Læknablaðið - 01.07.2014, Blaðsíða 56
424 LÆKNAblaðið 2014/100
Læknablaðið ræddi við Bryndísi Hlöðversdóttur starfsmanna
stjóra Landspítala. Fyrirhugað er að í næstu blöðum verði lagðar
sömu spurningar fyrir þá sem stýra starfsmannamálum á öðrum
stórum vinnustöðum lækna í landinu. Þetta er gert í kynningar
skyni fyrir lækna innanlands og utan.
Hvað sinnir Landspítali mörgum sjúklingum á ári?
Þriðjungur allra landsmanna leitar árlega til Landspítala. Árið
2013 leituðu rúmlega 107.000 manns (hver að meðaltali um fjór
um sinnum) eftir þjónustu sem spítalinn veitir. Rúmlega 97.000
komur voru skráðar í slysa og bráðaþjónustu og um 315.000
komur á dag og göngudeildir. Tæplega 14.000 skurðaðgerðir
voru framkvæmdar og 3228 börn fæddust á Landspítala.
Hvað starfa margir á spítalanum?
Þar störfuðu í upphafi árs 2014 4864 starfsmenn, sem er 4,2%
aukning frá fyrra ári, í 3667 stöðugildum (án barnsburðarleyfa,
foreldraorlofs og launalausra leyfa). Starfsmannavelta síðustu 5
árin hefur verið rúm 11% að undanskildu árinu 2011 (10,8%).
Hver eru markmið og gildi spítalans? Til dæmis hvað varðar
starfsumhverfi og einnig gagnvart sjúklingum?
Markmið spítalans er að bæta þjónustu og auka öryggi, bæði
fyrir sjúklinga og starfsmenn ásamt því að stuðla að góðri vinnu
staðarmenningu.
Gildi spítalans, sem mótuð voru af starfsmönnum, endur
spegla vel starfsemina. Við berum umhyggju fyrir sjúklingum,
starfsmönnum og samfélagi okkar. Við höfum fagmennsku,
gagnreynda þekkingu og öguð vinnubrögð að leiðarsljósi. Við
leggjum öryggi sjúklinga, starfsmanna og samfélags til grund
vallar í allri okkar þjónustu. Við leggjum áherslu á framþróun
þjónustu, þekkingar og tækni. Með gildin að leiðarljósi, sem
við sýnum í okkar daglegu gjörðum, drögum við þau saman í
umhyggju, fagmennsku, öryggi og framþróun.
Hver eru helstu verkefni spítalans?
Landspítali er sjúkrahús allra landsmanna, aðalsjúkrahús Íslands
og háskólasjúkrahús. Hann er öryggisnet í eigu og þágu þjóðar
sem veitir bæði almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu. Jafn
framt er hann miðstöð menntunar, þjálfunar og rannsókna á
sviði heilbrigðisvísinda.
Hvað starfa margir nemar á spítalanum hverju sinni?
Árlega stunda rúmlega 1500 nemendur nám í heilbrigðis
vísindum, þar af eru yfir 300 í meistara og doktorsnámi. Í hjúkr
unar og læknisfræði eru um 400 nemendur árlega í hvorri grein
en í heildina eru um 25 starfsstéttir sem stunda nám í grunn og
framhaldsnámi.
Vísindasjóður Landspítala styrkir um 100 vísindaverkefni og
mikið samstarf er við innlenda háskóla, Íslenska erfðagreiningu,
Hjartavernd og í vaxandi mæli við erlenda háskóla.
Er vöntun á mannauði? Á hvaða sviðum helst?
Það hefur verið skortur á fólki á tilteknum sviðum starfsem
innar, má þar nefna að á tímabili gekk illa að manna stöður að
stoðarlækna á lyflækningasviði. Upp á síðkastið hefur það hins
vegar gengið vel og almennt má segja að okkur gangi ágætlega
að manna spítalann. Það er hins vegar áhyggjuefni að nýliðun
skortir hjá lykilstéttum í heilbrigðisþjónustu og má þar nefna
vissar sérgreinar lækninga, lífeindafræðinga og sjúkraliða. Það er
því sameiginlegt verkefni okkar, stjórnvalda og menntastofnana
að sjá til þess að við höfum í framtíðinni nóg af hæfu fólki til
að sinna þeim vaxandi verkefnum sem við blasa í heilbrigðis
þjónustu á Íslandi.
Hver er framtíðarsýn spítalans?
Framtíðarsýn spítalans er að Landspítali verði áfram í fremstu
röð háskólasjúkrahúsa og sjúklingurinn og öryggi hans verði
ætíð í fyrirrúmi. Menntun og vísindastarf verði í fremstu röð
og markvisst unnið að nýsköpun á grundvelli þekkingar. Land
spítali verði áfram eftirsóttur vinnustaður sem veitir hagkvæma
og skilvirka þjónustu byggða á bestu þekkingu sem völ er á og sé
stolt landsmanna, sjúklinga og starfsmanna.
Það er einnig framtíðarsýn spítalans að starfsemin verði
sameinuð á einn stað í hentugt húsnæði. Nýjar spítalabygg
ingar þurfa að mæta kröfum nútímalækninga að teknu tilliti
til þekkingar og tækniþróunar. Þær munu veita betri aðbúnað
fyrir sjúklinga, leiða til færri sjúkrahússýkinga, auka öryggi og
stytta legutíma. Auk þess mun sameinuð starfsemi leiða til hag
ræðingar í rekstri og nútímaleg aðstaða laða að og gera spítalann
að eftirsóknarverðari vinnustað.
STARFSMANNASTJÓRAR
TEKNiR Á BEiNið
bryndís Hlöðversdóttir
starfsmannastjóri Landspítala
A T V I N N A
■ ■ ■ Sigdís þóra Sigþórsdóttir