Læknablaðið - 01.07.2014, Blaðsíða 13
LÆKNAblaðið 2014/100 381
virði þeirra sjálfboðaliða sem taka þátt í verkefninu var einnig
metið sem hluti af kostnaði. Gert var ráð fyrir 5 ferðum á viku með
tveimur sjálfboðaliðum og að hver ferð stæði í tvo klukkutíma.
Tímavirði var reiknað út frá meðaltali reglulegra launa fullvinn
andi launamanna á vinnumarkaði árið 2011 sem voru 376.000 kr.,
auk launatengdra gjalda sem voru metin vera um 36,6% af laun
um, það er 137.616 kr.12,13 Samtals voru þetta því 513.616 kr. Launa
tengd gjöld eru breytileg eftir einstaklingum og stéttarfélögum.
Hér var miðað við eftirfarandi: Tryggingagjald 8,65%, lífeyris
framlag 11,50%, mótframlag í séreign 2,00%, önnur launatengd
gjöld 1,41% og orlof 13,04%. Flokkurinn önnur launatengd gjöld
inniheldur orlofssjóðsiðgjald, sjúkrasjóðsgjald, starfsmenntasjóðs
gjald, vísindasjóðsgjald, fjölskyldu og styrktarsjóð og þróunar og
símenntunarsjóði.
Kostnaður vegna HIV-meðferðar
HIVmeðferð sprautufíkla var skilgreind út frá klínískum leið
beiningum.14 Gert var ráð fyrir að sprautufíklar færu í viðtal til
smitsjúkdómalæknis fjórum sinnum á ári. Kostnaður við komu til
smitsjúkdómalæknis er samkvæmt komugjöldum til klínískra sér
fræðilækna frá Sjúkratryggingum Íslands.15 Ekki var gert ráð fyrir
kostnaði vegna blóðrannsókna né annarra rannsókna. Út frá evr
ópskum klínískum leiðbeiningum var gert ráð fyrir að sjúklingur
yrði settur á eina af fjórum ráðlögðum upphafslyfjameðferðum við
HIV.14 Hlutföll milli ávísana á þessar lyfjameðferðir voru fengin úr
óbirtum gögnum um ávísun lyfja við HIV á Landspítala.15 Þessi
gögn voru ópersónugreinanleg og áttu við allar ávísanir lyfja við
HIV í öllum sjúklingahópum. Gert var ráð fyrir að yfirfæra mætti
þessi hlutföll yfir á sprautufíkla. Kostnaður vegna lyfjameðferðar
var metinn út frá lyfjaverðskrá.16
Kostnaðarnytjagreining
Kostnaðarvirkni nálaskiptiþjónustu var metin með kostnaðar
nytjagreiningu þar sem kostnaður vegna þjónustunnar var
reiknaður á hvert unnið lífsgæðavegið lífár samanborið við enga
íhlutun á 10 ára tímabili 20112020. Allur kostnaður var reiknaður
að verðlagi ársins 2011. Við núvirðingu var miðað við 3% afvöxt
unarstuðul eins og skapast hefur hefð fyrir.
Kostnaðarnytjahlutfall var reiknað út sem
(Viðbótarkostnaður vegna nálaskiptiþjónustu)
Kostnaður vegna tilfellis þar sem nálaskiptiþjónusta er starf
rækt er samtala kostnaðar vegna reksturs þjónustunnar og kostn
aðar vegna meðferðar sprautufíkla með HIV. Kostnaður vegna
tilfellis þar sem ekki er boðið upp á þjónustuna er einungis vegna
HIVmeðferðar sprautufíkla, en þá eru fleiri sprautufíklar á með
ferð en ella. Nyt þjónustunnar eru þau lífsgæðavegnu lífár sem
sparast þegar þjónustan kemur í veg fyrir HIVsmit. Með kostn
aðarnytjahlutfalli má reikna hvað það kostar samfélagið að reka
nálaskiptiþjónustu í stað engrar þjónustu á hvert lífsgæðavegið
lífár sem hún skilar.
Næmisgreining
Einþátta næmisgreiningar voru gerðar á öllum helstu forsendum
og þær settar fram á sameiginlegu stólpariti og bornar saman við
viðmið Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar fyrir kostnaðarvirkni.
Forsendurnar sem kostnaðarnytjagreining var næmisgreind fyrir
eru 6 talsins: mismunur heilsutengdra lífsgæða, virkni nálaskipti
þjónustu, kostnaður meðferðar, kostnaður nálaskiptiþjónustu,
fjöldi sprautufíkla og afvöxtunarstuðull. Mismunandi gildi voru
valin fyrir næmisgreininguna eftir forsendum. Upplýsingar um
heilsutengd lífsgæði fyrir sprautufíkla með og án HIVsýkingar
voru fengnar úr gögnum frá Bretlandi og notast var við mismun
þeirra gilda í útreikningi, 3,5.10 Mismunur heilsutengdra lífsgæða
voru næmisgreind á bilinu 1,5 4,5. Mat á virkni nálaskiptiþjón
ustu var rökstutt með vísan í erlenda langtíma áhorfsrannsókn
sem hafði nokkra truflandi þætti. Þar var sýnt fram á að nálaskipti
þjónusta kæmi í veg fyrir 0,12 HIVnýsmit á hver 100 persónuár
meðal sprautufíkla.9 Næmisgreint var á bilinu 0,06 0,24. Á fyrsta
ári greiningarinnar var kostnaður vegna HIVmeðferðar metinn
vera 2.338.350 kr.15,16 Næmisgreiningin var á bilinu 2.000.000 kr.
4.000.000 kr. Kostnaður nálaskiptiþjónustu var næmisgreindur
á bilinu 9.000.000 kr. 14.000.000 kr. Næmisgreiningarmörk fyrir
fjölda virkra sprautufíkla voru valin út frá fjölda einstaklinga
sem legðist inn á Vog vegna sprautufíknar á tímabilinu 20012009.
Lágmarksfjöldinn fékkst ef gert var ráð fyrir að allir sprautfíklar
legðust inn á Vog og hámarksfjöldinn ef aðeins 50% sprautufíkla
legðust inn.5 Að lokum var afvöxtunarstuðull næmisgreindur frá
07%.
Niðurstöður
Heildarkostnaður samfélagsins vegna HIVsýkinga sprautufíkla
á tímabilinu 20112020 var áætlaður 914.369.621 kr. án nálaskipti
þjónustu en 947.653.758 kr. með nálaskiptiþjónustu. Umfram
kostnaður samfélagsins vegna nálaskiptiþjónustu á tímabilinu
er því 33.284.137 kr. Nyt samfélagsins af þjónustunni er 7,39 lífs
gæðavegin lífár. Jafnframt kemur nálaskiptiþjónusta í veg fyrir 45
(4,5) HIVsýkingar á tímabilinu. Kostnaðarhlutfall af því að veita
nálaskiptiþjónustu í stað engrar er 4.506.720 kr. Næmisgreining á
forsendum er sýnd á mynd 3. Í næmisgreiningunni varð kostn
R a n n S Ó k n
Mynd 3. Næmisgreining á helstu forsendum. Framan við hvern stólpa er gildi for-
sendunnar sem verið er að næmisgreina. Niðurstaða kostnaðarnytjagreiningarinnar er
sýnd með óbrotinni línu og mörk Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar fyrir kostnaðarvirkni
eru sýnd með brotinni línu.
(Viðbótar lífsgæðavegin lífár vegna nálaskiptiþjónustu).