Frjáls verslun - 01.05.2006, Blaðsíða 125
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 6 125
töku kvenna eins og hún birtist í vinnu-
markaðskönnunum - en hún er þegar mikil
í flestum löndum, m.a. á Íslandi - heldur
skiptir enn meira máli að aukin áhrif og
ítök kvenna geta verið hreyfiafl framfara
einfaldlega vegna þess að konur hafa til
þessa ekki fengið að
njóta hæfileika sinna
til fulls. Það sem hér
varðar mestu er jafn-
rétti tækifæranna
fyrir konur í starfi,
hvort sem er í einka-
rekstri eða hjá hinu
opinbera. Svipta þarf
burt þeirri ósýnilegu
hindrun - glerþakinu
- sem kemur í veg
fyrir að konur fái
þann starfsframa og launakjör sem þær
verðskulda. Konur virðast reka sig upp
undir glerþakið bæði í ríkum löndum og
fátækum.
Alþjóðaskýrslurnar tvær sem vísað er
til hér að framan sýna glöggt jákvæða
fylgni milli kynjajafnréttis og velmegunar
- milli jafnréttis og hagsældar. Það er ekki
síður athyglisvert að skýrslan frá World
Economic Forum sýnir auk þess að sam-
keppnishæfni þjóða og þar með hagvaxt-
arlíkur fylgja með jákvæðum hætti jafn-
rétti kynjanna. Tölfræðileg fylgni sannar
auðvitað ekki orsakasamhengi, en þessar
athuganir benda ótvírætt til þess að sterkt
samband sé milli bættrar stöðu kvenna og
vaxtarmegns hagkerfisins þegar til lengdar
lætur. Það er naumast tilviljun að norrænu
löndin fimm, þar sem kynjabil er minnst,
eru öll meðal þeirra tíu landa sem eru sam-
keppnishæfust þeirra 117 sem athuganir
World Economic Forum ná til.
Hvað lærdóm má draga af þessum al-
þjóðlegu samanburðarathugunum? Þau
ríki sem vegnar best veittu flest konum
kosningarétt snemma á síðustu öld og
hafa síðan auðveldað stjórnmálaþátttöku
þeirra. Þá hafa mörg þeirra á síðari árum
veitt opinberan stuðning við leikskóla og
skólaskjól til umönnunar og gæslu ungra
barna gegn viðráðan-
legu gjaldi og komið
á launuðu fæðingar-
orlofi mæðra - og í
seinni tíð feðraorlofi
- samhliða almennri
jafnréttislöggjöf og
kjara samn ing um
um sömu laun fyrir
sömu vinnu. Allt er
þetta kunnuglegt hér
á landi. Reynslan sýn-
ir jafnframt að ráð-
stafanir af þessu tagi orka hægt og seint
vegna þeirrar tregðu sem fólgin er í rót-
grónum venjum og hegðunarmunstri því
að kynjamisrétti stendur djúpum rótum
víða um lönd. Það þarf meira en stefnu-
yfirlýsingar og löggjöf til þess að sigrast
á því. Hugarfarsbreyting er það sem þarf
ásamt löggjöf og samningum. Langvinnar
breytingar á samfélaginu, sem tryggja
jafnan rétt allra til að njóta hæfileika
sinna, er eina örugga leiðin til varanlegra
framfara.
Íslendingar fá góðan vitnisburð
Íslendingar fá góðan vitnisburð í þeim
alþjóðlegu samanburðarathugunum sem
hér hefur verið vitnað til. Enn er þó mikið
verk að vinna á þessu sviði hér á landi svo
að Ísland verði framvegis samkeppnishæft
farsældarfrón.
Jafnréttismálin eru ekki venjulega talin
meðal þeirra málaflokka sem varða efna-
hagsframfarir en þegar að er gáð eru þau
afar mikilvæg fyrir þjóðarhag.
Það er auður í krafti kvenna.
Það er naumast tilviljun
að norrænu löndin fimm,
þar sem kynjabil er
minnst, eru öll meðal
þeirra tíu landa sem eru
samkeppnishæfust þeirra
117 sem athuganir World
Economic Forum ná til.
AUÐUR Í KRAFTI KVENNA
FARSÆLD
Röð tíu fremstu ríkja
1. Noregur
2. Ísland
3. Ástralía
4. Lúxemborg
5. Kanada
6. Svíþjóð
7. Sviss
8. Írland
9. Belgía
10. Bandaríkin
KYNJAJAFNRÉTTI
Röð tíu fremstu ríkja
1. Svíþjóð
2. Noregur
3. Ísland
4. Danmörk
5. Finnland
6. Nýja-Sjáland
7. Kanada
8. Bretland
9. Þýskaland
10. Ástralía
SAMKEPPNISHÆFNI
Röð tíu fremstu landa
1. Finnland
2. Bandaríkin
3. Svíþjóð
4. Danmörk
5. Tævan
6. Singapúr
7. Ísland
8. Sviss
9. Noregur
10. Ástralía
Löndunum er raðað eftir
einkunn samkvæmt far-
sældarvísitölu UNDP,
Human Development
Index. Heimild: United
Nations Development
Programme: Human
Development Report 2005,
september 2005
Ríkjum sem hafa minnst
kynjabil er raðað efst.
Heimild: World Economic
Forum:Women´s
Empowerment: Measuring
the Global Gender Gap,
maí 2005
Heimild: World Economic
Forum: The Global Competiti-
veness Report 2005-2006,
September 2005