Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.03.2015, Side 52

Læknablaðið - 01.03.2015, Side 52
172 LÆKNAblaðið 2015/101 Ö l D U n G a D E i l D Stjórn Öldungadeildar Magnús b. Einarson formaður, Þórarinn Sveinsson ritari, Hörður Alfreðsson gjaldkeri, Guðrún Agnarsdóttir, kristrún benediktsdóttir. Öldungaráð bergþóra Ragnarsdóttir, jóhann Gunnar Þorbergsson, jón Hilmar Alfreðsson, Sigurður E. Þorvaldsson, Tryggvi Ásmundsson, Valgarður Egilsson. Umsjón síðu Páll Ásmundsson Vefsíða: http://innri.lis.is/oldungadeild-li Á útskriftardegi þann 6. febrúar 1965 lét prófessor Sigurður Samúelsson þessi orð falla í hátíðlegu ávarpi: „Jæja, nú eruð þið tilbúnir að sinna læknisstörfum. Ykkur er hér með hleypt á sjúklingana.“ Þetta var okkar vegarnesti. Eftir prófið var ég aðstoðarlæknir hjá Sigursteini Guðmundssyni á Blönduósi. Það var góður skóli, þessa þrjá mánuði. Ég fékk að vinna sjálfstætt, en naut ráðlegginga Sigursteins, sem var 10 árum eldri og reyndur héraðslæknir með þjálfun í kvenlækningum frá Giesen í Þýskalandi. Halla konan mín fékk afnot af tann- læknatækjum, komin með hálfs árs reynslu hjá Jónasi Thorarensen. Ef draga þurfti tennur, fór fólk frekar til okkar en Höllu sem var bundin taxta tannlækna- félagsins. Okkar þjónusta var niðurgreidd. Vitjun upp í Blöndudal varð mér minnisstæð. Sem ég ek í hlað stendur bóndinn þar yfir dauðri kind. Dánarorsök var honum ókunn og engir áverkar sáust. Ég stakk upp á að kanna þetta nánar. Við krufðum hana á staðnum. Lungun voru bjúgsollin, hjartað stækkað og vinstri slegill næfurþunnur. Síðan gengum við í bæinn og þágum kaffi. Ég skoðaði konuna, ekki mösulbeina, og við hlustun hafði hún lungnabjúg og háþrýsting. Ég setti hana á viðeigandi lyf. Ég fékk ekki af mér að tala um svipmót einkenna hennar við dánarorsök ærinnar. Síðar var ég kallaður út í sveit. Þar var maður með ákafan höfuðverk. Skoðaði ég hann, en fékk ekki haldgóða skýringu utan háþrýsting, sem ég meðhöndlaði. Seinna um daginn var hringt, honum hafði versnað. Sigursteinn lagði hann inn, sendi suður í sjúkraflugi eftir að hafa ráðgast við lækna Landspítala. Var hann í framhaldi sendur til Kaupmannahafnar, skorinn vegna heilablæðingar og bjargað- ist. Bóndi leitaði til mín vegna kindar sem hafði rekið löppina milli rimla í fjárhúsinu og leggbrotnað. Bjóst hann við að þurfa að farga henni, lambfullri þarna á útmán- uðum. Ég brá við, setti brotið, steypti löpp- ina í gips upp fyrir hækil. Eftir sex vikur tókum við gipsið með nokkurri eftirvænt- ingu. Ekki er hægt að meta blóðvæðingu klaufa eins og fingra, hvort tveggja við- kvæmt fyrir þröngu gipsi. Löppin var í fínasta lagi, hún stakk varla við. Á frídegi fórum við í heimsókn til Þórarins Ólafssonar læknis á Hvamms- tanga og þágum góðar veitingar hjá þeim Guðrúnu Katrínu. Við ókum fyrir Vatnsnes með viðkomu hjá séra Sigurði Norland í Hindisvík. Þágum þar kaffi og meðlæti sem ráðskona hans reiddi fram. Presturinn gaf mér að skilnaði kvæðabók sína. Það herjaði flensufaraldur sem bar upp á tíma Húnavökunnar. Ég fór út á Skaga að bólusetja. Íbúum var smalað saman að Höfnum og Hofi. Fólkið þusti hvaðan- æva að, en það skipti engum togum, viku seinna var allur Skaginn lagstur í flensu. Fengum nú lítið þakklæti fyrir þessa læknisþjónustu. Það kom upp álitamál hvort halda ætti Húnavökuna á þessum tíma. Ég talaði við landlækni. Eins og ég Frá prófborði í hérað Sigurgeir kjartansson er fæddur 7. mars 1938 í Þórisholti í Mýrdal. Hann lauk stúdents- prófi frá Mennta- skólanum á Laugarvatni 1958 og varð cand. med. frá Háskóla Íslands í febrúar 1965. Hann stundaði sérnám í almennum skurðlækn- ingum og æðaskurðlækningum við Memori- al Hospital í Worcester og Massachusetts General Hospital í Boston í Massachusetts. Sérfræðingsleyfi í almennum skurðlækn- ingum 1972 og æðaskurðlækningum 1973. Starfaði á Landakotsspítala, Borgarspítala og síðan Landspítala til ársins 2007. Þá var hann dósent í klínískri handlæknisfræði við HÍ 1977-94. Í kaffi hjá læknishjónunum á Hvammstanga. Frá vinstri: Erla Þórarinsdóttir, Sigursteinn Guðmundsson, Birgitte D. Vilhelmsdóttir, Halla Sigurjóns, Sigurgeir Kjartansson, Þórarinn Ólafsson (hægra auga), Guðrún Katrín Þorbergs- dóttir, síðar forsetafrú og Þóra Þórarinsdóttir. Ljósmyndari: Björn Blöndal.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.