Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2014, Síða 39

Læknablaðið - 01.07.2014, Síða 39
LÆKNAblaðið 2014/100 407 Gjöf frá Norðmönnum Vinir okkar á norska læknablaðinu, Tidsskrift for Den Norske legeforening, sendu árnaðaróskir og gjöf til Læknablaðsins á dögunum í tilefni hundraðasta árgangsins. Það er frummynd listaverks sem þau létu gera og birtu á kápu norska blaðsins haustið 2011. Myndin á að túlka von og ósk ungra krabbameins­ sjúklinga og höfundur hennar er ameríski hönnuður­ inn Dung Huang sem notar samþætta tækni, silkiþrykk, olíu, vatnsliti og stafræna nálgun til að tjá sitt verk. Þessi leið Huangs útmálar mjög vel hinar flóknu og margþættu staðreyndir, hugs­ anir og tilfinningar sem einkenna þungbæra sjúkdóma. Í bréfi með myndinni segja Norðmennirnir: Áður hafði orðið krabbamein hræðilegan hljóm, og var aðeins tengt við dauðann og lífslok. Nú komast æ fleiri sjúklingar frá þessu meini og end­ urheimta lífið að nýju. Ungir krabbameinssjúklingar eru í mikilli hættu á að verða ófrjósamir. Það að geta varðveitt frjósemi sína skapar ekki aðeins þá von að komast lífs af heldur líka að vera fær um að koma frjómagni lífsins áfram til næstu kynslóðar. ­ Læknisfræðilegri þekkingu er ekki síður miðlað með myndum en texta. Samspil þess sem maður les og sér myndar nýjar tengingar, alveg eins og nákvæm skoðun veitir innsýn í verk­ efnið framundan. Á hverri kápu blaðsins norska er þess vegna listaverk sem blaðið hefur pantað og er í samhengi við innihald blaðsins hverju sinni. Charlotte Haug ritstjóri og ábyrgðarmaður norska blaðsins undirritar bréf með myndinni og sendir bestu velfarnaðaróskir til Læknablaðsins, með þeirri von að það haldi velli um ókomin ár. Sumarlokun skrifstofu lÍ verður dagana 14. júlí til 5. ágúst.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.