Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1944, Síða 67

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1944, Síða 67
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 57 að játa, að í þessu formi muni kvantitetslögmálið vera í gildi í Ráðstjórnarríkjunum sem annars staðar á byggðu bóli“. Hann tekur meira að segja undir það, sem ég sagði, að staðreynd sú, sem líkingin tákni, sé mjög svo einföld, en finnst það jafnframt galli á henni og líkir benni við jöfnurnar 4 = 2 • 2, að því er mér skilst í litilsvirðingarskyni. Það er að sjálfsögðu ekki mikil speki, að tvisvar sinnum tveir séu fjórir, en það þýðir þó, að tvisvar sinnum tveir geta ekki verið fimm eða neitt annað en fjórir og að þýðingar- laust er að ætla að sýna fram á það. Eg hef aldrei haldið því fram, að torskilinn vísdómur sé fólginn í jöfnunum P1 • U1 -)- P2 • U2 = Vm • V, en þær nægja þó til þess að skýra, að sú staðhæfing dóm- prófastsins í Kantaraborg, að vöruverð í Rússlandi geti ekki breytzt eftir gjaldeyrisriiagninu í umferð, er röng. Ef prófasturinn hefði sagt, að í Rússlandi væri reynt eftir megni að láta gjaldeyrismagn- ið ekki hafa áhrif á vöruverðið, hefði ég ekkert liaft við ummæli hans að athuga. Eins og ég benti á í fyrra svari mínu, er ekki um að ræða frjálsa verðmyndun í Rússlandi, og er leitazt við að láta misræmi, sem verður milli gjaldeyrismagnsins (P og P1) og vöru- magnsins (Vm) ekki jafnast með breytingum á verðinu (V), heldur þannig, að látið er koma til vöruskorts (lækkunar á U1 eða U2), en það er alkunna, og Sovétstjórninni til einskis lasts, að slíkt hefur ekki tekizt að fullu. Rússar urðu á sínum tíma að þola verðbólgu, og vöruskorturinn hefur leitt til viðskipta á „svörtum markaði“, þar sem verðið er hærra en á hinum opinbera, en við slíku er jafnan mjög hætt og ómögulegt að koma í veg fyrir tilhneigingu til slíks, meðan mannleg náttúra er eins og hún er nú. í staðhæfingu dóm- prófastsins felst hins vegar neitun á því, að til slíks þurfi að koma. Sú staðhæfing, að gjaldeyrismagnið hafi alls engin áhrif á vöru- verðið í Rússlandi, er röng, af því að hún stangast við staðreyndir, og staðhæfingin, að verðið geti ekki breytzt af þessum sökum, er enn rangari, því að þá er fullyrt, að t. d. stórkostlegur skortur á einhverri vöru geti alls ekki leitt til þess, að vara þessi sé nokkurn tíma seld manna á milli við hærra verði en því, sem lögákveðið er af yfirvöldunum. Slík staðhæfing er svo fávísleg, að sá, sem varpar henni fram, lilýtur að hafa hugann við annað fremur en það, sem gerist á jörðu hér. Ég hefði raunar ekki þurft að vísa í neitt hag-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.