Læknablaðið - 01.03.2015, Page 33
LÆKNAblaðið 2015/101 153
Svo hljóðuðu orðin er mælt voru á þjóð-
fundi sem danska ríkisstjórnin boðaði til í
Reykjavík þann 9. ágúst árið 1851. Stjórnin
hafði lagt fram frumvarp um nýja stjórn-
skipun þar sem réttur Íslendinga virtist
vera nær enginn og lítið tillit tekið til
óska þeirra. Hinir íslensku fulltrúar lögðu
fram annað frumvarp og er konungsfull-
trúa líkaði það ekki leysti hann fundinn
upp í nafni konungs. Er fundi var slitið
mótmælti Jón Sigurðsson lögleysu fulltrúa
Danakonungs en flestir fundarmenn risu
úr sætum og mæltu nálega einum rómi:
,,Vér mótmælum allir!“
Þessum sögufrægu orðum skaut upp í
kollinn á mér þegar kjarabarátta lækna var
nýafstaðin, einkum vegna þeirrar algjöru
og órofnu samstöðu sem myndaðist. Slík
samstaða verður að teljast einstök þegar
um ræðir eins stóran og mislitan hóp
fagmanna í eins afdrifaríkum aðgerðum
og verkfall er. Sérstaklega í ljósi þess
að í fyrsta sinn í Íslandssögunni kaus
læknastéttin að nýta þann takmarkaða
verkfallsrétt sem verið hefur til staðar í
hartnær 30 ár. Margir læknar hafa verið
með öllu andvígir hugmyndinni um verk-
fall, enda bryti það í bága við svarinn eið
um að skjólstæðingurinn kæmi ofar öllu.
Hins vegar risu menn úr sætum nú og
mótmæltu flestir einum rómi. Samstaðan
var jafnvel enn viðameiri. Stærstur hluti
landsmanna stóð með læknastéttinni sem
kom læknum og líklega ráðamönnum
nokkuð í opna skjöldu. Hvað olli þessu?
Líklega er svarið margþætt. Ef til vill
var þolinmæði lækna þrotin eða fólki
blöskraði aðgerðar- og áhugaleysi stjórn-
valda til samningsgerðar. Var óánægjan
með kjörin kannski aðaldrifkrafturinn?
Læknar hafa verið seinþreyttir til vand-
ræða og þrátt fyrir mikla óánægju með
kjör í gegnum tíðina hefur ekki áður kom-
ið til greina að fara í verkfall. Kjör lækna
á Íslandi hafa aldrei verið upp á marga
fiska ef marka má skrif lækna síðustu ár,
áratugi og árhundruð, svo svarið er eflaust
ekki svo einfalt. Líklega vógu staðreynd-
irnar um spekileka og manneklu víða
þungt. Voru það raunverulega áhyggjur
lækna af framtíð heilbrigðiskerfisins sem
gerðu útslagið? Vel vandaður undirbún-
ingur átti eflaust sinn þátt í samstöðunni,
bæði fyrir kröfugerðina og útfærslu verk-
fallsins, en öryggi skjólstæðinga þótti lítt
ógnað. Vönduð umfjöllun í fjölmiðlum
gegndi í mínum huga tvímælalaust veiga-
miklu hlutverki í fenginni samstöðu meðal
læknastéttarinnar sem og í stuðningi al-
mennings en upplýsingaflæði um speki-
leka og ástand heilbrigðiskerfisins skilaði
sér í trú manna að hér yrði að spyrna við
fótum áður en illa færi. Fólk sá verkfall
lækna sem ábyrgðarfyllri kost en ófull-
nægjandi samningar og þannig hafi jafn-
vel þeir sem gátu áður ekki hugsað sér að
fara í verkfall, kosið með verkfallsaðgerð-
unum. Fulltrúar okkar komu í hvívetna
fram af aðdáunarverðri fagmennsku og
yfirvegun, án þess þó að draga úr alvar-
leika ástandsins. Greinaskrif og umfjöllun
í fjölmiðlum var almennt vönduð, upp-
lýsandi og fagmannleg og þetta skilaði sér
ótvírætt í þeim meðbyr sem læknar fundu
fyrir af hálfu þjóðarinnar. Þjóðfélagið virt-
ist vel upplýst um ástand heilbrigðismála
og mannekluvandamál og vera meðvitað
um launamál lækna og þá yfirvinnutíma
sem lágu að baki heildartölum. Upp-
hrópanir í fjölmiðlum um prósentutölur
virtust ekki ná tilætluðum árangri og
þótti mönnum ljóst að þar væri verið að
reyna að slá ryki í augu fólks. Raddir sem
bölvuðu verkfalli lækna voru fáheyrðar.
Þvert á móti virtist fólk sýna aðgerðunum
fullan skilning en hváði yfir aðgerðarleysi
stjórnvalda. Samstaðan var einstök, ekki
aðeins meðal lækna heldur meðal þjóðar-
innar allrar. Að lokum er hugsanlegt að
tiltölulega nýtilkominn samfélagsmiðill á
vefnum hafi haft sitt að segja þar sem lok-
aður hópur lækna nær og fjær gat fylgst
með framvindu og lagt til málanna.
Hvað sem olli hélst samstaðan órofin
þar til samningar voru undirritaðir og
læknar hafa nú sýnt ráðamönnum
þjóðarinnar að þeir geta staðið saman
og myndað sterka heild. Stjórnvöld urðu
þess áskynja að vilji þjóðarinnar væri að
heilbrigðismál yrðu sett í forgang og að
koma þyrfti til móts við kröfur lækna.
Stuðningur almennings vóg þungt í
þrýstingi á stjórnvöld og hugsanlega varð
vendipunktur í samningaviðræðum þegar
stjórnvöld áttuðu sig á því að bæði væri
samstaða lækna sterk og vilji þjóðarinnar
skýr.
Stórt skref hefur verið tekið í kjarabar-
áttu lækna sem vonandi markar fyrsta
skrefið í átt að viðreisn heilbrigðiskerfis-
ins. Verkefnin eru enn mörg og aðkallandi
og því er mikilvægt að við sofnum ekki á
verðinum. Viðhöldum þéttri samstöðu og
höldum áfram að vera sýnileg í fjölmiðlum
á faglegan og uppbyggilegan hátt. Barátta
okkar hefur skilað auknum fjármunum
í heilbrigðiskerfið og yfirlýsing um upp-
byggingu heilbrigðiskerfisins hefur verið
undirrituð.
Ef svo fer sem horfir getur undirrituð
vel hugsað sér að flytja aftur heim að sér-
námi loknu, og er það í fyrsta sinn.
Ú R P E n n a S T J Ó R n a R M a n n a l Í
„Vér mótmælum allir!“
Þorbjörn jónsson, formaður
orri Þór ormarsson, varaformaður
Magnús baldvinsson, gjaldkeri
Magdalena Ásgeirsdóttir ritari
Arna Guðmundsdóttir
björn Gunnarsson
Hildur Svavarsdóttir
Þórarinn Ingólfsson
Fulltrúi FAL er Tinna Harper Arnardóttir
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna
LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins.
Tinna H.
arnardóttir
læknir á skurðdeild
Landspítala
tinna.harper@gmail.com
Stjórn lÍ 2015
gegn
heilablóðfalli/
segareki
Forvörn gegn heilablóðfalli / segareki hjá sjúklingum með gáttatif sem ekki tengist
lokusjúkdómum (NVAF) ásamt einum eða fleiri áhættuþáttum.
Aðeins Eliquis® tengir
saman þessa kosti
Veldu Eliquis®, eina Xa hemilinn sem sýnt hefur
verið fram á að veiti áhrifaríkari vörn gegn
heilablóðfalli/segareki með marktækt minni
tíðni á meiriháttar blæðingum samanborið við
warfarin2.
Eliquis® (apixaban), sem ætlað er til inntöku, er beinn hemill á storkuþátt Xa og hefur eftirfarandi
ábendingar:
• Forvörn gegn bláæðasegareki (VTE) hjá fullorðnum sjúklingum sem hafa gengist undir valfrjáls
mjaðmarliðskipti eða hnéliðskipti.
• Forvörn gegn heilablóðfalli og segareki í slagæð hjá fullorðnum sjúklingum með gáttatif sem
ekki tengist hjartalokusjúkdómum (non-valvular atrial fibrillation, NVAF) ásamt einum eða fleiri
áhættuþáttum, svo sem sögu um heilablóðfall eða tímabundna blóðþurrð í heila (transient ischaemic
attack, TIA), aldur ≥75 ára, háþrýstingi, sykursýki eða hjartabilun með einkennum (NYHA flokkur ≥II)1.
• Meðferð við segamyndun í djúplægum bláæðum(DVT) og lungnasegareki (PE) og forvörn gegn
endurtekinni segamyndun í djúplægum bláæðum og lungnasegareki hjá fullorðnum.
Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila.
Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að tilkynna allar aukaverkanir sem grunur er um að tengist lyfinu.
Sjá frekari upplýsingar um lyfið á www. lyfjastofnun.is
Heimildir: 1. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Eliquis. 2. Granger CB et al. Apixaban versus warfarin in patients with atrial fibrillation.
N Engl J Med 2011; 365: 981–992.2.
Áhrifaríkari vörn
PFI150202
samanborið
við warfarin2samanborið
við warfarin2
Minni tíðni
meiriháttar
blæðinga
* ELIQUIS® (apixaban): an oral, direct factor XA inhibitor indicated
for the treatment of deep vein thrombosis (DVT) and pulmonary
embolism (PE), and prevention of recurrent DVT and PE in adults.
NÚ
SA
MÞ
YK
KT
við
eð
fer
ð DV
T g E
ása
mt
fo
rvö
rn
ge
gn
en
du
rte
kn
um
DV
T g E já
ful
lor
ðn
um
1 .