Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2015, Blaðsíða 12

Læknablaðið - 01.03.2015, Blaðsíða 12
132 LÆKNAblaðið 2015/101 með bakflæði. Í áðurnefndri norski rannsókn á 99 börnum, 7-16 ára, sem fóru í 24-tíma sýrustigsmælingu í vélinda vegna gruns um bakflæði, voru einungis 37% þeirra með jákvæða sýrustigs- mælingu. Uppgangur og ælur voru þau einkenni sem oftast fylgdu jákvæðri sýrustigsmælingu. Fjórðungur barnanna sem höfðu já- kvæða sýrustigsmælingu voru ekki með afgerandi einkenni um magavélindabakflæði.13 Í nýlegri rannsókn á börnum með lang- vinnan hósta sem höfðu magavélindabakflæði staðfest með við- námsmælingu í vélinda, voru 19 af 21 barnanna án dæmigerðra bakflæðiseinkenna.11 Þó að allmargar rannsóknir bendi á tengsl milli öndunarfæraeinkenna og bakflæðis, er orsakasambandið ekki þekkt með vissu. Menn hafa ályktað að magavélindabakflæði geti valdið öndunarfæraeinkennum, eins og astma, með tvennum hætti. Annars vegar með ásvelgingu af magainnihaldi niður í berkjur sem orsakar ertingu og bólgu í kjölfarið og hins vegar með súru magainnihaldi neðst í vélinda sem veldur samdrætti á berkjum í gegnum taugaboð um Vagus-taugina.19 Á hinn bóginn er astmi talinn geta valdið magavélindabakflæði vegna undirþrýst- ings í brjóstholi við kröftuga innöndun.20 Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna tengsl bakflæð- iseinkenna og öndunarfæraeinkenna hjá 7-10 ára skólabörnum í Reykjavík. Efniviður og aðferðir Á árunum 2008-2009 voru sendir út 2895 stuttir spurningalistar til 7-10 ára barna í grunnskólum Reykjavíkur til að skima fyrir fæðu- ofnæmi. Valdir voru allir grunnskólar í Reykjavík sem voru með 100 börn eða fleiri í þessum aldurshópi. Rannsóknin var hluti af stórri evrópskri rannsókn (Europrevall) og gerð samtímis í 8 lönd- um.21 Svör bárust frá 2346 börnum (81%). Úr þeim hópi mættu 176 (7,4%) af 251 börnum til frekari rannsókna á göngudeild í lungna- og ofnæmissjúkdómum á Landspítala. Hlutfall stúlkna var 59%. Þau höfðu svarað játandi spurningunni: „Hefur barn þitt nokkurn tímann veikst eða orðið illt af að borða einhverja sérstaka fæðu eða mat?“ Einnig komu 317 börn sem valin voru af handahófi úr þeim sem svöruðu spurningunni neitandi, sem viðmiðunarhópur. Samtals voru því börnin 493 sem tóku þátt í þessum hluta rann- sóknarinnar. Börnin svöruðu ásamt foreldrum sínum ítarlegum spurningalista um ýmsa heilsufarsþætti. Þarna voru meðal annars spurningar um öndunar- og meltingarfæraeinkenni, sem notaðar voru í þessari rannsókn (fylgiskjal 1). Leyfi fyrir rannsókninni voru fengin hjá vísindasiðanefnd 28.8.2007 (07-076-S1) og Persónu- vernd 11.6.2007 (S3473/2007). Tölfræði Svörin voru skráð jafnóðum í gagnagrunn sem var notaður til að skoða ofangreinda þætti og bera saman í tölfræðiforritinu SPSS. Notuð voru kí-kvaðrat og óháð t-próf til að reikna út marktækan mun. Tengsl milli flokkaðra breyta voru metin með gagnlíkinda- hlutfalli (odds ratio) ásamt 95% öryggisbili. Niðurstöður Alls tóku 493 börn þátt í rannsókninni, 262 (53%) stúlkur og 231 (47%) drengir. Meðalaldur stúlkna var 8,5 ár og drengja 8,4 ár. Stúlkur voru líklegri en drengir til að svara því játandi að hafa orðið illt af einhverri fæðu eða mat (p<0,05) í fyrrihluta rannsókn- arinnar. Þær voru ekki líklegri en drengir að hafa fengið einhver meltingarfæraeinkenni (p=0,17), sem sérstaklega var spurt um í seinni hluta rannsóknarinnar, né heldur nefeinkenni (p=0,54) eða astmakast á síðastliðnum 12 mánuðum (p=0,54). Lungnaeinkenni Þau börn sem höfðu einhvern tímann fengið astma voru 186 (37,8%) og af þeim voru 39 (7,9%) sem höfðu fengið astmakast á síðustu 12 mánuðum (tafla I). Flest börnin, eða 142 (76%), voru tveggja ára eða yngri þegar þau fengu sitt fyrsta astmakast. Aðeins 21 barn (4,2%) var sagt hafa vaknað upp vegna astma á síðustu 12 mánuðum. Af svarendum sögðust 77 (15,6%) hafa haft hvæs eða píp í lungum síð- ustu 12 mánuði og 82 (16,6%) höfðu haft einhver lungnaeinkenni síðustu 12 mánuði. Nefeinkenni Alls höfðu 137 börn (27,8%) haft einhver nefeinkenni og 77 börn (15,6%) einkenni um ofnæmi í nefi, þar með talið frjókvef. Sam- tals 119 börn (24,1%) höfðu einhvern tímann átt í vandræðum með hnerra, nefrennsli eða nefstíflur án þess að vera með kvef eða með flensu, en 103 börn (20,9%) höfðu haft slík einkenni á síðustu 12 mánuðum og 56 börn (11,4%) höfðu haft nefvandamál með kláða og rennsli úr augum (tafla II). Meltingarfæraeinkenni Alls höfðu 225 börn (45,6%) haft einhver einkenni frá meltingar- færum á síðustu 6 mánuðum. Börnin voru ýmist með eitt eða fleiri einkenni og skiptust þau þannig að 85 börn (17,2%) höfðu haft uppköst án þess að vera með gubbupest eða matareitrun, 148 R A N N S Ó K N Tafla I. Taflan sýnir hlutfall þeirra barna sem svöruðu játandi spurningum um öndunarfæraeinkenni, n=493. Spurningar Hlutfall sem svaraði spurningunni játandi Hefur barnið verið með surg eða píp í brjósti einhvern tímann á síðustu 12 mánuðum? 15,6% Hefur barnið fundið fyrir mæði þegar surg/píp óhljóðið var til staðar? 9,9% Hefur barnið haft surg eða píp í brjósti þegar það var ekki kvefað? 7,7% Hefur barnið einhvern tímann haft astma? 37,7% Hefur barnið fengið astmakast á síðustu 12 mánuðum? 7,9% Tafla II. Taflan sýnir hlutfall þeirra barna sem svöruðu játandi spurningum um nef- og augneinkenni, n=493. Spurningar Hlutfall sem svaraði spurningunni játandi Hefur barnið haft ofnæmi í nefi, þar með talið frjókvef? 15,6% Hefur barnið einhvern tímann átt í vandræðum með hnerra, nefrennsli eða nefstíflur án þess að það væri með kvef eða með flensu? 24,1% Hefur barnið átt í vandræðum með hnerra, nefrennsli eða nefstíflur án þess að það væri kvefað eða með flensu síðustu 12 mánuði? 20,9% Hefur barnið haft nefvandamál með augnkláða eða vökvafyllt augu? 11,4%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.