Frjáls verslun - 01.05.2006, Blaðsíða 96
96 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 6
F innsku Marimekko-vörurnar eru þekktar um allan heim og njóta alls staðar mikilla vinsælda. Hér á landi var Marimekko selt „endur fyrir löngu“ hjá Kristjáni Siggeirssyni en fyrir ári opnaði Margrét
Kjartansdóttir Marimekko-verslun í Iðu í Lækjargötu en flutti hana
síðan að Laugavegi 56 þar sem segja má að sé komið eins konar Mari-
mekko-hús. Margrét segir: „Ég hafði lengi vitað af Marimekko en kynnt-
ist vörunum fyrst fyrir alvöru árið 1988 þegar ég vann hjá Kristjáni
Siggeirssyni. Mér hefur alltaf fundist Marimekko
ofboðslega fallegt og svo fór að lokum að ég ákvað
að setja upp mína eigin Marimekko-verslun.“
Marimekko er ekki eitthvað sem kemur og fer
úr tísku. Því til sönnunar segir Margrét okkur að
til hennar komi oft konur sem segjast hafa notað
Marimekko-kjólana sína í yfir 20 ár og séu alltaf
jafnánægðar með þá. Finnskum hönnuðum tekst
að hanna fallega hluti sem falla ævinlega að tísk-
unni. Þannig hafa röndótt efni, röndóttir bolir og
röndóttar skyrtur verið einkennandi fyrir Marimekko allt frá upphafi,
1951, og í dag er allt sem röndótt er í hátísku.Vissulega fylgja þeir tísku-
straumum í litavali, t.d. nú þegar hinn vinsæli eplagræni litur er mikið
notaður. en hönnunin er sígild og efnin eru hrein kassík. „Það skemmti-
legast við Marimekko er að það er nokkurs konar lífsstíll og í Finnlandi
er mér sagt að þar sé enginn svo blankur að hann eigi ekki eitthvað frá
Marimekko. Finnar bera mikla virðingu fyrir Marimekko og líta á vör-
urnar sem þjóðartákn, sannkallað krúnudjásn.“
Það voru hjónin Vilo og Armi Ratia sem stofnuðu Marimekko
árið 1951. Armi var hönnuður og í sameiningu fengu þau til sín unga
og djarfa hönnuði til að hanna textíl, fatnað og ótalmargt fleira. Einn
þekktasti hönnuðurinn var Maija Isola sem árið 1964 hannaði Unikko-
mynstrið sem allir þekkja vel og oftast er einfaldlega kallað marimekko-
blómið. Margrét segir að Unikko-mynstrið sé ótrúlega vinsælt hér og
um leið allar vörur sem það skreytir.
Allt milli himins og jarðar Í Marimekko-búð-
inni er mikið úrval af bómullarvörum, barnaföt-
um, bolum og skyrtum, handklæðum og visku-
stykkjum, rúmfatnaði og efnum í metratali. Þar
fæst líka glæsilegur Marimekko-kvenfatnaður,
kjólar, pils og jakkar og margt, margt fleira úr
yndislegum bómullarefnum sem mörg hver eru
svo mjúk viðkomu að þau líkjast mest silki.
Kventöskur, snyrtibuddur, heimilisvörur, jafnvel
barnskór og stígvél fást í Marimekko-búðinni „en breiddin í fram-
leiðslunni er svo mikil að ég þyrfti a.m.k. tíu sinnum meira rými en
ég hef ef ég ætti að vera með allt sem býðst. Ég tek sitt lítið af hverju,
en eitt hef ég þó ekki enn boðið hér á Laugaveginum, Marimekko-
herrafötin. Í Finnlandi eru þau talin eitt af því flottasta fyrir herrann,
bæði hvað varðar efni og snið og auðvitað fylgja herrafötunum bæði
bindi og skyrtur.
Marimekko er með vetur-,
sumar-, vor- og haustlínur og
í hönnuninni er að finna bæði
djarfa liti og aðra dempaðri,
en val og samspil litanna hjá
Marimekko er einstakt.
Margrét Kjartansdóttir, eigandi
Marimekko-verslunarinnar,
hefur alltaf haft mikinn áhuga
á þessari finnsku hönnun.
MARIMEKKO:
Litir og mynstur Marimekko eru einstök
K
Y
N
N
IN
G
Þessar röndóttu skyrtur hafa verið
framleiddar hjá Marimekko s.l. 50 ár
og er þess minnst með því að fram-
leiða 50 liti þetta árið, þ.e. vinsælasta
litinn frá hverju ári fyrir sig.