Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2006, Blaðsíða 6

Frjáls verslun - 01.05.2006, Blaðsíða 6
6 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 6 ÞAÐ VERÐUR AÐ teljast mikið afrek hjá Herdísi Þorgeirsdóttur lagaprófessor að boða á fjórða hundrað kvenna hvaðanæva að úr samfélaginu til ráðstefnu á Bifröst og fá þær til að samþykkja einróma ályktun um að sett verði lög um kynjakvóta í stjórnum skráðra fyrirtækja. KONURNAR STÓÐU UPP og samþykktu ályktunina með dynjandi lófataki og bravóhrópum - en ályktunin gengur út á að jafna hlut kynjanna í stjórnum skráðra fyrirtækja á Íslandi þannig að hlutur annars kynsins sé ekki undir 40 prósentum. EINDRÆGNIN Á BAK við þessa ályktun er athyglisverð vegna þess að hún er umdeild og mjög skiptar skoðanir eru á með- al beggja kynja um þörf á því að setja lög um kynja- kvóta. Hitt vegur þó þyngra að svona lagasetning getur stangast á við önnur lög og brotið í bága við lög um einkaeignarréttinn. Fjármagni fylgja völd og áhrif. Það er grunnurinn í kapítalísku samfélagi. Út á það gengur leikurinn. ÞEIR SEM EIGA reiðufé, hlutafé, húsnæði, lóðir og jarðir hafa þann rétt samkvæmt lögum að ráða yfir eign sinni. Sá réttur verður aldrei frá þeim tekinn á meðan hann gengur ekki á rétt annarra. Mörg dæmi eru auðvitað um að yfirvöld takmarki eignaréttinn. Ekki er hægt að aka bílnum sínum hvernig sem er og ekki er hægt að byggja hvernig sem er á lóðum og jörðum. Menn reisa t.d. ekki 500 fermetra bústað á eignalóð við Þingvallavatn og leggja bryggju út í vatnið bara vegna þess að þeir eiga lóðina. ÞEGAR KEMUR AÐ hlutafjáreign í fyrirtækjum þá hefur það aldrei vafist fyrir neinum að rétturinn til stjórnarsetu hefur verið skýlaus hafi hluthafinn nægilegt atkvæðamagn á bak við stjórnar- sætið. Undanfarin ár hefur umræðan raunar frekar snúist um að einstakir hluthafar hafi völd og áhrif umfram það sem eignarhlut- ur þeirra veitir þeim. Sú kvöð fylgir hlutafjáreign í skráðum fyrir- tækjum að hluthafi, eða tengdir hluthafar, þurfa að gera öðrum hluthöfum yfirtökutilboð eignist þeir 40% eignarhlut í fyrirtækinu. Þetta er gert til að vernda rétt smárra hluthafa. EINRÓMA ÁLYKTUN HÁTT á fjórða hundrað kvenna á Bifröst um að setja lög til að jafna hlut kynjanna í skráðum fyrir- tækjum í Kauphöll Íslands er skiljanleg - þó mér finnist hún órök- rétt. Þær telja einfaldlega að hlutirnir gangi of hægt fyrir sig og að tilmæli og ábendingar um aukinn hlut kvenna í stjórnum beri lítinn árangur. Þetta er hins vegar vandmeðfarin lagasetning og ég hefði frekar haldið að fundurinn gerði kröfu um kynjakvóta í opinberum fyrirtækjum og stjórnum. ÞEIRRI SKOÐUN HEF ég margoft lýst yfir í leiðurum Frjálsrar verslunar að ég sé á móti lögum um kynjakvóta í stjórn- um fyrirtækja, hvort sem um er að ræða lítil einkafyrirtæki, stór almenningshlutafélög eða fyrirtæki í eigu ríkisins. Það er rangt út frá einkaeignaréttinum. Þess utan er samfélag sem setur lög og reglugerðir um allt frekar óuppörvandi samfélag. ÞAÐ ER ENNFREMUR hægt að velta því fyrir sér að í lang- flestum tilvikum eru hjón eigendur fjármagnsins. Þar af leiðir að þau eiga hlutaféð saman - þótt annað þeirra kunni að forminu til vera skráð sem eigandi þess. Hvernig væri að næsta koddahjal snerist um hvort þeirra ætti að sitja í stjórn fyrirtækisins? Það er stundum sagt að fordæmið sé ekki aðeins venju- lega leiðin til þess að hafa áhrif á aðra, heldur sé það eina leiðin. Það er í anda þessarar hugsunar um fyrirmyndir og fordæmi sem júníblað Frjálsrar verslunar hefur verið helgað konum í viðskiptalífinu þrjú ár í röð. Þetta hefur blaðið gert þrátt fyrir að það líti fyrst og fremst á stjórnendur í fyrirtækjum sem einstaklinga - sem manneskjur - án kynferðis, kynþáttar og litarháttar. Það hefur hvatt til þess að til fyrirtækja séu ráðnir þeir einstaklingar sem hafa mesta hæfileika og áhuga. JAFNRÉTTISUMRÆÐAN ER ORÐIN stór hluti af umræðunni um viðskiptalífið - og færist augljóslega í aukana. Það er vel. Þess vegna er þetta blað um áhrifamestu konurnar í viðskiptalífinu hluti af stöðugri umræðu en ekki bara eitt skot og síðan ekki söguna meir. Allir fjölmiðlar fjalla reglulega og miklu oftar en nokkru sinni áður um konur í viðskiptalífinu. Ekki endilega vegna þess að um meðvitaða ritstjórnarstefnu sé að ræða heldur vegna þess að aukin þátttaka kvenna í atvinnulífinu þýðir að þær koma oftar við sögu í viðtölum og fréttaskýringum í hverju blaðinu af öðru - sem einstaklingar sem eru að gera eitt- hvað spennandi. JAFNRÉTTISBARÁTTAN ER EILÍFT ferðalag án enda- stöðvar. Það er auðvitað hægt að taka undir að langt sé í land í fullkomið jafnrétti. En við lestur þessa blaðs dylst samt engum að mikill árangur hefur náðst á undanförnum árum innan viðskipta- lífsins þótt árangurinn mætti auðvitað vera meiri. KONURNAR Í ÞESSU blaði eru fyrirmyndir, þær eru bæði konum og körlum hvatning til að láta að sér kveða í viðskipta- lífinu, hafa sig í frammi og beita sér. Fyrirmyndir og fordæmi eru betri en lög. Jón G. Hauksson RITSTJÓRNARGREIN LAGASETNING Á HLUT KYNJA Í STJÓRNUM STÓRFYRIRTÆKJA: Þær klöppuðu á Bifröst Konurnar í þessu blaði eru fyrir- myndir, þær eru bæði konum og körlum hvatning til að láta að sér kveða í viðskipta- lífinu, hafa sig í frammi og beita sér. Fyrirmyndir og fordæmi eru betri en lög. ÁTTU VON Á 975 GESTUM? Ráðstefnuskrifstofa Íslandsferða hefur víðtæka reynslu af skipulagningu á öllu því sem við- kemur ráðstefnu- , sýninga- og fundahaldi. Láttu það vera okkar verkefni að sjá um skipu- lagið, hvort sem þú átt von á 10 gestum eða 1000. Við bókum fundastað, gistingu, ráðum starfsfólk og pöntum skoðunarferðir og veitingar. Við hlökkum til að starfa með þér. Lágmúla 4 · 108 Reykjavík · Sími 585 4300 · Fax 585 4390 · conferences@icelandtravel.is · www.icelandtravel.is VIÐ GERUM ÞIG AÐ GÓÐUM GESTGJAFA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.