Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.03.2015, Side 19

Læknablaðið - 01.03.2015, Side 19
LÆKNAblaðið 2015/101 139 staklingur var í bíl eða vinnu og af þeim útskrifuðust fjórir (19%) heim af spítala. Ellefu fóru í hjartastopp utandyra og útskrifuðust fjórir þeirra (36%) af spítala. Tíu einstaklingar voru á heilbrigðis- stofnun (öldrunarheimilum og endurhæfingardeildum) og út- skrifaðist einn af þeim heim (10%). Átján voru flokkaðir undir annað eða óskráð og útskrifuðust fimm af þeim (28%) heim. Tutt- ugu einstaklingar fóru í hjartastopp í sjúkrabíl og útskrifuðust átta af þeim (40%) heim. Nærstödd vitni Í 120 tilvikum (60%) voru vitni að hjartastoppi samkvæmt endur- lífgunarskýrslu. Sextíu voru ekki með vitni að hjartastoppi og 20 tilfelli urðu í sjúkrabíl. Af þeim 120 einstaklingum sem höfðu vitni að hjartastoppinu voru 79 (66%) í sleglatifi/sleglahraðtakti, 21 (18%) í rafvirkni án dæluvirkni og 20 (17%) með rafleysu. Af þeim 60 einstaklingum sem höfðu ekki vitni voru 11 (18%) í sleglatifi/ sleglahraðtakti, 9 (15%) í rafvirkni án dæluvirkni og 40 (67%) í raf- leysu. Marktækur munur var á tegund fyrsta takts eftir því hvort vitni var að hjartastoppi eða ekki (p<0,01). Sjötíu og tveir (60%) lifðu við komu á bráðadeild þegar vitni var að hjartastoppi en 19 (32%) þegar ekki var vitni að hjartastoppi. Marktækur munur var á lifun inn á gjörgæslu/legudeild eftir því hvort vitni var að hjarta- stoppi, 56 (47%) lögðust inn á gjörgæslu/legudeild þegar vitni var að hjartastoppi en 18 (30%) þegar ekki var vitni að hjartastoppi (p<0,05). Einnig var marktækur munur á lifun við útskrift en 37 (31%) útskrifuðust af sjúkrahúsi ef vitni var að hjartastoppi á móti 5 (8%) ef ekki var vitni að hjartastoppi (p<0,01), samanber töflu I. Meðalaldur þegar vitni var að hjartastoppi var 66,7 ár en 69,1 ár þegar ekki var vitni og reyndist aldursmunurinn ekki marktækur (p=0,22). Áhrif grunnendurlífgunar Samkvæmt Utstein-staðli var einungis litið á áhrif grunnendur- lífgunar ef vitni var að hjartastoppi. Af 120 einstaklingum þar sem vitni var að hjartastoppi reyndist grunnendurlífgun hafin fyrir komu sjúkrabíls í 74 tilvikum, eða 62%. Af þeim voru 52 (70%) með sleglatif/sleglahraðtakt sem upphafstakt, 14 (19%) voru með rafvirkni án dæluvirkni og 8 (11%) með rafleysu sem upphafstakt (tafla II). Fjörutíu og sex (62%) komust inn á bráðamóttöku af þeim sem grunnendurlífgun var hafin hjá miðað við 26 (57%) þeirra sem fengu ekki grunnendurlífgun. Ekki var marktækur munur á fjölda þeirra sem var lagður inn á gjörgæslu/legudeild af þeim sem grunnendurlífgun var hafin hjá (n=37, 50%) miðað við 19 (41%) sem fengu ekki grunnendurlífgun (p=0,47). Tuttugu og sex (35%) lifðu fram að útskrift af þeim sem hafin var grunnendurlífgun hjá, en 11 (24%) lifðu að útskrift af þeim sem ekki fengu grunnendur- lífgun (p=0,28), samanber töflu III. Meðalaldur þeirra sem fengu grunnendurlífgun var 64,6 ár en 69,9 ár hjá þeim sem ekki fengu grunnendurlífgun (p=0,07). Kælingarhlutfall og ástand við útskrift Alls voru 62 (72%) einstaklingar kældir af þeim 86 einstaklingum sem lögðust inn á gjörgæslu/legudeild. Af þeim 50 manns sem útskrifuðust af sjúkrahúsi reyndust 39 (78%) vera með óskerta vitræna getu samkvæmt CPC-skala. Tíu (20%) voru með væga vitræna skerðingu, CPC tveir við útskrift af spítala. Einn einstaklingur var með miðlungs vitræna skerðingu, CPC þrír, en enginn var með CPC fjóra eða fimm. Af þeim 50 ein- staklingum sem lifðu að útskrift voru 48 (96%) á lífi ári eftir hjarta- stopp. Af þeim 11 sem voru með CPC-skor 2-3 voru 8 með sleglatif/ R A N N S Ó K N Tafla I. Samanburður á árangri endurlífgana utan sjúkrahúsa eftir því hvort vitni var að hjartastoppi eða ekki, fjöldi (%). Vitni Ekki vitni p-gildi Heildarfjöldi 120 60 Meðalaldur (ár) 67 69 0,22 karlar/konur 95/25 45/15 0,58 Lifun á bráðadeild 72 (60) 19 (32) <0,01 Innlögn á gjörgæslu/legudeild 56 (47) 18 (30) 0,05 Útskrifaðir 37 (31) 5 (8) <0,01 Útkallstími - mínútur 6,42 6,11 0,15 Lifun á bráðadeild: Merki um blóðflæði, það er mælanlegur blóðþrýstingur eða púls og merki um öndun, við komu á bráðadeild. Tafla II. Samanburður á upphafstakti eftir því hvort vitni var að hjartastoppi eða ekki, fjöldi (%). Vitni Ekki vitni P-gildi Upphafstaktur <0,01 VF/VT 79 (66) 11 (18) 0,01 VF/VT - útskrifaðir 33 (42) 3 (27) Rafleysa 20 (17) 40 (67) 0,01 Rafleysa - útskrifaðir 0 0 PEA 21 (18) 9 (15) 0,52 PEA - útskrifaðir 4 (19) 2 (22) VF/VT: Sleglatif/sleglahraðtaktur. PEA: Rafvirkni án dæluvirkni. P-gildi mælir hvort það sé marktækur munur á takti eftir því hvort vitni hafi verið að hjartastoppi eða ekki. Tafla III. Samanburður á árangri endurlífgana utan sjúkrahúsa í vitna viðurvist eftir því hvort grunnendurlífgun var beitt eða ekki, fjöldi (%). Grunnendurlífgun Ekki grunnendurlífgun P-gildi Heildarfjöldi 74 46 Meðalaldur (ár) 65 70 0,07 karlar/konur 56/18 38/8 0,50 Útkallstími 6,38 6,5 0,38 Lifun á bráðadeild 46 (62) 26 (57) 0,67 Innlögn á gjörgæslu/ legudeild 37 (50) 19 (41) 0,47 Útskrifaðir 26 (35) 11 (24) 0,28 Upphafstaktur 0,09 VF/VT 52 (70) 27 (59) 0,25 VF/VT - útskrifaðir 23 (44) 10 (37) Rafleysa 8 (11) 12 (26) 0,14 Rafleysa - útskrifaðir 0 0 PEA 14 (19) 7 (15) 0,47 PEA - útskrifaðir 3 (21) 1 VF/VT: Sleglatif/sleglahraðtaktur. PEA: Rafvirkni án dæluvirkni. Lifun á bráðadeild: Merki um blóðflæði það er mælanlegur blóðþrýstingur eða púls og merki um öndun við komu á bráðadeild.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.