Tímarit Máls og menningar - 01.03.1957, Side 16
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Nú treystum við því að leyfið hljóti að verða veitt, og eru þá enn möguleikar til að leggja
a. m. k. hornstein að byggingunni í ár eða korna henni jafnvel undir þak. Skiptir öllu fyrir
Mál og menningu, þegar farið er að byggja, að félagið geti lagt sem mest fé fram sjálft
og átt sem mest í byggingunni þegar hún kemst upp.
Utgáfa Kiljans á skáldskap Jónasar Hallgrímssonar
Halldór Kiljan Laxness vinnur nú fyrir Mál og ntenningu að útgáfu sinni á skáldskap
Jónasar Hallgrímssonar, en hann á einmitt í ár 150 ára afmæli, og fylgir ritgerð eftir Hall-
dór um skáldið. Þessi minningarútgáfa sem á að verða skrautleg bók er verðlögð á 300 kr.
til ágóða fyrir byggingu Vegamóta, og er mikils virði að sem flestir félagsmenn sýni Máli
og menningu þann vinarhug á afmælinu að kaupa þessa útgáfu, enda mun varla þurfa að
hvetja menn til þess svo eiguleg sem bókin verður.
»
Ohjákvæmileg árgjaldshækkun
Frá því 1954 hefur árgjald Máls og menningar verið 100 krónur, en einmitt síðustu tvö
árin hafa orðið miklar hækkanir á prentun, pappír, ritlaunum, burðargjaldi og öðrum til-
kostnaði, og nú kemur til viðbótar hár tollur á bókapappír. Er því svo kontið að fyrir Mál
og menningu er ekki nenta utn tvær leiðir að velja: að draga stórlega úr útgáfunni eða
hækka árgjaldið. Stjórn félagsins telur ófært að minnka útgáfuna og hefur því valið síðari
kostinn að hækka árgjaldið upp í 150 kr., en minni hækkun kemur ekki að neinu gagni.
Mál og menning hefur að ttndanförnu gefið út tvær bækur og tímarit félagsins, en tíma-
ritið svarar árlega til stórrar tuttugu arka bókar og er auðvitað miklu dýrara í útgáfu en
venjuleg bók. Osk félagsstjórnarinnar hefur margoft verið að stækka tímaritið og láta það
koma oftar út, en það hefur ekki verið hægt innan takmarka árgjaldsins þar sem dýrtíðin
hefur sífellt aukizt. Ekkert tímarit sem vill vera og heita er lengur hægt að gefa út hér á
landi undir 100 kr. áskriftargjaldi, hvað þá tvær hækur að auki. Argjaldshækkunin upp í
150 kr. gefur okkur því ekki möguleika til að stækka tímaritið né auka útgáfuna að neinu
ráði, en ætti a. m. k. að tryggja félaginu að geta haldið útgáfunni vel í horfinu fyrst um
sinn.
Aukin útgáfa
Mál og menning leggttr kapp á að auka fremur en minnka útgáfu sína, og vonumst við
til að félagið stigi enn djarfari spor framvegis. Nýr bókaflokkur er í undirbúningi og
leggjum við sem áður mesta áherzlu á frumsamdar íslenzkar hækur og að korna verkum
ungra höfttnda á framfæri, eftir því sem efni standa tii, en þar næst að kynna erlendar
nútímabókmenntir sem víðast að, og höfum m. a. í undirbúningi þýðingar á verkum eftir
kínverska, indverska, rússneska og rúntenska höfunda, og höfum nýlega birt skáldsögtt
eftir brasilíuhöfundinn Jorgc Antado. Sérílagi getuni við glatt félagsmenn með því að
nú kemur loks þriðja bindið af Jóhanni Kristófer í þýðingtt Sigfúsar Daðasonar sem
undanfarin ár hefur stundað frönskunám í París.
Kr. E. A.
6