Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2009, Page 142

Frjáls verslun - 01.09.2009, Page 142
142 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 0 9 kvikmyndir Nine er byggt á söngleik sem gerður er eftir leikriti sem samið var upp úr kvikmynd Federico Fellinis, 8½, þar sem meistarinn gerir að hluta til upp líf sitt Kvikmynda- leikstjóri á hálum ís TExTI: hilmar karlsson Söngleikurinn Nine, sem frumsýndur var á Broadway 1982, naut gíf-urlegra vinsælda og var sýndur rúmlega sjö hundruð sinnum. Nine fékk fimm Tony-verðlaun sem eru þau eftirsóttustu í bandarísku leikhúsi, þar á meðal sem besti söngleikurinn. Höfundar hans eru Maury Yeston og Arthur Copit og byggðu þeir söngleikinn á ítölsku leikriti eftir Mario Fratti en hann sótti innblástur í kvikmynd Federico Fellinis, 8½. Í mörg ár hafði söngleikurinn verið á dagskrá í Hollywood en það var ekki fyrr en Rob Marshall, sem leikstýrði óskarsverðlaunamyndinni Chicago, fékk áhuga á að leikstýra Nine að hjólin fóru að snúast og hafist var handa við gerð myndarinnar fyrir um ári síðan. Þegar fréttist að Daniel Day-Lewis, sem hafði fengið óskarsverð- launin fyrir leik sinn í There Will Be Blood, myndi leika aðalhluterkið, leikstjórinn yrði Guido Contini og að Marion Cotillard, sem einnig fékk óskarsverðlaunin í fyrra hlutverk Edit Piaf í La Môme (La Vie en Rose), myndi leika eiginkonu hans fór að gæta mikillar eftirvænt- ingar. Ekki minnkaði hún þegar aðrar mótleikkonur Day-Lewis voru nefndar en þær eru Nicole Kidman, Penelope Cruz, Kate Hudson, Judi Dench, Sophia Loren og poppstjarnan Fergie. Stórstjörnur syngja og dansa Nine fjallar um heimsfrægan kvikmyndaleikstjóra (Daniel Day-Lewis) sem á í miklum vandræðum með kvikmynd sem hann er að fara að gera. Hann þjáist af hugmyndaskorti og ekki bætir það ástandið að eiginkona hans (Marion Cotiard) til tutt- ugu ára hótar að yfirgefa hann. Hann leiðir hugann að konunum í lífi sínu, hjákonunni (Penelope Cruz), kvikmyndastjörnu sem hann skapaði (Nicole Kidman), móður sinni (Sophia Loren), ungri bandarískri blaða- konu (Kate Hudson), gleðikonu sem hann kynntist í æsku (Fergie) og búningahönn- uði, þeirri konu sem hann léttir á samvisku sinni við (Judi Dench). Allar þessar konur róta upp í huga hans á einn og annan hátt og gera honum erfitt fyrir að koma sér að verki. Samskiptin við kon- urnar eiga sér stað í huga Guidos og í nútíð og oftar en ekki í dans- og söng. Miðað við fyrri afrek Rob Marshalls á þessu sviði má búast við frábærum atriðum, svo framarlega að allar stórstjörnurnar standi sig í stykkinu. Við vitum að Nicole Kidman getur sungið og dansað, það sýndi hún í Moulin Rouge, Penelope Cruz hefur látið hafa eftir sér að hún hafi verið himinlifandi þegar hún fékk hlutverk í Nine þar sem hún loks getur sýnt hvað í henni býr sem dansari. Fergie á sjálfsagt ekki í miklum erfiðleikum með danssporin, alvön á sviði. Þá er spurn- ingin hvort Kate Hudson búi yfir leyndum hæfileikum. Svo er það að sjálfsögðu Daniel Day-Lewis, gæði myndarinnar munu felast að mörgu leyti á frammistöðu hans. Hann hefur ekki, svo vitað sé, áður sýnt hæfileika sína í dansi og söng en á það ber að líta að fáir leikarar koma jafn vel undirbúnir í hlutverk eins og hann. Engin ástæða er því til að örvænta um frammistöðu hans og kæmi ekki á óvart þó að hann fengi óskarstilnefningu fyrir leik sinn í myndinni. Rob Marshall Nine er þriðja kvikmyndin sem Rob Marshall leikstýrir. Chicago (2003) gerði það gott. Auk þess sem hún fékk óskarinn sem besta kvikmynd þá fékk Marshall tilnefningu sem besti leikstjóri. Næsta kvikmynd hans, Memoirs of a Geisha (2005), var gerð eftir frægri skáldsögu Arthurs Golden. Lengi vel var í spilunum að Steven Spielberg myndi leikstýra henni. Memoirs of a Geisha fékk yfirleitt góða dóma hjá gagnrýnendum en aðsókn var langt frá því sem búist hafði verið við. Hún var tilnefnd til sex óskars- verðlauna og fékk þrenn, meðal annars fyrir bestu kvikmyndatökuna. Í Nine má segja að Marshall sé aftur kominn á heimaslóðir en bakgrunnur hans liggur í kóreógrafíu og leikstjórn á Broad- Daniel Day-Lewis og Kate Hudson í hlutverkum sínum í Nine.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.