Frjáls verslun - 01.05.2006, Blaðsíða 144
144 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 6
KYNN ING
KREDITKORT HF:
Mikil útgáfa
MasterCard korta
í bönkum og
sparisjóðum
A llir bankar og sparisjóðir gefa nú út MasterCard kreditkort. Nú eru MasterCard kort á Íslandi orðin yfir 115 þúsund talsins og meirihluti þeirra gefinn út af bönkum og sparisjóðum, að sögn
Helgu S. Sigurgeirsdóttur, forstöðumanns Þjónustusviðs Kreditkorts hf.
Þekking á eiginleikum MasterCard korta er orðin góð meðal banka-
starfsmanna, enda eiga viðskiptavinir ekki að finna mun á því hvort þeir
fá sér MasterCard kort í banka, sparisjóði eða hjá Kreditkorti hf.
Af hverju MasterCard? MasterCard ferðaávísun á mikinn þátt í sókn
MasterCard að undanförnu, því hún hefur átt síauknum vinsældum
að fagna og fólk finnur að þar er örugg leið til að lækka ferðakostnað.
Þegar sótt er um ákveðin MasterCard kort fylgir 5.000 kr. MasterCard
ferðaávísun, en eftir það er fjárhæð ávísunar tengd veltu innanlands, en
söfnun er mismikil eftir tegundum korta.
Möguleikum til að nota MasterCard ferðaávís-
unina hefur fjölgað mjög undanfarið og hana má
nú nota til að greiða inn á allt millilandaflug hjá
yfir 20 ferðaskrifstofum og flugfélögum, hvort
sem um ræðir pakkaferðir, áætlunar-, leigu- eða
netflug. Auk þess er hægt er að fara í siglingu með
Smyril Line og fljúga innanlands með Flugfélagi
Íslands. Fólk áttar sig einnig betur og betur á því
hve auðvelt er að hækka ávísunina með því að
setja boðgreiðslur og aðrar fastar greiðslur heimilis-
ins á MasterCard kreditkort og nota það auk þess
til að greiða fyrir daglega neyslu. Margt smátt ger-
ir eitt stórt og fljótlega hefur safnast upphæð sem
munar um þegar greiða á fyrir ferðina.
Sérstaða ferðaávísunarinnar felst ekki síst í því
að upphæðin sem safnast er í krónum og að hægt
er að nota ávísunina, hvort sem hún hljóðar upp á
1.000 eða 100.000 krónur, til að greiða fyrir ferð
að hluta eða að fullu.
Gríðarvinsælir netklúbbar Önnur ástæða fyrir
mikilli sókn MasterCard korta að undanförnu er
að Kreditkort hf. hefur í um þrjú ár starfrækt fríð-
indaklúbba á Netinu fyrir MasterCard korthafa
og eru þeir orðnir sjö: Ferðaklúbbur, Fótbolta-
klúbbur, Bíóklúbbur, Dekurklúbbur, Tónlistar-
klúbbur, Tilboðsklúbbur og ATLAS-hópurinn.
Á www.kreditkort.is/klubbar getur fólk skráð sig
í klúbba tengda áhugamálum sínum og í kjölfar-
ið fengið spennandi tilboð og leiki senda með
tölvupósti. Þetta hefur reynst gríðarlega vinsælt
og eru fjölmörg dæmi um viðskiptavini sem fá
sér MasterCard kort eftir að hafa kynnst fríðinda-
klúbbunum.
Á vefnum www.kredit-
kort.is fást upplýsingar um
allt sem MasterCard kort-
höfum stendur til boða:
Ferðaávísun og krónu-
söfnun, fríðindaklúbb,
ferðatryggingar, SMS þjón-
ustu og staðgreiðslulán.
Helga S. Sigurgeirsdóttir, forstöðumaður Þjónustusviðs Kreditkorts.