Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2015, Síða 17

Læknablaðið - 01.03.2015, Síða 17
LÆKNAblaðið 2015/101 137 Inngangur Endurlífgunartilraunir í hjartastoppum utan spítala á höfuðborgarsvæðinu hafa verið vel rannsakaðar allt frá árinu 1976. Ef miðað er við erlendar rannsóknir hefur árangur af endurlífgunum utan spítala á höfuðborgarsvæðinu verið góður frá því farið var að veita þessa þjónustu.1,2 Í Bandaríkjunum hefur lifun inni á gjörgæslu/legudeild víðast verið milli 20-27% en þetta hlutfall hefur reynst vera á bilinu 31-41% á Íslandi. Hlutfall þeirra sem lent hafa í hjartastoppi og útskrifast lifandi hefur víðast hvar verið á bilinu 3-16% í Bandaríkjunum en 9-19% hér á landi.3-5 Rannsóknir hafa einnig sýnt að hlutfall grunnendurlífgunar í meðhöndlun hjartastoppa á vett- vangi hefur einnig verið hátt á Íslandi, eða 54% við síð- asta uppgjör, en algengt er að þetta hlutfall sé á bilinu 30-35% í Bandaríkjunum.1-5 Á höfuðborgarsvæðinu var starfræktur neyðarbíll með lækni samfellt á árunum 1982-2007. Þjónustusvæði hans nær nú til Reykjavíkur, Kópavogs, Seltjarnarness, Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Mosfellsbæjar og Álftaness. Góðan árangur endurlífgunartilrauna á höfuð- borgarsvæðinu í fyrri uppgjörum má líklega rekja til margra þátta eins og samræmdrar neyðarsímsvörunar Neyðarlínunnar, læknisþjónustu á neyðarbíl og þjálf- unar sjúkraflutningamanna.1,2 inngangur: Á Reykjavíkursvæðinu sinnti neyðarbíll með lækni hjarta- stoppum á árunum 1982-2007. Markmið rannsóknarinnar var að kanna árangur endurlífgunar utan sjúkrahúsa á höfuðborgarsvæðinu árin 2004- 2007 og bera saman við niðurstöður fyrri rannsókna. Efniviður og aðferðir: Þýði rannsóknarinnar náði til allra einstaklinga sem fóru í hjartastopp árin 2004-2007 utan sjúkrahúsa á höfuðborgarsvæðinu af völdum hjartasjúkdóma þar sem endurlífgun var reynd. Gögn voru skráð samkvæmt Utstein-staðli um grunnþætti endurlífgunar. niðurstöður: Á rannsóknartímabilinu höfðu 289 einstaklingar farið í hjartastopp. Var endurlífgun reynd hjá 279 (97%) og hjartasjúkdómur talin orsök hjartastopps í 200 tilvikum. Meðalaldur rannsóknarþýðisins var 67,7 ár og 76% voru karlar. Meðaltal útkallstíma var 6,3 mínútur. Lifandi á sjúkrahús komust 107 (54%) og 50 (25%) útskrifuðust af sjúkrahúsi miðað við 16-19% í fyrri uppgjörum (p=0,16). Hlutfall sleglatifs/sleglahraðtakts var 50%, rafleysu 30% og rafvirkni án dæluvirkni 20%. Árin 2004-2007 útskrifuðust 70% þeirra sem lögðust inn á gjörgæslu/ legudeild og voru með sleglatif/sleglahraðtakt á fyrsta riti borið saman við 49% árin 1999-2002 (p=0,01). Í 120 (60%) tilvikum var vitni að hjarta- stoppi og í 62% af þeim tilvikum var grunnendurlífgun beitt fyrir komu neyðarbíls miðað við 54% í síðasta uppgjöri (p=0,26). Marktækur munur var á lifun ef vitni var að hjartastoppi 37 (31%) á móti 5 (8%) ef ekki var vitni (p<0,01). Ályktanir: Fjórðungur þeirra sem reynt er að endurlífga úr hjartastoppi útskrifast lifandi af sjúkrahúsi. Er árangurinn sambærilegur við síðustu uppgjör á höfuðborgarsvæðinu (16-19%) en mjög góður samanborið við erlendar niðurstöður (3-16%). Lifun sjúklinga sem lögðust inn á gjörgæslu/legudeild med sleglatif/sleglahraðtakt sem fyrsta takt var marktækt aukin miðað við fyrri uppgjör. Lifun var marktækt betri ef vitni var að hjartastoppi. Ágrip Frá síðasta uppgjöri á árangri endurlífgunarþjón- ustunnar hafa margvíslegar breytingar verið gerðar á henni til að reyna að auka árangurinn enn frekar. Tekin var upp stöðug vakt á hjartaþræðingarstofu Land- spítala árið 2003 og á svipuðum tíma var farið að beita kælingarmeðferð á gjörgæslu hjá meðvitundarlausum sjúklingum sem lagðir voru inn eftir endurlífgun. Þá tók endurlífgunarráð til starfa árið 2002 sem hefur unnið að aukinni þekkingu og kennslu í endurlífgun á Íslandi.6,7 Starfsmenn neyðarbílsins hafa unnið samkvæmt al- þjóðlegum leiðbeiningum um sérhæfða endurlífgun frá árinu 2000. Hafa leiðbeiningarnar verið í endurskoðun og voru þær uppfærðar árið 2005, með aukinni áherslu á rafstuð og hjartahnoð á kostnað öndunaraðstoðar og lyfja.8 Tilgangur rannsóknarinnar var að meta árangur endurlífgunartilrauna vegna hjartastoppa af völdum hjartasjúkdóma utan sjúkrahúsa á höfuðborgarsvæðinu árin 2004-2007 og bera saman við fyrri rannsóknir. Efniviður og aðferðir Þýði rannsóknarinnar voru allar endurlífgunartilraunir vegna hjartasjúkdóma utan sjúkrahúsa á höfuðborgar- svæðinu á tímabilinu 1. janúar 2004 til 31. desember 2007. Upplýsingar um endurlífgunartilraunir voru fengnar úr Greinin barst 7. júlí 2014, samþykkt til birtingar 23. janúar 2015. Höfundur hefur útfyllt eyðublað um hagsmunatengsl. Árangur endurlífgunartilrauna utan spítala á Reykjavíkursvæðinu árin 2004-2007 Brynjólfur Árni Mogensen2 læknir, Hjalti Már Björnsson1,3 læknir, Gestur Þorgeirsson2,3 læknir, Gísli Engilbert Haraldsson1 læknir, Brynjólfur Mogensen1,3 læknir 1Bráðamóttöku, 2lyflækningasviði Landspítala, 3læknadeild Háskóla Íslands. Fyrirspurnir: brynjólfur Árni Mogensen billimogens @gmail.com R A N N S Ó K N Spiriva Respimat (tíórópíum) Að minnsta kosti 40% astmasjúklinga sem eru á meðferð með ICS/LABA hafa viðvarandi einkenni og geta haft gagn af frekari meðferð 1,2 Fyrir fullorðna astmasjúklinga með viðvarandi einkenni þrátt fyrir meðferð með ICS/LABA*** Auglýsingin er samþykkt af ENLIIS1 0 -1 1 -2 0 1 4 NÝTT ! 1. LA MA** til m eðfer ðar við a stma Ábendingar: Berkjuvíkkandi viðhaldsmeðferð til að lina einkenni hjá sjúklingum með langvinna lungnateppu (LLT) og jafnframt sem viðbót við berkjuvíkkandi viðhaldsmeðferð hjá fullorðnum sjúklingum með astma sem fá viðhaldsmeðferð með samsetningu af innöndunarstera (>800 míkróg budesonid/sólarhring eða jafngildum innöndunarstera) og langverkandi β2-örva og sem hafa fengið eina eða fleiri alvarlegar versnanir undangengið ár.3 ** LAMA - langverkandi andkólínvirkt lyf ***(innöndunarstera/langverkandi β2-örva) Heimild: 1. Rabe KF et al. Clinical management of asthma in 1999: the Asthma Insights and Reality in Europe (AIRE) study. Eur Respir J. 2000;16(5):802-807. 2. Bateman ED et al. Can guideline defined asthma control be achieved? Am J Respir Crit Care Med. 2004;170(8):836-844. 3. Samantekt á eiginleikum Spiriva Respimat www.serlyfjaskra.is

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.