Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2014, Blaðsíða 53

Læknablaðið - 01.07.2014, Blaðsíða 53
l Ö G F R æ ð i 1 0 . P i S T i l l Læknar eru hvattir til að koma á framfæri við ritstjórn eða pistlahöfund ábendingum um efni sem þeir vilja að fjallað verði um. Dögg Pálsdóttir lögfræðingur Læknafélags Íslands DoggP@lis.is Nýverið gaf ríkissaksóknari út ákæru á hendur heilbrigðisstarfsmanni og heil­ brigðisstofnun fyrir manndráp af gáleysi. Mikil umræða um ákæruna varð til þess að ríkissaksóknara þótti rétt að að birta hana á heimasíðu sinni 22. maí 2014 (rikissaksoknari.is/um­embaettid/frettir/ nr/71). Lýsing ákæru á meintri refsiverðri háttsemi heilbrigðisstarfsmannsins ber með sér að í þremur tilgreindum atriðum er hann talinn hafa farið á svig við það sem verklagsreglur bjóða. Tveimur dögum síðar birti ríkissaksóknari á heimasíðu sinni stutta samantekt um manndráp af gáleysi. Lesendur eru hvattir til að kynna sér þá umfjöllun því hún er gagnleg og upplýsandi um það hvað þarf til að koma til að ákært sé fyrir manndráp af gáleysi (rikissaksoknari.is/um­embaettid/frettir/ nr/72). Um skráningar­ og tilkynningaskyldu óvæntra atvika í heilbrigðisþjónustu var fjallað í 10. tbl. 99. árgangs Læknablaðsins 2013 og vísast til þeirrar umfjöllunar. Í ljósi umræðunnar þykir þó rétt að fjalla ítarlegar um þetta efni. Þegar dauðsfall verður, hvort sem það gerist innan eða utan heilbrigðisstofnunar, þarf ætíð að skoða líkið og athuga hvernig andlátið bar að, dauðaskilmerki og líklega dánarorsök, sbr. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 61/1998 um dánarvottorð, krufningar og fleira. Í 3. gr. sömu laga segir að læknir sem kvaddur er til vegna líkskoðunar skuli gera lögreglu viðvart ef ætla má að dauðsfall megi rekja til mistaka, van­ rækslu eða óhappatilviks við læknismeð­ ferð. Lögreglu skal einnig tilkynna ef ætla má að andlát tengist refsiverðu athæfi, sjálfsvígi eða andláti af völdum slyss, ef maður hefur fundist látinn, ef dauðsfall er óvænt eða ef maður andast í fangelsi eða á öðrum áþekkum stað. Það þarf því mjög oft að tilkynna lögreglu um andlát og sú tilkynningaskylda er ekki takmörkuð við andlát sem ætla má að rekja megi til læknismeðferðar. Hugtakið læknismeðferð er hér notað í víðri merkingu því það vísar til meðferðar allra heilbrigðisstarfsmanna í lækningaskyni, ekki eingöngu til meðferð­ ar sem læknar veita. Hugtakið er í fleiri lögum notað í svo víðtækri merkingu. Í skýringum við 3. gr. í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 61/1998 er á það bent að oftast sé enginn vafi á því að andlát hafi borið eðlilega að, jafnvel þótt dánarorsök sé óljós. Sé hins vegar óvissa um þetta atriði skuli læknir sem skoðar líkið undantekningarlaust tilkynna lög­ reglu um andlátið. Bent er á að ekki sé nánar fjallað um það í ákvæðinu hvernig þessi andlát skuli tilkynnt en talið að í flestum tilvikum yrði það gert símleiðis. Þá kemur fram í skýringunni að gert sé ráð fyrir að ráðherra setji reglur um við­ brögð lögreglu við slíkum tilkynningum, ekki síst þeim sem ætla má að séu vegna mistaka, vanrækslu eða óhappatilviks í sambandi við læknismeðferð eða for­ varnir vegna sjúkdóms. Loks er áréttað að í ákvæðinu sé fjallað um tilkynningar til lögreglu og að telji lögreglan rannsókn vegna andláts á heilbrigðisstofnun nauð­ synlega, sé gert ráð fyrir að í sérstökum vinnureglum verði fjallað um samskipti lögreglu og heilbrigðisstofnunar í þeim málum.1 Eftir því sem næst verður komist hefur ráðherra ekki sett slíkar reglur um viðbrögð lögreglu við tilkynningum skv. 3. gr. laga nr. 61/1998. Tilkynningaskyldan vegna óvænts andláts sjúklings er áréttuð í 3. mgr. 10. gr. laga nr. 41/2007 um landlækni og lýðheilsu og þar vísað til 3. gr. laga nr. 61/1998 varðandi framkvæmd hennar. Í fjölmiðlaumræðu eftir birtingu áður­ nefndrar ákæru á hendur heilbrigðisstarfs­ manni gætti þess viðhorfs að aðrar reglur eigi að gilda um heilbrigðisstarfsmenn þegar kemur að manndrápi af gáleysi. Þetta má auðvitað lengi ræða og skoðunar­ vert er að til dæmis hafa Danir valið aðra leið. Í dönskum heilbrigðislögum eru ákvæði þess efnis að ef heilbrigðisstarfs­ maður tilkynnir sjálfur um óvænt atvik í heilbrigðisþjónustu þá fylgi því engar afleiðingar, hvorki áminning af hálfu eftir­ litsaðila né opinber ákæra. Í áðurnefndri umfjöllun um manndráp af gáleysi á heimasíðu embættis ríkissak­ sóknara kemur fram að 215. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem gerir manndráp af gáleysi refsivert, nær til allra, hvaða starfi eða stöðu sem þeir gegna. Þar kemur einnig fram að mál sem ákæruvald­ ið hefur haft til meðferðar og snerta ætluð refsiverð brot starfsmanna í heilbrigðis­ þjónustu séu sjaldgæf og sönnunarstaðan með þeim hætti að mál hafa verið felld niður á grundvelli sönnunarskorts.2 Ákær­ an sem nú hefur verið gefin út mun vera hin fyrsta sinnar tegundar. Liggur þó fyrir að á ári hverju tilkynnir Landspítalinn að minnsta kosti 6­10 dauðsföll á grundvelli 3. gr. laga nr. 61/1998.3 Það sýnist því ekki mikil þörf á því að fara dönsku leiðina og láta í þessum efnum aðrar reglur gilda um heilbrigðisstarfsmenn. En ef vilji er til slíks kallar það á lagabreytingar. 1. Frumvarp til laga um dánarvottorð, krufningar o.fl., þskj. 795, 464. mál, skýringar við 3. gr. frumvarpsins. Vefútgáfa Alþingistíðinda: althingi.is/altext/122/s/0795.html ­ júní 2014. 2. Sjá umfjöllun á heimasíðu embættis ríkissaksóknara um manndráp af gáleysi. Slóð: www.rikissaksoknari.is/um- embaettid/frettir/nr/72. 3. Sjá frétt í RÚV 21. maí 2014. Slóð: www.ruv.is/frett/ akaerd­vegna­andlats­sjuklings. <http://www.www.ruv. is/frett/akaerd­vegna­andlats­sjuklings.> Dauðsfall á heilbrigðisstofnun LÆKNAblaðið 2014/100 421
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.