Læknablaðið - 01.03.2014, Side 52
180 LÆKNAblaðið 2014/100
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Elín Edda Sigurðardóttir er læknanemi
á 4. ári sem hefur ferðast um heiminn
með Björk Guðmundsdóttur samhliða
læknanáminu og sungið á tónleikum
fyrir hundruðir þúsunda áhorfenda.
Upphaf þessa ævintýris má rekja til þess
að Björk átti samstarf við dömukórinn
Graduale Nobili úr Langholtskirkju árið
2010, en Elín hefur sungið með ýmsum
kórum í Langholtskirkju frá unga aldri.
„Ég er eiginlega uppalin í Gradualekór
Langholtskirkju, sem Jón Stefánsson
organisti stjórnar. Þetta er stelpnakór
sem nær fram að 18 ára aldri og við tekur
möguleiki á að halda áfram kórastarfi
ýmist í dömukórnum Graduale Nobili eða
kór Langholtskirkju sem er blandaður. Ég
hafði reyndar tekið mér frí frá kórastarfi
þegar Björk hóf samstarf við Graduale No-
bili haustið 2010. Þá var ég á mínu fyrsta
ári í læknisfræðinni,“ segir Elín Edda.
„Það var svo í mars 2011 sem haft var
samband við mig því það vantaði eina
stelpu í kórinn til að syngja með Björk,
fyrst til að ljúka upptökum við plötuna
Biophilia og síðan að fara með henni
til Manchester í mánuð um sumarið og
syngja á sjö tónleikum á stórri alþjóðlegri
tónlistarhátíð. Þetta var náttúrlega tilboð
sem ekki var hægt að hafna enda truflaði
það ekki námið mitt að eyða sumarfríinu
í að syngja með Björk á tónleikum,“ segir
Elín Edda og eflaust fáir sem hafnað hefðu
slíku tilboði.
„Mér fannst þetta alveg ótrúlega spenn-
andi, enda er söngur aðaláhugamálið mitt
og hafði ég meðal annars verið að læra
söng við Tónlistarskóla FÍH. Að syngja
með Björk inná plötu og á tónleikum,
ásamt vinkonum mínum til margra ára,
var eiginlega of gott til að vera satt. Þess
má geta að við erum tvær í læknisfræðinni
á sama ári sem höfum verið í þessu verk-
efni. Hin heitir Bergljót Rafnar Karlsdóttir
og við höfum verið mikill stuðningur hvor
fyrir aðra.“
Heimur rokkstjarnanna engu líkur
Á Biophiliu-plötunni eru 10 lög en Elín
Edda segir þær hafa lært um 40 lög enda
lagalistinn á tónleikunum blanda af nýrri
og eldri tónlist Bjarkar.
„Það var mjög gaman að fá að vera með
í nánast öllum lögunum á hverjum tón-
leikum. Í byrjun var þetta heilmikið mál
fyrir okkur, því eins og margir kannast
við er tónlist Bjarkar heldur óhefðbundin
og útsetningar voru gjarnar erfiðar. Við
vorum í allt að 16 mismunandi röddum
og þurfti mikla þolinmæði til að byrja
með. Við höfðum fæstar reynslu af því að
syngja í míkrófón eða að notast við moni-
tora og þurftum því að hafa stífar æfingar
bæði fyrir upptökur og fyrsta sumarið í
Manchester. Það var svolítið strembið, en
hverrar mínútu virði þegar upp er staðið.
Ekki leið á löngu þar til Björk bað okkur
um að dansa og jafnvel slamma á tónleik-
unum. Við fengum bara þær leiðbeiningar
að gera það sem við vildum á sviðinu og
virtist hún vera ánægðari með okkur eftir
því sem við rokkuðum meira. Það voru
saumaðir handa okkur mjög flippaðir bún-
ingar og við hvattar til að taka stöðugan
þátt í „sjóinu“. Við erum alls engir dans-
arar, en gerðum okkar besta og einhvern
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Tækifæri
sem býðst
bara einu
sinni
– segir læknanemi
sem söng um allan
heim með björk
„Þetta er áminning um að þrátt fyrir strangt nám er mikilvægt að sinna öðrum hugðarefnum líka,“ segir Elín Edda Sigurðardóttir læknanemi og söngkona.