Tímarit Máls og menningar - 01.05.1944, Blaðsíða 33
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
23
Hinn nafnlausi hermaður hvílir í leghöll sinni undir bliknuSu
laufi heiSurssveiganna. A andliti hans er engin spurning, enginn
efi. Hann var af þeirri kynslóS, sem spurSi einskis, er henni var
stefnt til víga. Hann bara barSist og hneig í valinn aS hetjusiS,
riddari án ótta og ámælis.
Enn mun ekki vera fariS aS safna efni í leghöll handa hinum
ókunna hermanni þessarar heimsstyrjaldar. ViS vitum ekki, hvern-
ig þeir, sem komast lífs af úr þessari styrjöld, munu heiSra minn-
ingu hins nafnlausa hermanns hennar. En viS mundum ekki þurfa
aS leita aSstoSar framliSinna til aS forvitnast um þaS, hvernig búa
ætti um bein hans. Því aS viS þekkjum ókunna hermanninn. Hann
var af okkar kyni. Þegar hann var í vöggu bárust síSustu þórdunur
fyrri heimsstyrjaldarinnar aS eyrum hans. Þegar hann komst á legg
sáum viS hann ráfa klæSlítinn og horaSan á götum stórborganna,
eSa þramma meS léttan mal á þjóSvegunum. LífiS vildi lítt sinna
honum og kröfum hans, en loks fékk hann fastavinnu í þjónustu
dauSans. í þeirri þjónustu reyndist hann engu síSri en hinir fyrri
frændur hans. En þegar hann féll brá fyrir þessari spurningu í svip
hans: Til hvers hef ég barizt og fallið? Þeirri spurningu verSa þeir
aS svara, sem eiga eftir aS byggja honum leghöllina.
1
ÞaS fær engum dulizt, aS eftir því sem nær dregur aS lokum
þessarar styrjaldar, ber æ meir á nokkrum kvíSa meSal manna um
þaS, hvaS viS tekur, þegar friSur verSur. Þessi kvíSi er ekki á-
stæSulaus. En hans verSur vart bæSi meSal þeirra þjóSa, sem ó-
sigur er húinn, og hinna, sem telja sér sigurinn vísan. Menn gera
sér þaS meira eSa minna ljóst, aS viSfangsefni friSarins munu
verSa engu viSaminni en tröllaátök styrjaldarinnar. FriSaróttinn
er ríkur í herhúSum allra stétta. Þær vita aS skuldaskiladagur friS-
arins nálgast, er stríSsloforSin falla í gjalddaga. Menn vita af gam-
alli reynslu, aS á þeim degi hafa oft orSiS vanskil.
Stórstyrjaldir síSustu hálfrar annarrar aldar hafa allar veriS
þess eSlis, aS múgurinn, öll alþýSa manna, hefur orSiS virkur
þátttakandi í þeim. HiS borgaralega þjóSfélag, sem boSaSi al-
mennt frelsi, almennt lýSræSi og almennt jafnrétti, varS, er stundir