Frjáls verslun - 01.05.2006, Blaðsíða 19
D A G B Ó K I N
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5 19
7. júní
Marínó hættir
hjá 66°Norður
Sagt var
frá því þenn-
an dag að
Marínó Guð-
mundsson,
sem gegnt
hefur starfi
framkvæmda-
stjóra
66°Norður
eftir að Sigurjón Sighvatsson
keypti fyrirtækið í byrjun síð-
asta árs, væri að hætta hjá
fyrirtækinu. Marínó var áður
framkvæmdastjóri fjármála hjá
Norðurljósum og var einn nán-
asti samstarfsmaður Sigurðar
G. Guðjónssonar þar á bæ. Frum-
kvæði að starfslokum Marínós
er sagt hafa komið frá stjórn
fyrirtækisins.
Sumarið er komið en það er
kólnandi fasteignamarkaður.
8. júní
Snarlega dregur
úr viðskiptum
með fasteignir
Fasteignamarkaðurinn hefur
snarkólnað og sá hasar, sem
einkennt hefur hann síðustu tvö
árin, virðist að baki. Útlán bank-
anna til íbúðakaupa námu tæp-
um 7,5 milljörðum króna í maí
og hafa ekki verið lægri í einstök-
um mánuði síðan að bankarnir
komu fyrst inn á íbúðalánamark-
aðinn árið 2004. Í sama mánuði
á síðasta ári námu íbúðalán
bankanna 19,1 milljarði. Fast-
eignaverð hefur sömuleiðis ekki
hækkað mikið að undanförnu.
Þannig spáir Landsbankinn 5%
hækkun fasteignaverðs á þessu
ári. Meðallánsfjárhæð hvers láns
er nú um 9,5 milljónir.
9. júní
Baugur að kaupa
House of Fraser
Breska blaðið Daily Telegraph
sagði þennan dag að stjórn
House of Fraser hefði fallist á
þær hugmyndir Baugs Group að
greiða 356 milljónir punda fyrir
fyrirtækið, eða jafnvirði rúmra 48
milljarða króna. House of Fraser
á 60 verslanir á Bretlandseyjum,
þar á meðal í Lundúnum, Edin-
borg og Leeds.
9. júní
Hugur og Ax
sameinuð
Tvö af dóttur-
félögum Kög-
unar, hugbún-
aðarfyrirtækin
Hugur og Ax
hugbúnaðar-
hús, verða
sameinuð á
næstunni.
Hið samein-
aða félag
mun nefnast
HugurAx og verður eitt stærsta
hugbúnaðarfyrirtæki landsins
með um 125 starfsmenn.
Páll Freysteinsson verður fram-
kvæmdastjóri hins sameinaða fyr-
irtækis, en Sigríður Olgeirsdóttir,
sem verið hefur framkvæmda-
stjóri Ax hugbúnaðarhúss, hefur
að eigin frumkvæði ákveðið að
láta af störfum. Bæði Hugur og
Ax hugbúnaðarhús eru dótturfé-
lög Kögunar, sem er í meirihluta-
eigu Dagsbrúnar.
9. júní
Magnús eykur við
hlut sinn í Avion
Magnús Þor-
steinsson, aðal-
eigandi Avion
Group, hefur
bætt við tæpum
þremur prósent-
um í félaginu
og á eignar-
haldsfélag hans
Frontline Holding, sem skráð er í
Lúxemborg, núna 37,55% hlut.
Magnús Þorsteinsson á
91,3% hlut í Frontline Holding og
Fjárfestingarfélagið Sjöfn á 8,7%
en eigendur þess eru Baldur
Guðnason, forstjóri Eimskips, og
Miklar umræður voru þessa dagana um kaup Exista á VÍS og
hvernig helstu eigendur VÍS hefðu ávaxtað pund sitt á undanförn-
um árum. Óhætt er að segja að Finnur Ingólfsson, forstjóri félags-
ins, hafi fengið rós í hnappagatið við söluna. Þegar hann varð for-
stjóri félagsins árið 2002 var félagið metið á 12 milljarða króna en
markaðsverð þess var 66 milljarðar þegar Exista yfirtók það.
Finnur Ingólfsson.
7. júní
VÍS SEXFALDAÐIST UNDIR FORYSTU FINNS
Marínó
Guðmundsson.
Sigríður Olgeirs-
dóttir, lætur af
störfum við sam-
eininguna.
Magnús
Þorsteinsson.