Frjáls verslun - 01.05.2006, Blaðsíða 140
140 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 6
É
g kann vel við það í fari Íslendinga
hvernig þeir hafa tileinkað sér það
besta frá öðrum þjóðum, sérstak-
lega þeim sem eru vaxandi og
framsæknar í heimi viðskiptanna. Íslend-
ingar eru fljótir til ákvarðana og duglegir
að nýta sér tækifærin þegar þau gefast.
Þeir eru vel menntaðir og upplýstir og
virðast nýta möguleika tækninnar til hins
ýtrasta,“ segir Nadine Deswasière, fram-
kvæmdastjóri stefnumótunar og þróunar
hjá Alfesca (áður SÍF).
Nadine situr í framkvæmdastjórn Al-
fesca og mun hafa aðsetur á nýrri skrif-
stofu félagsins sem verður opnuð í London
í sumar. Nadine varð óháður stjórnarmað-
ur í Alfesca í mars 2005 en sagði sig úr
stjórninni samfara því að hún var ráðin
framkvæmdastjóri í apríl síðastliðnum.
Nadine er með 23 ára reynslu af störfum
í fyrirtækjum á sviði neytendavöru, lengst
af hjá Campbell Soup og Nestlé. Hún starf-
aði í 16 ár hjá Nestlé í Frakklandi, Sviss,
Asíu og Austur-Evrópu. Hún var ábyrg fyrir
viðskiptaþróun og fyrirtækjakaupum í höf-
uðstöðvum Nestlé og varð síðar sviðsstjóri
og svæðisstjóri félagsins áður en hún varð
framkvæmdastjóri hjá einu af dótturfyrir-
tækjum Nestlé í Frakklandi með 340 millj-
óna evra veltu.
Nadine er fædd 1960. Hún hlaut meistara-
gráðu í markaðsfræðum frá háskólanum í
Lille í Frakklandi 1982 og lauk námi með
láði í félags- og hagfræði frá University of
Villeneuve d’Ascq í Frakklandi 1980. Nadi-
ne lauk stjórnunarnámi frá IMD í Lausanne
í Sviss árið 2000.
Nadine var spurð hvort eitthvað hefði
komið henni á óvart í íslenskum viðskipt-
um og um stjórnskipulag íslenskra fyrir-
tækja þar sem valdapíramídinn er tiltölu-
lega flatur og boðleiðir stuttar.
„Í hreinskilni sagt þá vissi ég ekki mikið
um íslenskt viðskiptalíf en ímyndaði mér
að þið líktust Írum að einhverju leyti. Varð-
andi uppbyggingu fyrirtækjanna finnst mér
mun nútímalegra og vænlegra til árangurs
að hafa einfalt og frekar flatt stjórnskipu-
lag. Með því móti geta stjórnendur innan
fyrirtækjanna haft meira svigrúm til að
þroskast í starfi og hafa áhrif á reksturinn.
Þessi fyrirtæki eru einnig mun sveigjan-
legri í samkeppnisumhverfi. Strangt stjórn-
skipulag hindrar sveigjanleika og truflar
eðlilegt flæði í viðskiptum. Ég hef upplifað
hvort tveggja og er því ekki í vafa um að
einfalt skipulag og stuttar boðleiðir eru
vænlegri til árangurs.“
Íslendingar eru ekki sérlega formlegir í
samskiptum eða viðskiptum og ekki alltaf
mjög meðvitaðir um siði og venjur sem
kunna að ríkja í öðrum löndum. Hvernig
upplifir þú þetta?
„Ég hóf starfsferil minn á auglýsinga-
stofu þar samskiptin voru á óformlegum
nótum . Ég er í eðli mínu mjög óformleg og
hjá stórri fyrirtækjasamsteypu eins og Nest-
lé rak ég mig stundum á. Engu að síður var
ég alltaf mjög hreinskiptin í samskiptum
mínum við stjórnendur félagsins bæði við
forstjórann og aðra samstarfsmenn. Þetta
óformlega samskiptaform gekk upp þar
sem ég var alltaf samkvæmt sjálfri mér og
það kann að hafa haft áhrif að ég er kona.
Allir starfsmenn fyrirtækja þurfa að skila
árangri og það eykur sjálfstraust þeirra
þegar þeir eru viðurkenndir óháð kynferði
eða starfsheiti.“
Nadine segist ekki móðgast þó að Ís-
lendingar fari eigin leiðir í samskiptum.
„Ólafur Ólafsson stjórnarformaður og Jak-
ob Sigurðsson forstjóri eru mjög móttæki-
legir og virðast koma eins fram við alla.
Það er óvenjulegt fyrir mig, en ég kann
því afar vel. Kynni mín af Íslendingum
gefa til kynna að þeir séu hreinskiptnir
eins og Frakkar en einnig kurteisir eins og
Þjóðverjar. Ykkur virðist lagið að tileinka
ykkur jákvæða þætti frá ólíkum menning-
arsvæðum.“
Hvað varð til þess að þú þáðir sæti í
stjórn SÍF sem síðar varð Alfesca?
Nadine Deswasière, framkvæmdastjóri stefnumótunar og þróunar
hjá Alfesca, segir hérna frá því hvernig Íslendingar og íslenskt
viðskiptalíf koma henni fyrir sjónir.
GLÖGGT ER
GESTS AUGAÐ
S T J Ó R N A R K O N A Í S Í F
TEXTI: UNNUR H.
JÓHANNSDÓTTIR