Frjáls verslun - 01.05.2006, Blaðsíða 98
KYNN ING
Aukin tengsl og þjónusta
við viðskiptavini
Orkuveita Reykjavíkur er byggð á sterkum og traustum grunni í framleiðslu og dreifingu á orku. Stefnan hefur alltaf verið að sjá viðskiptavinum fyrir ódýrri vistvænni orku sem framleidd er á
hagkvæman hátt úr endurnýjanlegum íslenskum orku-
lindum,“ segir Ingibjörg Valdimarsdóttir sem hefur starf-
að hjá Orkuveitunni í fjögur og hálft ár við að byggja
upp markaðs- og sölustarfsemi fyrirtækisins.
Meginhluti raforkunnar sem Orkuveitan dreifir og
selur er unninn í vatnsaflsstöðvum Landsvirkjunar en
hún er einnig framleidd í gufuaflsstöð OR á Nesjavöll-
um í Grafningi sem og í Andakílsvirkjun og í Elliðaár-
stöð. Orkuveitan nýtir vatn af fjórum lághitasvæðum:
Laugarnessvæði og Elliðaársvæði í Reykjavík og Reykjum og Reykjahlíð
í Mosfellsbæ auk háhitasvæðisins að Nesjavöllum. Orkuveitan á enn-
fremur stærstu vatnsveitu landsins sem þjónar rúmlega 82% íbúa höfuð-
borgarsvæðisins og er eitt stærsta matvælafyrirtæki landsins. Vatnsveita
Reykjavíkur, sem síðar sameinaðist Orkuveitunni, varð fyrsta vatnsveita
Norðurlanda til að hljóta vottun skv. ISO-9001 staðlinum árið 1999.
ORKUVEITA REYKJAVÍKUR:
Af öðrum veitum OR má nefna Fráveitu Reykjavíkur sem fluttist
til hennar í júlí 2005 en stærsta verkefni hennar og eitt mesta umhverf-
isbótaverkefni hérlendis er hreinsun strandlengjunnar við Reykjavík.
Nýtt hlutverk OR á sviði upplýsinga- og fjarskipta er
undir hatti Gagnaveitunnar en OR hefur byggt upp ljós-
leiðaranet á suðvesturhluta landsins, allt frá Akranesi,
austur fyrir fjall og til Vestmannaeyja.
Verðsveigjanleikinn ekki sá sem margir bjuggust
við „Helsta breyting á orkuumhverfinu sl. ár er sam-
keppni í sölu og framleiðslu raforku. Við teljum hana
á margan hátt jákvæða en vegna fákeppni í raforkufram-
leiðslu er verðsveigjanleiki ekki sá sem margir bjuggust við enda fram-
leiðir Landsvirkjun meginhluta raforkunnar í landinu.
Áhersla er lögð á það hjá okkur að efla samskipti og tengsl við við-
skiptavinina og við einbeitum okkur að því að sinna þörfum þeirra og
óskum. Margir reyndir sérfræðingar á sviði orkumála starfa hjá OR og
reynslu þeirra er miðlað til viðskiptavinanna svo að þeir geti nýtt sem
best orkuna sem þeir kaupa. Öflugt þjónustuver sinnir einstaklingum
og heimilum af kostgæfni og sölusvið þjónar stærri fyrirtækjum. Stærstu
fyrirtækin hafa einnig eigin tengilið hjá sölusviðinu sem sinnir öllum
þeirra orkumálum.
Við viljum að viðskiptavinir okkar njóti þeirra lífsþæginda sem
orkan veitir og hafi sem minnst fyrir því, eða - ekkert vesen, og allt í
góðu lagi !!!“
Mikil áhersla er lögð
á að efla tengsl við
viðskiptavinina og
sinna þörfum þeirra
og óskum.
Svona viljum við hafa það
Þegar maður tekur ilmandi steikina út úr ofninum, dimmir
aðeins ljósin fyrir rómantíska kvöldstund, kveikir á græjunum
þá hugsar maður ekki um það hvernig rafmagnið verður til
og hvernig því er komið inn á heimilið. Maður nýtur þess bara.
Núna geta allir landsmenn keypt rafmagnið frá Orkuveitu
Reykjavíkur. Þá er ekkert vesen og allt í góðu lagi.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
O
R
K
3
30
10
0
6.
20
06
Ingibjörg Valdimarsdóttir,
deildarstjóri Markaðsdeildar
Orkuveitunnar.