Læknablaðið - 01.07.2014, Blaðsíða 42
410 LÆKNAblaðið 2014/100
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Mörg er mannsævin og misjöfn. Sumir
fara aldrei út fyrir sinn fæðingarhrepp en
aðrir flengjast um heiminn. Viðmælandi
Læknablaðsins að þessu sinni fellur
örugglega ekki í fyrsta flokkinn, ævi hans
líkist mun frekar því sem ungir Íslending
ar nútímans þekkja, og þó ekki. Hann kom
undir í Kína, fæddist í Noregi, ættaður úr
Borgarfirðinum, lærði til læknis í Reykja
vík og eyddi stærstum hluta starfsævinnar
í sunnanverðri Eþíópíu.
Sá sem hér um ræðir er Jóhannes Ólafs
son kristniboði og læknir, sonur Ólafs
Ólafssonar kristniboða í Kína sem var
þekktur maður í íslensku samfélagi á
öldinni sem leið. Nú er Jóhannes orðinn
eftirlaunamaður í landi móður sinnar,
Noregi, og festi ekki alls fyrir löngu á blað
æviminningar sínar sem til eru í hand
riti. Hann var í heimsókn hér á landi fyrir
skemmstu og þá hitti blaðamaður hann
að máli.
Jóhannes er fæddur í Noregi snemma
árs 1928 en haustið 1927 höfðu foreldrar
hans neyðst til að flýja kristniboðsstöðina
sem þau störfuðu við í bænum Dengzhou
í Henan í miðhluta Kínaveldis. Til Kína
komu þau hvort í sínu lagi, Herborg kenn
ari norskra barna í bænum Laohokow en
Ólafur var við kristniboðsstörf í bænum
Dengzhou. Árið 1926 giftu þau sig en þá
var að hefjast borgarstyrjöld í héraðinu
sem átti eftir að breiðast út um allt Kína.
Snemma árs 1928 var trúboðunum skipað
að koma sér niður til strandar og bíða þar
átekta. Biðtímann notuðu þau til að heim
sækja vesturíslenskan kristniboða í Japan.
Ferðin endaði á heimaslóðum Herborgar
Eldevik í Slettaune í Orkdal, skammt
sunnan við Álasund í Noregi. Þar fæddist
Jóhannes.
Fyrst kristniboði, svo læknir
■ ■ ■ þröstur Haraldsson
Jóhannes Ólafsson
starfaði lengst af í
Eþíópíu þar sem hann
beitti lækniskunnáttu
sinni í þágu fólksins
og frelsarans
Fjölskylda Ólafs Ólafssonar og Herborgar Eldevik í Kína á þriðja áratug síðustu aldar. Jóhannes lengst til vinstri.
Systkinin Jóhannes, Guðrún og Hjördís í Kína.
Myndirnar með greininni eru úr eigu Jóhannesar og fjölskyldu.
Jóhannes kennir innfæddum Boranamönnum. Óvíst hvort það eru smíðar eða pípulagnir
sem eru á dagskrá.
Jóhannes og Áslaug eignuðust tvenna tvíbura sem hér eru með föður sínum. Fyrst komu Herborg og Ragnar snemma árs 1964, svo Sverrir og Margrét í árslok 1965.