Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2014, Blaðsíða 47

Læknablaðið - 01.07.2014, Blaðsíða 47
LÆKNAblaðið 2014/100 415 U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R Það er gaman að rölta inn í musteri ís­ lenskrar menningar, Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn eins og það heitir fullu nafni en Þjóbó í munni yngri kynslóða. Þar eru til húsa gagnagrunn­ arnir þrír sem eru risavaxin framlenging á þjónustu bókasafnsins og skref langt inn í nútímann: handrit.is, baekur.is og timarit. is. Það merkilega í þessu samhengi er að afnot og skoðun alls efnis þarna inni er ókeypis og mun vera einsdæmi í okkar litla heimi að þjóðarsafn hafi með þessum hætti opnað sitt safn uppá gátt fyrir lærða og leika jafnt. Læknafélag Íslands færði Læknablaðinu þá gjöf á afmælisári að fá blaðið skannað inn á timarit.is – og nú er það í höfn: 85 árgangar (1915­1999), 662 tölublöð, 35.000 blaðsíður, – 2354 greinar hafa verið skráðar úr timarit.is og er nú að finna í Gegni og á leitir.is þannig að bókasafns­ skráningarkerfið og timarit.is tengjast. Frá árinu 2008 hefur verið opið fyrir Google að tengjast textum á timarit.is og þar með liggur allt efni þar opið fyrir áhugasama lesendur. Það er Örn Hrafnkelsson sem leiðir mig í allan sannleik um þetta. Hann hefur starfað á bókasafninu síðan 1993, þá var hann gómaður glóðvolgur á tröppum gamla Landsbókasafnsins á Hverfisgöt­ unni og hefur ekki sloppið út síðan. Rósa Bjarnadóttir verkefnisstjóri hefur séð um innfærslu blaðsins á netið hjá safninu. Að sögn Arnar eru nærri öll tímarit fram til 1940 komin inn, þó ekki eitt hið veigamesta, Tímarit Máls og menningar. Alls eru 900 titlar (af um 1600) á vefnum (4,5 milljónir blaðsíðna), stór og smá tímarit, dagblöð, vikurit, héraðsblöð og margt fleira. Áhugi fyrir efni vefsins eykst stöðugt og nú nota um 2500 manns vefinn daglega. Í kjallara safnsins er skanni sem tekur myndir af öllu þessu efni og á myndastofunni starfa þrír og bókaverð­ irnir sem koma að skráningu efnisins eru þrír. Efnið springur út í allar áttir, það jafnast á við gróðursetningu í mörgu til­ liti, æ fleiri skoða efnið og tengja það út á aðrar síður einsog feisbúkk, – þegar nýtt efni einsog Læknablaðið kemur inn kallar umhverfið og notendur á að fyllt verði í önnur skörð svo sem að læknablað Guð­ mundar Hannessonar verði innskannað og þá fleiri rit af sama toga. Smám saman þéttist þessi skógur og þá þarf ný augu og nýtt vit til að útbúa leiðarvísa og ganga frá efni þannig að hægt sé að tengjast því frá öllum hliðum og aðkomuleiðum. Hin staf­ ræna endurgerð opnar allar hliðar nýs og gamals efnis, allt í einu er í einu vetfangi hægt að sjá inn á spjöld gamalla blaða og tímarita sem fyrir löngu eru gleymd og týnd. Þetta bókasafn er komið langt í burtu frá því sem kallað var kartótek í gamla daga, kerfi skráningarseðla fyrir hverja bók og blað. Þar svalaði einn seðill forvitninni, og talsverða elju og tíma þurfti til að láta seðlana tala einsog timarit.is getur gert núna. Það var Jón Ólafsson rit­ stjóri sem fyrstur fékk það starf árið 1901 að skrá seðla fyrir Landsbókasafnið og hefur ekki órað fyrir því að einn góðan veðurdag væru langflest tímarit og blöð þessa lands komin saman á einum stað og héti veraldarvefurinn! timarit.is býður æ fleiri lausnir og samsplæsingu við aðra gagnagrunna og verður liprari í notkun með degi hverjum. Læknablaðið er ritrýnt tímarit einsog áskrifendum þess er fullkunnugt um, á landinu eru um 40 slík rit, og í deiglu er hjá timarit.is að þeim verði lyft sérstaklega og hægt að flokka þau saman til frekari leitar. Allt okkar vit og strit er vistað í Lands­ bókasafninu og tímans þungi niður heyrist þar á hverri hæð hússins. Það er magnað að vera leiddur um gangana í kjallara safnsins og vera einsog í heimsókn í öryggisfangelsi bóka og blaða. Í ærandi júníbirtunni, 18 stiga hita og sunnanþey er samt langskemmtilegast að koma út á hlaðið á Þjóðarbókhlöðunni aftur. Læknablaðið komið inn á timarit.is ■ ■ ■ Védís Skarphéðinsdóttir Rósa Bjarnadóttir og Örn fletta í skránni. Örn Hrafnkelsson í bókasafni Jóns Steffensens sem varð- veitt er í Þjóðarbók- hlöðunni, þar er skrifborð Jóns, stóll og ýmsir smá munir auk vel innbundinna bóka og blaða, - þar er náttúrlega Lækna- blaðið í öndvegi. Hér sér ofan í gamla spjaldskrá.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.