Frjáls verslun - 01.04.2005, Blaðsíða 46
46 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5
H
ið dæmigerða stórfyrirtæki á Íslandi hefur mjög líklega mark-
aðsstjóra og sennilega sérstaka markaðsdeild. Yfirgnæfandi
líkur eru á því að markaðsstjórinn sé karlmaður með háskóla-
próf. Þó eru konur sem gegna starfi markaðsstjóra líklegri
en karlarnir til að vera með framhaldsgráðu á háskólastigi. Hinn
dæmigerði markaðsstjóri skipuleggur markaðsstarfið sem hluta
af almennri vinnu fyrirtækisins í stefnumótun. Ergó: Markaðsstarf
stærstu fyrirtækjanna er til fyrirmyndar og almennt unnið með fag-
legum og skipulögðum hætti.
Að þessari niðurstöðu kemst Hjalti Sigurbergur Hjaltason,
nýútskrifaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri, í
athyglisverðri rannsókn sem hann gerði í tengslum við lokaritgerð
sína. Hann valdi að rannsaka markaðsstarf 300 stærstu fyrirtækja
Íslands samkvæmt lista Frjálsrar verslunar fyrir árið 2003.
Rannsóknin
Helsta markmið rannsóknarinnar var að reyna að varpa ljósi á það
hvernig íslensk fyrirtæki vinna sitt markaðsstarf. Í því samhengi
var m.a. skoðað hvort fyrirtækin starfræktu markaðsdeild, hverjir
stýrðu markaðsstarfinu, hver væri menntun viðkomandi og hvort
fyrirtækin skipulegðu markaðsstarf sitt sem hluta af stefnumótun
sinni.
Lagt var af stað með rannsóknarspurninguna: „Hvernig er mark-
aðsstarf unnið í íslenskum fyrirtækjum?“ Að auki voru settar fram
tvær eftirfarandi undirspurningar: „Hvaða áhrif hefur menntunarstig
á faglegt markaðsstarf íslenskra fyrirtækja?“ og „Er skipulagt mark-
aðsstarf hluti af stefnumótun íslenskra fyrirtækja?“.
Framkvæmd og heimtur
Ákveðið var að hringja út spurningalista og til vara
var sá möguleiki hafður að senda könnunina
með tölvupósti á þá sem ekki næðist í á því
tímabili sem símakönnunin var framkvæmd.
Könnunin var ætluð þeim sem stýra mark-
aðsstarfi fyrrnefndra fyrirtækja. Ekki var um
úrtakskönnun að ræða, heldur ákvað höfundur að
kanna öll 300 fyrirtækin.
M A R K A Ð S M Á L
MARKAÐSSTARF 300 STÆR STU FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI
TEXTI: HJALTI SIGURBERGUR HJALTASON
MYND: GEIR ÓLAFSSON
Athyglisverð rannsókn hefur verið gerð á markaðsstarfi 300 stærstu fyrirtækja
landsins. Það vekur athygli að um helmingur þeirra er með markaðsdeild
og 60% þeirra hafa sérstaka markaðsstjóra og þar eru karlar í meirihluta.
Greinarhöfundur, Hjalti S. Hjaltason,
nýútskrifaður viðskiptafræðingur frá
Háskólanum á Akureyri. Hann vann
mjög athyglisverða lokaritgerð
um það hvernig stærstu fyrirtæki
landsins sinna markaðsstarfi sínu.