Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1944, Blaðsíða 16

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1944, Blaðsíða 16
6 TIMARIT MALS OG MENNINGAR sýknt og heilagt. Enguni páfa dytti í hug að fyrirskipa Te Deum á hverjum degi árið um kring. Auk þess sem Ó guð vors lands er hátíðalofsöngur, en ekki þjóðsöngur, hefur lagið sem vænta mátti fæst þau eigindi, sem geti gert það alþýðlegt. Til dæntis hefur lagið svo vítt tónsvið, hvorki meira né minna en þrettán tón- bil, að það er óhæft til söngs fyrir ahnenning. Enginn þjóðsöngur í víðri veröld hefur svo óhagkvæmt tónsvið. Það er leitun á manni sem getur sungið svo hátt upp og djúpt niður, enda er lagið jafnan stórilla flutt, nema af völdum kórkröftum, hljómsveit eða menntuðum tenórum. Á okkar tímum, þegar hafn- ing sannþjóðlegra menningarverðmæta til æðra forms er boðorð dagsins, finnst oss sem ofmjög beri í þessu lagi á andspyrnunni gegn íslenzkri tón- menning fortímans, en slíkt þarfaverk þótti að leggja hana fyrir róða á 19. öld, að þeir menn hafa verið tignaðir brautryðjendtir, sem þá tókst að drepa íslenzkan kirkjusöng og innleiða danskan á Islandi. Island geymdi í fórum sínum þjóðlega tónlist, þótt frumstæð væri sakir hljóðfæraleysis og fátæktar, fornan söngstíl, hundruð tónstefja sem töluðu máli aldanna, en dansklærðir tónlistarmenn undir áhrifum þýzkrar rómantíkur lögðu allt kapp á að búa sem þöglasta gröf þessu mikla yrkisefni þjóðarinnar, sem er voldugra öllum öðrurn norrænum tónlistaryrkisefnum samanlögðum. Þótt 0, guð vors lands hafi sérstaka fegurð til að bera ef það er flutt á hálistrænan hátt, skortir það öll einkenni íslenzks lags. Á þessu ári standa fyrir dyrum þáttaskipti í sögu vorri, jafnvel enn meiri en þegar vér þágum stjórnarskrá úr danskri hendi 1874 undir einkunnarorð- inu: vér kvökum og þökkum í þúsund ár. Á þessu ári mun að vísu fara vel á því að syngja einu sinni á Þingvöllum hátíðalofsönginn til guðs í minningu ársins 1874. En það er ekki nóg. Okkur vantar þjóðsöng, lag og Ijóð nýja tímans, einfalt, sterkt en þó þokkafullt, helgað landi, þjóð, sögu og framtíð — eins og vér hugsum nú á enn einum morgni þjóðarsögunnar. Árið má helzt ekki líða svo, að íslenzk skáld og íslenzkir tónsmiðir láti undir höfuð leggjast að gefa þjóðinni slíkan söng. H. K. L. Vantctr leikhús í nútímastíl Uni aldamótin síðustu, eða fyrir fjörutíu árum, þegar Reykjavík hafði 5000 íbúa, voru hér fjögur samkomuhús fyrir utan kirkjur og gildaskála, Iðnó, Báran, Gúttó og Fjalakötturinn. Þau höfðu sæti fyrir þúsund manns. Tvö þeirra voru leikhús, Iðnó og Fjalakötturinn. Nú er bærinn meira en átta sinn- um stærri, en samkomuhúsum hefur fækkað, ekki aðeins þótt bíóin séu undan skilin, sem voru óþekkt fyrir fjörutíu árum, heldur þótt þau séu meðtalin. Báran og Fjalakötturinn, sem liöfðu um 500 sæti, hafa verið lögð niður sem skemmtistaðir Reykvíkinga. Iðnó garnla er eina leikhúsið. Ef við byggjum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.