Frjáls verslun - 01.05.2006, Blaðsíða 44
44 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 6
Á H R I F A M E S T U K O N U R N A R 2 1 - 8 0
GUÐNÝ HARÐARDÓTTIR
framkvstj. ráðningarþjónustunnar Strá-MRI.
Það fylgir því mikil ábyrgð að vera í sviðsljósi
mannaráðninga hér á landi. Það hefur Guðný verið
um langa hríð, verið atkvæðamikil og haft áhrif.
GUÐRÚN S. EYJÓLFSDÓTTIR
framkvstj. gæðamála Actavis Group.
Guðrún er framkvæmdastjóri gæðamála hjá Acta-
vis Group sem starfar í 30 löndum í fimm heims-
álfum.
GUÐRÚN LÁRUSDÓTTIR
eigandi og forstjóri Stálskipa.
Guðrún Lárusdóttir hefur lengi verið ein allra áhrifa-
mesta kona viðskiptalífsins. Hún situr í stjórn
LÍÚ og hefur gert í áraraðir. Hún löngu kunn fyrir
mikinn skörungsskap innan sjávarútvegsins. Frjáls
verslun útnefndi hana og eiginmann hennar, Ágúst
G. Sigurðsson, menn ársins í íslensku viðskiptalífi
árið 1993.
HAFDÍS JÓNSDÓTTIR
eigandi World Class og Lauga.
Hafdís er eigandi World Class og Lauga ásamt
eiginmanni sínum Birni Leifssyni. World Class er
stærsta líkamsræktarstöð landsins. Áhrifa Haf-
dísar gætir því „í ræktinni“, en meginþorri allra
stjórnenda landsins fer í líkamsrækt nokkrum sinn-
um í viku.
HELGA GUÐJÓNSDÓTTIR
sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Ólafsvíkur.
Helga er atkvæðamikil í Snæfellsbæ sem spari-
sjóðsstjóri Sparisjóðs Ólafsvíkur. Hún hefur gegnt
því starfi frá 2003. Sparisjóðurinn er sterkur í Snæ-
fellsbæ og keppir þar við Landsbankann.
JÓHANNA WAAGFJÖRÐ
framkvstj. fjármála hjá Högum
Jóhanna er framkvæmdastjóri fjármála hjá Högum
og situr í framkvæmdastjórn fyrirtækisins sem er
langstærsta verslunarfyrirtæki landsins og rekur
m.a. Bónus, Hagkaup, 10-11 og fjölda annarra
verslana. Þá er hún stjórnarmaður í Skeljungi.
KATRÍN S. ÓLADÓTTIR
framkvæmdastjóri Hagvangs.
Katrín hefur verið áhrifamikil í viðskiptalífinu til
margra ára sem yfirmaður ráðningarþjónustu Hag-
vangs. Hún er fyrrverandi formaður Félags kvenna
í atvinnurekstri, FKA.
KRISTÍN INGÓLFSDÓTTIR
rektor Háskóla Íslands.
Kristín Ingólfsdóttir kemur úr „akademíunni“ og
varð rektor Háskóla Íslands á síðasta ári. Hún hef-
ur sett háskólanum háleit markmið. Hún á samt
ennþá eftir að setja mark sitt á skólann til að
komast inn á topp-tuttugu listann.
LIV BERGÞÓRSDÓTTIR
framkvstj. Sko.
Liv varð fyrst þekkt í viðskiptalífinu sem ein af lyk-
ilmönnum Tals. Hún varð síðan framkvæmdastjóri
sölu- og markaðsmála hjá Og Vodafone og núna er
hún framkvæmdastjóri Sko, símafyrirtækis í eigu
Dagsbrúnar.
MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR
forstjóri Icepharma.
Margrét hefur verið þekkt nafn í viðskiptalífinu
í yfir 25 ár en hún varð fyrst áberandi í fréttum
hérlendis sem einn af framkvæmdastjórum olíufé-
lagsins Q8 í Danmörku. Hún var framkvæmdastjóri
makaðsmála hjá Skeljungi en fór svo yfir til Aust-
urbakka sem nú tilheyrir Icepharma.
Katrín S. Óladóttir, framkvæmdastjóri
Hagvangs.
Liv Bergþórsdóttir,
framkvæmdastjóri Sko.
Margrét Guðmundsdóttir,
forstjóri Icepharma.
Guðný Harðardóttir, framkvstj. ráðningarþjónust-
unnar Strá-MRI.