Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Page 54

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Page 54
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR nefni, enda þurfa þeir væntanlega ekki að fyrirverða sig fyrir uppruna sinn, livar í heiminum sem þeir eru staddir. Um ættarnafnafarganið mætti fjöhnargt segja, þótt hér verði ekki rakið lengra. Þessar hugrenning- ar eru einkum ritaðar til þess að rifja upp nokkra þætti í sögu íslenzkra skírnarnafna, og því verða ættarnöfn eða viðurnefni látin eiga sig að sinni. 2 Fólk, sem lætur skíra hörn sín út- lendum nöfnum og nafnskrípum, mun naumast gera sér þess ljósa grein, að slíkar nafngiftir eru ekki einungis smekkleysur, þau varða einnig við landslög. í lögum um mannanöfn eru tvö ákvæði, sem rétt er að minna á, áður en lengra sé far- ið. Annað þeirra hljóðar svo: Ilver maSur skal heita einu íslenzku nafni eða tveim, og hitt: Ekki mega menn bera önnur nöfn en þau, sem rétt eru að lögum íslenzkrar tungu. Þótt á- kvæði þessi séu ekki afdráttarlaus. þar sem hugtakið íslenzk mannanöfn hefur ekki verið skilgreint, svo að einhlítt sé, munu flestir íslendingar átta sig á þeim nöfnum, sem brjóta í bága við lögin. Nafnalögin kveða svo á, að prestar skuli hafa eftirlit með því, að fyrirmælum þeirra sé hlítt, en þess hefur óþarflega oft gætt, að þeir hafi brugðizt þessari embættisskyldii, sem þeim ætti þó að vera ljúft að gegna. Þó her hins ekki síður að geta, sem vel er gert; margir íslenzkir prestar eru svo vel menntir, að þeir skíra aldrei börn öðrum nöfnum en þeim, sem rétt eru að lögum. Hinir, sem bregðast skyldu sinni, hafa sér ekkert til afsökunar, því að þeir verða ekki einungis sekir að lögum, heldur valda þeir þjóðerni voru varanlegu tjóni með slíkum afglöpum. Sumir prestar munu halda því fram, að ekki sé unnt að framfylgja lögunum til hlítar af þeirri ástæðu, að um mörg mannanöfn sé örðugt að staðhæfa, hvort þau fullnægi ákvæð- um laganna eða ekki. Eina leiðin til að skýrgreina hugtakið íslenzk mannanöfn fullkomlega væri sú, að samin væri ýtarleg skrá yfir þau. Og vissulega er það ekki vanzalaust, að slíkt hefur ekki verið gert fyrir löngu. En lögbrot prestanna á undanförnum áratugum eru mörg svo augljós, að á þeirn leikur enginn vafi. Útlend nöfn, sem verða ekki beygð eftir venjum móðurmálsins, eru vitanlega ekki ís- lenzk, þótt íslendingar beri þau. Og þegar mær er skírð karlmannsnafni, eins og mörg dæmi eru um, er nafn hennar af augljósum ástæðum ekki rétt að lögum íslenzkrar tungu. Á síð- ari árum hefur það færzt í vöxt, að börn séu skírð rangnefnum á þann hátt, að nöfnin eru gefin í þolfalli eða eignarfalli. Allt slíkt eru nafnskrípi, og verður nánar að þeim vikið síðar í þessari grein. 44
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.