Tímarit Máls og menningar - 01.05.1944, Page 28
18
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
öfl lífsins, aflið, er dregur klukku lífverunnar upp jafnóðum og hún
er að ganga út; afl fiskjarins í sjónum, sem á betri tæki að knýja sig
áfram með en sjálf Mauretania; þróttur lífveranna til þess að auk-
ast og margfaldast, svo að ein einasta ósýnileg sóttkveikja getur á
fáeinum klukkustundum orðið að milljónaher skaðsamlegra óvina.
Annað, raunar mjög gamalt undrunarefni má finna í óendan-
leika tíma og rúms. Það tekur ljósið 8 mínútur að komast til vor
alla leið frá sólu, og fer það þó með 300.000 km. hraða á sekúndu.
Þannig sjáum vér og hina næstu sólstjörnu þar fyrir utan í ljósi
því, sem frá henni leið fyrir 4 árum, og sjálfa Vegu eins og hún
var fyrir 27 árum; en flestar þær stjörnur, er vér sjáum berum
augum nú, eins og þær voru í byrjun 17. aldar, þá er Galileó Galilei
tók að horfa á þær í kíki sínum. Þannig er það ekki neitt smáræðis
ríki, sem vér erum þegnar í.
Þriðja tilefnið til skynsamlegrar undrunar er það, hve hlutirnir
eru fíngerðir og þó margbrotnir. Oss tekur að gruna, að til séu ó-
endanlegir möguleikar á því að skapa margbrotna einstaklinga.
Fyrir meira en tvö þúsund árum gat Aristóteles talið upp um fimm
hundruð tegundir dýra, en nú eru taldar og nefndar tuttugu og
fimm þúsund mismunandi tegundir hryggdýra, og fjórðungur úr
milljón, eða eins og sumir fullyrða, hálf milljón hryggleysingja ó-
líkra tegunda. Því að „allt hold er ekki hið sarna hold, heldur er ein
tegund holds í mönnum, önnur í dýrum, annað í fiskum og enn
annað í fuglum.“ Það er annað blóð í hestinum en í asnanum, og
oft má þekkja fugl á einni fjöður og fisk af hreistri hans. Menn eru
sennilega ekki mjög upp með sér af þeirri staðreynd, að í blóði
meðalmanns séu tuttugu og fimm billjónir súrefnis-fíkinna rauðra
blóðkorna, sem ef þau væru flött út myndu þekja 3300 fermetra;
en það er mikilvæg staðreynd, að í heila manns, sem er aðalstarf-
færi anda hans, eru níu þúsund milljónir heilafruma, þ. e. allt að
fimm sinnum fleiri en allir íbúar jarðar og vissulega miklu fleiri
en sá sami heili nokkuru sinni færir sér í nyt.
Þannig hljótum vér að kannast við, að vér erum geigvænlega
og undursamlega gerðir. Líkami vor er orðinn til úr milljónum
fruma, og þó er svo mikil einfeldni í margfeldninni, að hver fruma
er í aðalatriðum af svipaðri gerð og allar hinar. Innan hins slím-