Frjáls verslun - 01.05.2006, Blaðsíða 8
VA arkitektar ehf. er ein stærsta arkitektastofa landsins þar sem
starfa á þriðja tug manna með margbreytilega sérfræðikunnáttu
og menntun. VA arkitektar rekur almenna arkitektastarfsemi á
sviði skipulags- og byggingarmála. Fyrirtækið er nú til húsa að
Skólavörðustíg 12 en vegna aukinna umsvifa flytur það á haust-
mánuðum í stærra húsnæði í Borgartúni 6. VA arkitektar er ein af
eldri arkitektastofum landsins og á að baki langa og farsæla sögu.
Eigendur stofunnar eru níu og eru þeir allir jafnframt starfsmenn
fyrirtækisins.
LÖNG OG FARSÆL SAGA
Sögu VA arkitekta ehf má rekja til ársins 1968 þegar Vinnustofa
Geirharðar og Hróbjartar tók til starfa. Síðan þá hefur rekstur-
inn verið í stöðugum vexti. Árið 1983 komu þrír nýir hluthafar
til liðs við fyrirtækið og nafni stofunnar var breytt í Vinnustofa
arkitekta hf. Enn stækkaði hluthafahópurinn árið 2000, þegar
fimm hluthafar bættust við til viðbótar og nýtt einkahlutafélag
fékk nafnið VA arkitektar ehf. Um áramótin 2003/04 sameinuð-
ust arkitektastofurnar VA arkitektar ehf og Manfreð Vilhjálms-
son - Arkitektar ehf.sem á rætur að rekja til ársins 1959.
Eigendur VA arkitekta ehf. eru: Anna Sigríður Jóhannsdóttir,
arkitekt FAÍ, Hróbjartur Hróbjartsson, arkitekt FAÍ, Indro Indriði
Candi, arkitekt FAÍ, Karl Magnús Karlsson, arkitekt FAÍ, Richard
Ólafur Briem, arkitekt FAÍ og skipulagsfræðingur FSÍ, Sigríður
Sigþórsdóttir, arkitekt FAÍ, Sigurður Björgúlfsson, arkitekt FAÍ,
Steinar Sigurðsson, arkitekt FAÍ og Steinunn Halldórsdóttir, innan-
hússarkitekt FHÍ.
FJÖLBREYTT OG METNAÐARFULL STARFSEMI
Hjá VA arkitektum eru nú 24 starfsmenn og mörg verkefni í
vinnslu. Fyrirtækið leggur áherslu á að veita víðtæka og góða
þjónustu. Með fjölmennu og fjölbreyttu starfsliði er unnt að
sinna verkefnum af ýmsum stærðum og gerðum. Unnið er
jöfnum höndum að hönnun minni og stærri bygginga, skipulagi
og innanhússhönnun. Eftir stærð og eðli verkefna er unnið í
misstórum hópum. Í daglegum rekstri er lögð áhersla á skýr
markmið, fagleg gæði, samheldni og góðan vinnuanda.
Samfara þenslu í þjóðfélaginu síðustu ár hafa umsvif VA arki-
tekta aukist. Fyrir stofu af þessari stærðargráðu eru umfangsmeiri
verkefni ráðandi um þessar mundir. Framkvæmdahraðinn er meiri
og verkefnin fleiri. Markmiðið er að veita viðskiptavinunum há-
gæða þjónustu og mikilvægt er að hröð þjónusta dragi ekki úr
gæðum hönnunar. Hvort sem verk eru stór eða smá liggja sömu
gildi til grundvallar. Mæta þarf óskum verkkaupans á faglegan hátt
þannig að notagildi, hagkvæmni og fagurfræði haldist í hendur og
verkið sé til bóta fyrir umhverfið.
VERKEFNI SEM SKIPTA SAMFÉLAGIÐ MÁLI
Fjölbreytt verkefni krefjast víðtækrar og sérhæfðrar þekkingar.
Með langri reynslu og öflugum starfskrafti hafa VA arkitektar
verið virkir þátttakendur í viðamiklum brautryðjandaverkefnum
eins og Hjúkrunarheimili Sóltúni, Ingunnarskóla og Svæðaskipu-
lagi höfuðborgarsvæðisins. Samkeppnin hefur líka harðnað og
viðskiptamarkaður arkitekta hefur opnast. Arkitektastofur með
mikil umsvif og reynslu á borð við VA arkitekta eru mikilvægar til
VA ARKITEKTAR EHF.
8 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 6
AÐALATRIÐIÐ ER AÐ SKILA
HÁGÆÐA VINNU
INGUNNARSKÓLI GRAFARHOLTI, 2005 Nýtt kennsluform kallar
á nýja hönnun skólabyggingar. Opin kennslurými eru í góðum
tengslum við opin svæði innandyra sem utan.
SKIPULAG MÝRARGÖTU-SLIPPASVÆÐIS, 2005
Miðborgarskipulag með blandaðri byggð sem tengir gamla
vesturbæinn við sjóinn á ný. Íbúðir og atvinnustarfsemi í góðu
samneyti með lágmarks ágang bílaumferðar.