Tímarit Máls og menningar - 01.05.1944, Side 102
MÁL OG MENNING
Fremst í þessu hefti er skýrt frá nýju, stórmerku riti, Undrurn veraldar, sem
Mál og menning ætlar að gefa út með svipuðu fyrirkomulagi og Arf Islend-
inga, þ. e. safna áskrifendum meðal félagsmanna og gera ritið á þann hátt eins
ódýrt og félagsbók væri. Við sendum boðsbréf með Tímaritinu og væntum þess,
að félagsmenn gefi sig strax fram við umboðsmenn Máls og menningar á
bverjum stað, láti skrá sig kaupendur að ritinu og greiði helzt um leið bið á-
ætlaða verð þess, sem er aðeins 50 kr., miðað við það, að 4000 félagsmenn eða
fleiri gerist kaupendur. Við þurfum að já svar allra fyrir 1. júlí í sumar, því
að þá verður upplag ritsins ákveðið.
Við getum glatt félagsmenn með því, að Sigurður Nordal er að Ijúka 2.
bindi sínu af íslenzkri menningu, og verður það prentað í sumar, og ætti að
geta kornið út nokkru fyrir jól, þó að fulla tvo mánuði þurfi til þess eins að
binda ritið. Það er óhjákvæmilegt, að þetta bindi verður miklu dýrara en hið
fyrra, því að allur útgáfukostnaður hefur stórhækkað og auk þess var 1. bindið
selt of ódýrt, eins og reikningur Arfs Islendinga ber með sér. Þrátt fyrir yfir
7000 eintaka sölu á Islen/.kri menningu, er kostnaður við bindið ekki að fullu
greiddur. Viðvíkjandi reikningnum atbugi félagsmenn, að í prentunarkostnaði
er falið verð á bandi og heftingu, og gerir það meira en helming upphæðar-
innar.
Útgáfan 1943 (Mannkynssagan, Þrúgur reiðinnar og Tímaritiði var talsvert
meiri en árið áður, eða 58 arkir í stað 45 arka 1942. En reikningar félagsins
sýna líka, að 25 kr. árgjaldið hefur varla brokkið fyrir útgáfukostnaðinmn.
llins vegar hefur orðið rúmlega 17. þús. kr. hagnaður á útgáfu aukabókanna.
Menn athugi, að þetta Tímaritsbefti er 1. hefti árgangsins 1944, en efnisyfir-
lit fylgir yfir árganginn á undan. Tvö hefti fyrra árs voru orðin 16 arkir, eða
raunverulega full stærð, og hefti til viðbótar hefði komið reksturshalla á út-
gáfuna 1943.
Aðaljundur félagsráðs Máls og menningar var sunnudaginn 2. apríl. Fundar-
stjóri var kjörinn Sigurður Thorlacius og fundarrilari Hauktir Þorleifsson. 1
upphafi fundarins minntist fundarstjóri Aðalsteins Sigmundssonar, sem látizt
hafði á síðastliðnu ári, og vottuðu fundarmenn lionum virðingu sína nteð því
að rísa úr sætum sínum. Síðan hófst dagskrá ftindarins, og flutti Kristinn E.
Andrésson, formaðtir Máls og menningar, skýrslti félagsstjórnar og lagði fram