Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2006, Page 22

Frjáls verslun - 01.05.2006, Page 22
22 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 6 D A G B Ó K I N 16. júní Ingimundur seðlabankastjóri Ingimundur Friðriksson verður seðlabankastjóri tímabundið til loka ágúst en Jón Sigurðsson, nýr iðnaðar- og viðskiptaráðherra, verður þá í launalausu leyfi. Ingi- mundur er aðstoðarbankastjóri Seðlabankans. 16. júní Björgólfur Thor og Kári á ráðstefnu Forbes Björgólfur Thor Björgólfsson og Kári Stefánsson voru á meðal 30 fyrirlesara á ráðstefnu sem tímaritið Forbes stóð fyrir í Kaup- mannahöfn. Þeir voru í hópi fjöl- margra þekktra forstjóra stórfyrir- tækja og athafnamanna í Evrópu, auk þess sem Ritt Bjerregaard, borgarstjóri Kaupmannahafnar, Per Stig Möller, utanríkisráðherra Danmerkur, og Jóakim Danaprins voru á meðal viðstaddra. Eigandi tímaritsins og aðalritstjóri, Steve Forbes, var einnig gestur á ráð- stefnunni. 16. júní Kaupþing í Noregi tapar 121 milljón Norskur fjölmiðlar sögðu frá því að arabískum fjárfesti hafi tekist að blekkja Kaupþing í Noregi og selt hluti sem hann hefði ekki átt fyrir 10 milljónir dollara, eða um 121 milljón króna tap. Jan Petter Sissener, forstjóri Kaupþings í Noregi, segist telja að peningarn- ir skili sér aftur. Arabíski fjárfestir- inn hafði samband við Kaupþing í Noregi og vildi selja umrædda hluti. Atvinnurekandi arabíska fjár- festisins í Abu Dhabi hefur verið kærður. 17. júní 38 milljarðar fyrir fasteignir Magasin Er Baugur að selja sjálfum sér fasteignir Magasin du Nord? Þannig spurðu ýmsir þegar fréttir bárust um að Baugur Group ætl- aði að selja fasteignir Magasin du Nord til danska fasteignafé- lagsins Atlas Ejendomme, en það er í eigu fasteignafélagsins Stoða, sem er hluti af samstæðu Baugs. Samkvæmt fréttum í Danmörku er þessi sala metin á 38 milljarða króna og mun um að ræða stærstu fasteigna- viðskipti, sem fram hafa farið í Danmörku í ár. Eftir þessi við- skipti verður Atlas Ejendomme eitt allra stærsta fasteignafélag Danmerkur. 19. júní Björgólfur Thor inn á íslenska símamarkaðinn Morgunblaðið sagði frá því að Novators, fjárfestingarfélag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, væri að hefja starfsemi á Íslandi og að það hefði fengið tilrauna- leyfi frá Póst- og fjarskiptastofn- un til að nýta tíðnisvið fyrir þriðju kynslóðar farsímakerfi. Rætt hefur verið við Orkuveitu Reykja- víkur um mögulega dreifingu. Í fréttinni sagði að til stæði að stofna nýtt íslenskt símafyrirtæki sem hæfi tilraunarekstur á Net- inu á haustmánuðum. Novator hefur fjárfest í símafélögum í Evrópu undanfarið hálft annað ár. Félagið á nú símafyrirtæki í Búlgaríu, Finnlandi, Póllandi, Tékklandi og Grikklandi. 17. júní RÓ Á MEÐAN ATVINNULÍFIÐ KASTAR MÆÐINNI „Ætti þá hvort tveggja að vera tryggt, vinnufriður í landinu út næsta ár og ró og stöðug- leiki í efnahagslífinu á meðan atvinnulífið kastar mæðinni eftir gríðarlega uppbyggingu síðustu missera. Allir verða að leggja sitt af mörkum til að tryggja stöð- ugleika á næstu árum. Þar verður ríkisvaldið að gera sitt, sömuleiðis aðilar vinnu- markaðarins, bankarnir og sveitarfélögin svo ég nefni til helstu aðila þessa máls. En fyrirtækin í landinu og heimilin öll verða jafnframt að kunna fótum sínum forráð og hafa hemil á neyslu sinni og eftir- spurn eftir lánsfé.“ Geir H. Haarde forsætisráðherra ræddi m.a. um efnahagsmál Íslendinga í hátíðarræðu sinni til landsmanna af Austurvelli 17. júní. Þetta var fyrsta 17. júní ræða Geirs. Hann sagði að við þær að- stæður sem nú hefðu skapast í efnahagsmálum væri mikilvægt að samstaða næðist milli aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórn- arinnar um aðgerðir til að hraða því að verðbólga gangi niður og verja jafnframt þá lakast settu fyrir áhrifum hennar. Geir H. Haarde flytur hátíðarræðu sína af Austurvelli.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.