Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Page 64

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Page 64
TIMARIT MALS OG MENNINGAR laruli á 15. öld, og má láta sér til hug- ar koma, að Jiað sé runnið frá Orvar- Odds sögu eða Hervarar sögu og Heiðreks eða öðrum sögum, sem fjölluðu um Hjálmar hugumstóra. Á öllum öldum síðan mun það hafa borið við, að foreldrar hafi sótt nöfn til bókmennta. En vitanlega skiptir það miklu máli, hverjar bókmennt- irnar voru. Um undanfarnar tvær aldir hafa allmörg mannanöfn verið tekin úr rímum og reyfurum, og þess munu jafnvel vera dæmi, að stúlkur hafi verið látnar heita eftir banda- rískum leikkonum, sem óvandlátir foreldrar höfðu hrifizt af í kvikmynd- um. En íslenzkar fornbókmenntir hafa einnig haft áhrif á nafngiftir, og er skemmtilegt til þess að vita. Eitt þeirra nafna, sem komust í tízku á síðara hluta 19. aldar, var Ragnar. Þótt ýmsir landnámsmenn rekti ættir sínar til hins fræga fornkonungs, Ragnars loðbrókar, virðist nafnið ekki hafa verið notað hér fyrr en nokkru eftir miðja 19. öld. Árið 1855 hét enginn Islendingur Ragnar, en 1910 hét 191 maður þessu nafni, og síðan hefur notkun þessa veglega heitis farið sívaxandi. Á því getur naumast leikið nokkur vafi, að vin- sældir Ragnars sögu loðbrókar hafa einkum valdið Jjví, að nafnið var tek- ið upp að nýju. Oddaverjar á 13. öld höfðu þegið nöfnin Randalín og Agn- ar eftir þessari sömu sögu, og er Jiað eitt dæmi af fjölmörgum um það, hve margt var líkt með menningu Islend- inga í fornöld og á 19. öld. Af öðrum fornum nöfnum, sem tekin hafa verið upp á síðustu mannsöldrum úr ís- lenzkum bókmenntum, má minna á eftirfarandi: Angantýr mun vera þ'eg- ið frá Örvar-Odds sögu eða Heiðreks sögu, Völundur frá Völundarkviðu, Gylfi úr Snorra-Eddu eða Ragnars- drápu Braga gamla, Fróði úr forn- aldarsögum. Allmörg nöfn virðast vera komin úr Snorra-Eddu eða öðr- um goðfræðilegum heimildum. Svo er um dverganöfnin Fjalar og Sindri og nöfn Ægis-dætra Hrönn og Bára. Mörg forn nöfn, sem snemma hurfu úr notkun, hafa varðveitzt í bæjaheitum og öðrum örnefnum. Sum þeirra eru nefnd í Landnámu og sögunum, en önnur eru einungis Jiekkt af bæjunum. Dæmi um forn mannanöfn, sem varðveitzt hafa í bæjaheitum og lítt hafa verið notuð að skírnarnöfnum undanfarna mannsaldra, eru meðal annars þessi: Arnhallur, Ásgils, Bekan, Böðmóður, Brettingur, Darri, Hegri, Heggur, ís- röður, Kjarvalur og JJbbi. Þó veit ég til þess allnokkur dæmi, að sveinar hafi verið látnir heita slíkum nöfn- um. Landnámsmaður í Langadal hét Holti, og eftir honum var bær kall- aður Holtastaðir. Holti landnáms- maður virðist vera eini Islendingur- inn, sem hefur heitið þessu nafni, unz bóndinn á Holtastöðum endurvakti nafnið fyrir tæpum tveim áratugum 54
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.