Frjáls verslun - 01.05.2006, Blaðsíða 178
178 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 6
Hildur Inga Björnsdótt-ir, tísku- og grafískur hönnuður, stofnaði
í ársbyrjun fyrirtækið Xirena
ehf. og um næstu mánaðamót
opnar hún nýja sérverslun fyrir
konur við Skólavörðustíg, sem
selur hönnunarfatnað eftir hana
undir vörumerkinu Xirena.
„Verslunin endurspeglar létt-
leika norrænnar náttúru, s.s.
haf, ís og vind, þar sem áhersla
er lögð á að viðskiptavinir
geti slakað á í amstri dagsins
og notið líðandi stundar. Þar
mun einnig fást ítalskur hönn-
unarfatnaður ásamt þægilegum
fatnaði frá Dimensione Danza
sem sækir áhrif til alhliða dans-
menningar.
Eftir að ég kom heim frá
Ítalíu, þar sem ég dvaldist
í fjögur ár, hef ég starfað á
tímaritinu Nýju lífi sem graf-
ískur hönnuður, stílisti og
blaðamaður. Ég gekk þó alltaf
með þann draum í maganum
að hanna eigin fatnað. Síðan
lét ég loksins til skarar skríða
og pantaði mér efni frá Ítalíu
og byrjaði að sauma. Samhliða
vann ég að viðskiptaáætlun hjá
Brautargengi í Iðntæknistofnun
og fékk ég verðlaun fyrir bestu
viðskiptaætlunina.“
Hildur segir hugmyndina
að fatnaðinum hafi kviknað á
námsárum hennar á Ítalíu: „Ég
saknaði sárlega íslenskrar nátt-
úru og fór því að líkja eftir
henni með sérstæðri text-
ílhönnun. Konur geta þannig
íklæðst náttúrunni með fatn-
aðinum og orðið að eins konar
gyðjum, enda dregur Xirena
nafn sitt af hafmeyjum.
Til að tryggja hágæðavöru
fer öll framleiðslan fram á
Norður-Ítalíu. Ég hef því verið
með annan fótinn þar und-
anfarið til að fylgja henni eftir
en allur undirbúningur mið-
ast við að fatnaðurinn fari á
erlendan markað. Vefsíðan
xirena.com er þegar tilbúin
og svo verður farið í frek-
ari markaðsvinnu um leið og
fyrsta hönnunarlínan kemur
til landsins, en von er á henni
á næstu dögum.“
Hildur er gift Jóhanni Krist-
jánssyni, framkvæmdastjóra
Iceland Travel, sem er jafn-
framt meðeigandi hennar í
Xirena ehf., og eiga þau eina
dóttur saman, Æsu.
Eins og gefur að skilja er
hönnun ofarlega á blaði þegar
kemur að áhugamálum: „Ég hef
mikinn áhuga á allri hönnun
og listum og við hjónin förum
mikið á leiksýningar. Ég hef
einnig mjög gaman af dansi og
íþróttum og keppti meðal ann-
ars í frjálsum íþróttum fyrir
Ármann hér áður fyrr.“
Vegna opnunar Xirena-
verslunarinnar fer fjölskyldan
ekki í langt frí þetta sumarið
en reynir að nýta helgarnar í
styttri ferðir: „Við höfum bæði
mjög gaman af því að ferðast
um landið og viljum yfirleitt
nýta hásumarið til þess. Síð-
asta sumar fórum við þó allar
systurnar, sem erum fjórar
talsins, ásamt fjölskyldum
okkar til Toscana á Ítalíu, þar
sem við leigðum risastórt sum-
arhús í litlu fjallaþorpi. Það
var alveg meiriháttar.
framkvæmdastjóri Xirena
HILDUR INGA BJÖRNSDÓTTIR
Hildur Inga Björnsdóttir
mun á næstunni opna
verslun með eigin hönnun;
á myndinni klæðist hún
kjól hún hannaði.
Nafn: Hildur Inga Björnsdóttir.
Fæðingarstaður: Reykjavík, 16. 5. 1965.
Foreldrar: Björn H. Jóhannsson og Þrúður
G. Sigurðardóttir.
Maki: Jóhann Kristjánsson.
Börn: Æsa, tæplega 5 ára, og þrjú fóstur-
börn: Nadía, 12 ára, Arnór Tumi, 14 ára,
og Viktoría, 18 ára.
Menntun: Grafísk hönnun frá MHÍ, mynd-
listarnám í Accademia di Belle Arti di
Brera í Mílanó og master í tískuhönnun
frá Domus Academy í Mílanó.
FÓLK
Ertu að hugsa um að eignast dótturfyrirtæki?
Við lögum okkur að þínum þörfum!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Það kostar peninga að stofna fjölskyldu. Vildarþjónusta Sparisjóðsins aðstoðar
þig við að skipulegg ja fjármálin betur þannig að þú njótir hag-
stæðari kjara. Sparisjóðurinn veitir þér svigrúm og öryggi til að takast á við
ný og spennandi verkefni. Við erum alltaf tilbúin að hlusta á þínar þarfir því í
okkar huga er viðskiptavinurinn mikilvægasta fjárfestingin.