Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1957, Page 45

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1957, Page 45
ÞORGEIR HÁVARSSON hans og skjöld og notar undir ketilinn. Þeg- ar Þorgeir kemur heim, spyr hann, hver gert hafi. Gautur segir hreinskilnislega frá. Þor- geir reiðist ekki. Daginn eftir fara hinir að leita að eldiviði. Allt fer á sömu leið. Þor- geirs menn kvarta, og hann fer og notar vopn Gauts undir ketilinn. Gautur kemur og sér verksummerki, reiðist, heggur til Þor- geirs sem fær varið sig, þó skeindist hann lítillega. Hlaupa nú menn til og halda þeim. Þeirgeir segir, bls. 200: „Ekki þurfu þér mér at halda, ekki geri ek at sinni.“ Lesandanum verður á að hugsa: ja, nú þykir mér drengur stilla sig. Því býður hann ekki Gauti að berjast við sig eins og Þor- gilsi? Ekki varð honum sýnd meiri móðgun en sú að brjóta vopn hans, sem var ráðinn atvinnumaður hjá Olafi konungi til að vega menn. Var meiri ástæða til að reiöast þessu en bæði heststuldinum og frýjuorðum Butr- alda. Getur veriö, að Þorgeiri liafi ekki þótt Gautur árennilegur, en svo er honum lýst fyrr í sögunni, bls. 157: „Gautr var mikill vexti ok sterkr at afli, ódæll ok harðfengr.“ — Hvað sem því líður þá gerist þetta, bls. 200—201: „Ok um nóttina stendr Þorgeirr upp ok tekr öxi sína ok gengr í tjald þat, er Gautr svaf í ok vekr hann. Gautr sprettr upp ok vildi grípa vápn sín. Þá hjó Þorgeirr í höfuð Gauti ok klýfr hann í herðar niðr, ok gekk brott síðan til tjalds síns.“ Aður er því lýst, þegar Þorgeir býður Þorgilsi til bardaga, og er það eini staður- inn í allri sögunni, þar sem ætla mætti, að reynt hafi á Þorgeir. I hin skiptin er hann til muna betur vopnum búinn eða flýtir sér að vega mennina, áður en þeir fá vörn við komiÖ. Bardaginn við Þorgils lýsir mikilli kappsemi, en auðfundið er, að höfundur vill ekki bera oflof á Þorgeir, því hann segir bls. 149: „en fyrir því at Þorgeirr var þeira meir lagðr til mannskaða, þá fell Þorgils fyrir honum.“ Ekki leggur hann sérstaka áherzlu á hugprýði þá, sem klausuhöfundi verður sem tíðræddast um, enda hefði höf- undur þá komizt í úlfakreppu, ef litið er á frásögn þá, sem nú skal greint frá: Nokkrum dögum eftir víg Gauts sér Þor- geir, að skip kemur af hafi og leggst við akkeri ekki langt þar frá. Rær hann á báti þangað og spyr, hverjir ráði fyrir skipinu. Er honum sagt, að það séu þeir Þórarinn ofsi og Þorgrímur trölli; bls. 201—202: „Hann spurði, hversu margir menn váru á skipinu. Þorgeiri var sagt, at þeir váru f jór- ir tigir vígra manna þar á. Þorgeirr sá, at þar var mikill liðsmunr, ef þá greindi á, því at þeir Þorgeirr váru eigi meir en tuttugu menn.“ „Þá mælti Þorgeirr: „Af því at þat er mælt, at hér sé hvárirtveggju eigi at fullu jafnaðarmenn, þá sýnisk mér, at vér setim grið vár á millim sakar varygðar." — Þessu játa hinir, en rjúfa, er þeir frétta víg Gauts, sent var frændi Þórarins. I þessari frásögn birtist Þorgeir í nýju ljósi. I fyrsta skipti á hann við ofurefli að etja, því í viðureigninni við Hækils-Snorra er liann svo miklu betur vopnum búinn, að það vegur fyllilega upp á móti húskörlun- um. Sá bardagi líktist því, að þrír meðal- menn tefldu á móti einum vönum skák- manni, sem hefði tvær drottningar í byrjun en þeir eina. Hvernig bregzt nú Þorgeir við í þetta sinn? Hann virðist hafa gleymt því, þegar hann fór gegn hændum á Hornströndum við níunda mann og þótti ekki orð á gerandi um liðsmuninn. Síðan þá hafði hann að vísu kynnzt hinum kristna konungi, en mjög er hæpið, að sáttfýsi hans sé þaðan runnin, því þau voru helzt viðskipti hans við kon- ung, að því er sagan segir, að sá sendi hann norður og vestur yfir gráðugt úthafið til að hafa upp á bónda einum í Strandasýslu og drepa. Hvernig hann vó Gaut, sýndi heldur ekki verulega hugarfarsbreytingu frá því, sem veriÖ hafði fyrir fyrstu utanförina. Með þessari frásögn gefur höfundur Ijóslega til 35

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.