við í raun stækkað íslenska menntakerfið með
mjög hagkvæmum hætti,“ segir Kristín.
Hefur áhuga á ræktun
Kristín segir að auk starfsins hafi hún mik-
inn áhuga á skógrækt og ræktun almennt.
„Ég er alveg sannfærð um að Íslendingar geti
ræktað mun meira úti við en þeir hafa gert
hingað til. Fjölskyldan á sumarhús og land í
Borgarfirði þar sem við erum að rækta skóg
og mig langar að gera tilraunir með ræktun
matjurta og annarra nytjajurta þegar ég hef
meiri tíma. Bóndinn reisti í sumar handa
mér gróðurhús við heimili okkar á Seltjarn-
arnesi og þar er ég farin að rækta rósir mér
til ómældrar ánægju. Ég er líka að byrja í
hestamennsku ásamt yngri dótturinni sem
eignaðist hest fyrir skömmu.
Ég hef áhuga á fallegum söng og hlusta
auk þess á fjölbreytta tónlist, klassík, djass
og popp, það er helst raftónlist sem ég hef
síst gaman af. Það hafa líka fylgt starfinu
áhugaverð ferðalög þótt dregið hafi úr þeim
undanfarið. Núna í október fer ég til Jap-
ans í boði þarlendra stjórnvalda að skoða
japanska háskóla og fyrirtæki auk þess sem
ég fer á fund rektora evrópskra háskóla í
Þýskalandi. Ég hef gaman af því að lesa og
skrifa og hef gert talsvert af því um ævina og
langar að gera meira af því í framtíðinni,“
segir Kristín.
Hefur ekki tekið ákvörðun
Rektor Háskóla Íslands er ráðinn til fimm
ára í senn og má sitja tvö kjörtímabil. „Ég
er ekki búin að gefa upp hvort ég gefi kost
á mér til endurkjörs. Ég hef hins vegar
brennandi áhuga á að leiða háskólann til
áframhaldandi sóknar. Ég er sannfærð um
að við eigum einungis að miða við það besta
sem í boði er þegar markmið eru sett. Með-
almennska í menntamálum dæmir Ísland úr
leik. Ég er að meta það núna hvort og með
hvaða hætti hægt er að halda vopnum og
halda sókninni áfram við þessar erfiðu kring-
umstæður í samfélaginu.
Rektorsstarfið tekur hugann allan. Þegar
því lýkur er margt sem mig langar að gera
auk þess að rækta og skrifa. Ég hef lært gríð-
arlega mikið í starfi rektors, bæði hvað varðar
stjórnun og samskipti við fólk, og ég gæti vel
hugsað mér að nýta þá reynslu á öðrum vett-
vangi í framtíðinni,“ segir Kristín Ingólfs-
dóttir rektor Háskóla Íslands að lokum.
Kristín lauk doktorsnámi frá
King´s College, university of
London, með lyfjaefnafræði
náttúruefna sem sérfag.
Kristín situr í stjórn
eftirfarandi ráða og nefnda:
Formaður háskólaráðs Háskóla •
Íslands.
Stjórnarmaður í Samtökum nor-•
rænna háskóla (NUS).
Nefndarmaður í Samtökum evr-•
ópskra háskóla (EUA).
Formaður stjórnar Hollvinasamtaka •
Vatnajökulsþjóðgarðs.
Situr í ráðgjafaráði vegna 20/20 •
sóknaráætlunar ríkisstjórnarinnar.
Situr í dómnefnd vegna •
Hvatningarverðlauna
Öryrkjabandalagsins.
Kristín hefur hlotið
eftirfarandi viðurkenningar:
Íslensku fálkaorðuna vegna fram-•
lags til menntunar og vísinda
2007.
Heiðursverðlaun Mykolas Romeris •
háskólans í Vilnius í Litháen
vegna framlags til menntunar
2006.
Ritstörf:
Sem prófessor við lyfjafræðideild
Háskóla Íslands skrifaði Kristín fjöl-
margar vísindagreinar um niðurstöður
rannsókna sinna og samstarfsmanna.
Þá hefur Kristín skrifað greinar fyrir
almenning um lyfjatengd efni. Sem
rektor hefur Kristín skrifað greinar og
flutt erindi um málefni tengd Háskóla
Íslands og stjórnun háskóla almennt
á Íslandi, í Bandaríkjunum, Bretlandi,
Indlandi og á næstunni í Japan.