Frjáls verslun - 01.05.2006, Blaðsíða 128
128 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 6
Styrkleikar og veikleikar kvenstjórnenda
Eins og þegar hefur komið fram hafa kven-
stjórnendur oft tilhneigingu til að vera
lýðræðislegir stjórnendur. „Konur koma úr
miklu láréttari menningu en karlar, menn-
ing þeirra hefur í gegnum tíðina lagt meiri
áherslu á stigveldi. Þessi lárétti stjórnunar-
stíll gerir ráð fyrir að fleiri í fyrirtækjunum
eða skólunum taki þátt í ákvörðunum
og hlustað er vel á alla. Það er lykillinn
að góðum stjórnunarháttum samkvæmt
flestum kenningum. Karlar, sem eru góðir
stjórnendur, gera þetta líka.“
Einn vandinn við kynjun leiðtogahug-
taksins er að sumir karlmenn viðurkenna
ekki konur sem yfirmenn sína. Guðný
segir að oft sé það tengt uppeldi þeirra.
„Kvenskólastjórar upplifa þetta oft þannig
að karlarnir vilja segja þeim til. Ég man
það vel sem fyrrverandi þingkona Kvenna-
listans þegar stundum var sagt við okkur:
„Stelpur, maður gerir þetta ekki svona. Þið
eigið að hafa formann í stjórnmálaafli eða
gera þetta svona og hinsegin.“ Það er mikil-
vægt að konur, sem eru stjórnendur, fái að
gera hlutina á þeim forsendum sem þær
finna að hæfa stjórnunarstíl þeirra. Með
því að troða þeim inn í önnur mynstur þá
verða þær ekki í takt við sjálfar sig og trú-
verðugar. Vegna þess að kvenleikinn hefur
verið lægra settur en karlmennskan þá er
það að virða kvenyfirmann einn vandinn
sem karlmenn glíma við.
Styrkleikar kvenna sem stjórnenda
liggja oft í góðri samskiptafærni, góðri
menntun og síðast en ekki síst í að gefa
fyrirtæki ímynd breiðari forystu sem er
að verða æ sterkari lýðræðisleg krafa úti
um allan heim. Ég man í fljótu bragði
þrennt sem veikir konur í þessari stöðu.
Það fyrsta er að þær hafa oft lítinn áhuga
á stjórnmálum og nenna ekki að vera í póli-
tískum plottum. Það er hins vegar oft mik-
ilvægt fyrir fólk í lykilstöðum. Í öðru lagi
er að konur eru ekki eins áhættusæknar,
en eitt af því sem er talið mikilvægt að
kenna konum í stjórnunarnámi er að taka
áhættu. Þriðji veikleikinn er að þær eru
stundum ekki með eins harðan skráp og
karlarnir sem líklega eru uppeldisfræði-
legar skýringar á og því líklegt að breytist
með tímanum. Konur virðast hafa meiri
tilhneigingu til að taka hlutina inn á sig.
Við sjáum til dæmis merki þess að konur
endast illa í stjórnmálum, ekki síst á sveit-
arstjórnarstiginu. Þær fá fyrr en karlarnir
nóg af þessu plotti og þessum látum. Ég
held að það tengist því að þær ná ekki að
búa sér til þennan harða skráp eins fljótt
og karlarnir.“
Tengslanet mikilvægt
Í Bandaríkjunum og víðar er það talið vera
mikilvægt ímyndaratriði fyrir fyrirtæki að
hafa margbreytileika í stjórnuninni - eða
breiða forystu. Það er þess vegna talið
mjög mikilvægt að stjórnendur fyrirtækja
séu ekki bara af báðum kynjum heldur af
öllum kynþáttum.
„Þessi krafa virðist koma aðeins síðar
inn í fyrirtæki hér þó að konur séu farnar
að banka mjög fast á dyrnar. Það virðist
vera mjög erfitt að breyta þessum litla
klúbbi sem situr hér í stjórnum margra
fyrirtækja. Oft er það tengt eignarhlut í fyrir-
tækjunum eða nánum pólitískum tengslum.
Fyrirtækin virðast ekki átta sig á af hverju
þau eru að missa bæði hvað varðar færni
kvennanna og jafnréttisímyndina.“
Guðný bendir á að karlar, sem eru í
sambærilegum stöðum, haldi hópinn; fari
saman í veiði eða eru saman í klúbbum.
„Konurnar eru þá oft utanveltu og þurfa að
finna önnur atriði sem henta þeim betur til
að vera í góðum tengslum. Á námskeiðinu
í háskólanum leggjum við mikla áherslu á
mikilvægi þess að konur fái fyrirmyndir,
eða mentor, á vinnustað, þær fái að fylgjast
með, að þeim sé kennt að verða yfirmenn
og að þær hafi sterkt tengslanet. Konur
þurfa að styrkja hver aðra og fylgjast vel
með, til dæmis varðandi launaupplýsingar.
Þær gera oft minni launakröfur og eru til-
búnar til að gefa starfinu þann forgang sem
ætlast er til en samt komast þær ekki að.
Þess vegna er ráðstefna eins og Tengslanet
- Völd til kvenna, sem haldin hefur verið á
Bifröst undanfarin ár, mjög mikilvæg fyrir
konur sem stjórnendur og leiðtoga.“
Leiðtoginn
Á námskeiðinu „Konur og karlar sem leið-
togar og stjórnendur“ er gerður greinar-
munur á leiðtogum og stjórnendum. ,,Þó
konur séu ekki margar stjórnendur, sérstak-
lega ekki toppstjórnendur í fyrirtækjum,
þá eru margar þeirra leiðtogar innan fyr-
irtækja og stofnana. Ég held að konurnar
séu fleiri þar en við áttum okkur á. Leið-
togahlutverkið er ekki bundið við starf
eða stöðu heldur getur viðkomandi verið
leiðtogi í stéttarfélagi, fagfélagi, á vinnu-
stað eða í stjórnmálum. Það er hlustað á
leiðtoga. Þetta eru oft aðilar sem tekið er
mikið mark á og sem fólk lítur upp til og
þeir taka oft frumkvæði og framkvæma
hlutina. Það er mikilvægt að fólk átti sig á
að það eru ekki bara stjórnendur og stjórn-
endastöður sem eru mikilvægar. Það eru
ekki síður leiðtogarnir. Það er stundum
sagt að stjórnandinn kunni að gera hlutina
rétt en leiðtoginn geri réttu hlutina. Bæði
hlutverkin eru mikilvæg. Stundum gegnir
sami einstaklingurinn þeim, samanber hug-
takið leiðtogastjórnun, en stundum ekki.
Það er mikilvægt að konur hafi samkynja
fyrirmyndir og mentora á vinnustað þar
sem yngra fólk er þjálfað upp til þess
að verða bæði leiðtogar og stjórnendur.
Þarna held ég að fyrirtæki geti bætt sig
töluvert.“
Guðný bendir á mikilvægi þess að minna
konur á að þær verða að vera þær sjálfar.
„Þeim verður að líða vel á vinnustaðnum,
í eigin skrokki og á eigin forsendum. Am-
anda Sinclair vitnar í Simone de Beauvoir
í nýlegri bók sinni um stjórnun sem sagði
eitthvað á þessa leið: „Karlar geta nýtt sér
kynþokka sinn, útlit sitt og fötin til að efla
völd sín. En konur þurfa helst að útiloka
kynþokkann svo þær verði ekki álitnar
einhverjar ljóskur eða daðrarar og fara í
karlmannsföt. Þar af leiðandi eru þær ekki
eins heilsteyptar og sterkar.“ Konur verða
að fá að geta notað allan sinn styrkleika til
að geta skinið sem leiðtogar og stjórnend-
ur og muna að það er ekki bara spurning
um að vera leiðtogi eða stjórnandi heldur
að virkja sem flesta til þátttöku í stefnu-
mótun og hafa leiðtogateymi. Góð nútíma-
fyrirtæki eiga að virka sem náms- eða
þekkingarsamfélög fyrir sem flesta starfs-
menn. Viðkomandi verður betri stjórnandi
ef hann getur fengið sem flesta til þess að
vera ábyrga. Þá ganga hlutirnir best.“
GSM sími, Quad-Band með Bluetooth fyrir handfrjálsan búnað
GPRS/EDGE netsamband sem virkar á öllum GSM kerfum
Outlook heldur utan um tölvupóst, tengiliði, dagatal og verkefnalista
Hægt er að skoða PDF og PowerPoint skjöl
Word og Excel hugbúnaður gerir þér kleift að vinna á ferðinni
Windows Media Player til að horfa á video og hlusta á MP3
Skoðaðu vefsíður í Internet Explorer hvar sem er
GPS staðsetningartæki með TomTom kortahugbúnaði
Myndavél með flassi sem getur tekið hreyfimyndir
Mikið úrval viðbótar hugbúnaðar og tölvuleikja
Stundum er gott að hafa skrifstofuna með sér
og geta svarað símtölum og áríðandi tölvupósti
hvar sem er í heiminum. Með HP iPAQ hw6515
geturðu verið í þráðlausum samskiptum við um-
heiminn án kostnaðarsamrar viðbótarþjónustu.
Sími + Lófatölva + Internet + GPS staðsetningartæki
Opin kerfi ehf. er eini viðurkenndi innflutnings-, sölu-,
og þjónustuaðili á tölvubúnaði frá HP á Íslandi og er í
nánu samstarfi við sölu- og þjónustuaðila um land allt.www.fartolvur.is
HP iPAQ hw6515
kr. 69.900
OK Frjals Veslun.indd 1 13.6.2006 21:55:25