Frjáls verslun - 01.05.2006, Blaðsíða 22
22 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 6
D A G B Ó K I N
16. júní
Ingimundur
seðlabankastjóri
Ingimundur Friðriksson verður
seðlabankastjóri tímabundið til
loka ágúst en Jón Sigurðsson,
nýr iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
verður þá í launalausu leyfi. Ingi-
mundur er aðstoðarbankastjóri
Seðlabankans.
16. júní
Björgólfur Thor
og Kári á ráðstefnu
Forbes
Björgólfur Thor Björgólfsson og
Kári Stefánsson voru á meðal
30 fyrirlesara á ráðstefnu sem
tímaritið Forbes stóð fyrir í Kaup-
mannahöfn. Þeir voru í hópi fjöl-
margra þekktra forstjóra stórfyrir-
tækja og athafnamanna í Evrópu,
auk þess sem Ritt Bjerregaard,
borgarstjóri Kaupmannahafnar,
Per Stig Möller, utanríkisráðherra
Danmerkur, og Jóakim Danaprins
voru á meðal viðstaddra. Eigandi
tímaritsins og aðalritstjóri, Steve
Forbes, var einnig gestur á ráð-
stefnunni.
16. júní
Kaupþing í Noregi
tapar 121 milljón
Norskur fjölmiðlar sögðu frá því
að arabískum fjárfesti hafi tekist
að blekkja Kaupþing í Noregi og
selt hluti sem hann hefði ekki átt
fyrir 10 milljónir dollara, eða um
121 milljón króna tap. Jan Petter
Sissener, forstjóri Kaupþings í
Noregi, segist telja að peningarn-
ir skili sér aftur. Arabíski fjárfestir-
inn hafði samband við Kaupþing
í Noregi og vildi selja umrædda
hluti. Atvinnurekandi arabíska fjár-
festisins í Abu Dhabi hefur verið
kærður.
17. júní
38 milljarðar fyrir
fasteignir Magasin
Er Baugur að selja sjálfum sér
fasteignir Magasin du Nord?
Þannig spurðu ýmsir þegar fréttir
bárust um að Baugur Group ætl-
aði að selja fasteignir Magasin
du Nord til danska fasteignafé-
lagsins Atlas Ejendomme, en
það er í eigu fasteignafélagsins
Stoða, sem er hluti af samstæðu
Baugs. Samkvæmt fréttum í
Danmörku er þessi sala metin
á 38 milljarða króna og mun
um að ræða stærstu fasteigna-
viðskipti, sem fram hafa farið
í Danmörku í ár. Eftir þessi við-
skipti verður Atlas Ejendomme
eitt allra stærsta fasteignafélag
Danmerkur.
19. júní
Björgólfur Thor
inn á íslenska
símamarkaðinn
Morgunblaðið sagði frá því að
Novators, fjárfestingarfélag í eigu
Björgólfs Thors Björgólfssonar,
væri að hefja starfsemi á Íslandi
og að það hefði fengið tilrauna-
leyfi frá Póst- og fjarskiptastofn-
un til að nýta tíðnisvið fyrir þriðju
kynslóðar farsímakerfi. Rætt
hefur verið við Orkuveitu Reykja-
víkur um mögulega dreifingu.
Í fréttinni sagði að til stæði að
stofna nýtt íslenskt símafyrirtæki
sem hæfi tilraunarekstur á Net-
inu á haustmánuðum. Novator
hefur fjárfest í símafélögum í
Evrópu undanfarið hálft annað
ár. Félagið á nú símafyrirtæki
í Búlgaríu, Finnlandi, Póllandi,
Tékklandi og Grikklandi.
17. júní
RÓ Á MEÐAN
ATVINNULÍFIÐ
KASTAR MÆÐINNI
„Ætti þá hvort tveggja að
vera tryggt, vinnufriður í landinu
út næsta ár og ró og stöðug-
leiki í efnahagslífinu á meðan
atvinnulífið kastar mæðinni eftir
gríðarlega uppbyggingu síðustu
missera.
Allir verða að leggja sitt
af mörkum til að tryggja stöð-
ugleika á næstu árum. Þar
verður ríkisvaldið að gera
sitt, sömuleiðis aðilar vinnu-
markaðarins, bankarnir og
sveitarfélögin svo ég nefni til
helstu aðila þessa máls. En
fyrirtækin í landinu og heimilin
öll verða jafnframt að kunna
fótum sínum forráð og hafa
hemil á neyslu sinni og eftir-
spurn eftir lánsfé.“
Geir H. Haarde forsætisráðherra
ræddi m.a. um efnahagsmál
Íslendinga í hátíðarræðu sinni til
landsmanna af Austurvelli 17.
júní. Þetta var fyrsta 17. júní
ræða Geirs.
Hann sagði að við þær að-
stæður sem nú hefðu skapast í
efnahagsmálum væri mikilvægt
að samstaða næðist milli aðila
vinnumarkaðarins og ríkisstjórn-
arinnar um aðgerðir til að hraða
því að verðbólga gangi niður og
verja jafnframt þá lakast settu
fyrir áhrifum hennar.
Geir H. Haarde flytur hátíðarræðu sína af Austurvelli.