Læknablaðið - 01.07.2014, Blaðsíða 39
LÆKNAblaðið 2014/100 407
Gjöf frá
Norðmönnum
Vinir okkar á norska læknablaðinu, Tidsskrift for
Den Norske legeforening, sendu árnaðaróskir og gjöf
til Læknablaðsins á dögunum í tilefni hundraðasta
árgangsins. Það er frummynd listaverks sem þau létu
gera og birtu á kápu norska blaðsins haustið 2011.
Myndin á að túlka von og ósk ungra krabbameins
sjúklinga og höfundur hennar er ameríski hönnuður
inn Dung Huang sem notar samþætta tækni, silkiþrykk, olíu,
vatnsliti og stafræna nálgun til að tjá sitt verk. Þessi leið Huangs
útmálar mjög vel hinar flóknu og margþættu staðreyndir, hugs
anir og tilfinningar sem einkenna þungbæra sjúkdóma.
Í bréfi með myndinni segja Norðmennirnir: Áður hafði orðið
krabbamein hræðilegan hljóm, og var aðeins tengt við dauðann
og lífslok. Nú komast æ fleiri sjúklingar frá þessu meini og end
urheimta lífið að nýju. Ungir krabbameinssjúklingar eru í mikilli
hættu á að verða ófrjósamir. Það að geta varðveitt frjósemi sína
skapar ekki aðeins þá von að komast lífs af heldur líka að vera
fær um að koma frjómagni lífsins áfram til næstu kynslóðar.
Læknisfræðilegri þekkingu er ekki síður miðlað með myndum
en texta. Samspil þess sem maður les og sér myndar nýjar
tengingar, alveg eins og nákvæm skoðun veitir innsýn í verk
efnið framundan. Á hverri kápu blaðsins norska er þess vegna
listaverk sem blaðið hefur pantað og er í samhengi við innihald
blaðsins hverju sinni.
Charlotte Haug ritstjóri og ábyrgðarmaður norska blaðsins
undirritar bréf með myndinni og sendir bestu velfarnaðaróskir
til Læknablaðsins, með þeirri von að það haldi velli um ókomin
ár.
Sumarlokun skrifstofu lÍ
verður dagana 14. júlí til 5. ágúst.