Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1944, Side 58

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1944, Side 58
43 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Andlit Bózu ljómaði, þegar hún talaði uin Oton og starfsáætlanir Ba-tsje og hennar. Svo þagði hún, og snögg breyting varð á svip hennar. Hún sýndist miklu eldri en seytján ára, alvarleg og gröm. Rödd hennar, sem verið hafði full af fögnuði, varð hörð og hnit- miðuð. Við Slóvenar erum ekki eins og við ættum að vera, ekki eins og við gætum verið. Land okkar er fagurt; eftir því sem ég veit bezt, finnst varla fegurri staður á jörðu hér — en það er búr. Við lif- um hér, þessi litla þjóð, umkringd stærri og sterkari þjóðum, eins og í búri. Andleg verðmæti okkar standast ekki samanburð við mikilleik og fegurð Bóhin- og Bled-vatnanna og Tríglaf-fjallsins, svo að við erum ekki verð þeirra. Sum okkar eru sannarlega aumar verur. Saga okkar er saga erlendrar harðstjórnar og áþjánar. Nú, á þessari stundu, lifa fjögur hundruð þúsundir Slóvena undir ítalskri fasistastjórn. Menn okkar hafa orðið að heyja marga tugi styrj- alda á liðnum öldum, ekki fyrir sjálfa sig, heldur fyrir menn, sem þeir áttu ekkert sameiginlegt með. Og um langt skeið hefur fólk hér varla átt til linífs og skeiðar, og fjöldi Slóvena liefur flutzt til Bandaríkjanna eða Suður-Ameríku. .. . Jafnvel fólk eins og við, sem talið er efnað, verður að gæta ýtrasta sparnaðar og hagsýni til að geta fullnægt fátæklegum metnaði sínum í því að „verða eitthvað“ og eignast þá hluti, sem við í tálvon okkar teljum öryggi, og „embætti“ og „menningu“. ... Já, ég veit, að þessa sömu sögu hafa flestar Evrópuþjóðir að segja, ef til vill fólk, hvar sem er í heiminum, en það er þó kannski einna átakanlegast um okkur Slóvena, okkur Júgóslava. Við erum svo fá og megum við svo litlu. Bóza reyndi að brosa og bætti við: „Mér þykir fyrir, að ég skyldi fara að tala um þetta, ég ætlaði ekki að gera það. Þú ert bráðum á förum frá Júgóslavíu, og það er ekki rétt af mér, að stuÖla að því, að þú verðir fyrir óskemmtilegum áhrifum hér. En það sem ég sagði, er satt, og það sakar þig ekki, þótt þú vitir, hvernig sum- um okkar er innanbrjósts. Á hinn bóginn skaltu ekki halda, að mér hafi ekki verið alvara áðan. Það er unaðslegt að vera Júgóslavi, að vera Slóveni, að lifa í þessu landi, jafnvel á þessum tímum — en
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.