Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Page 65

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Page 65
ÞÆTTIR UM MANNANÖFN OG NAFNGIFTIR og lét skíra son sinn Holta. Svipaða sögu má segja um nokkur mannanöfn önnur. Nú mun vera til Kalman eftir Kalmani í Kalmanstungu, Starri frá Starrastöðum, Lýtingur frá Lýtings- stöðum, og einhver tengsl munu vera á milli bæjanafnanna Frostastaðir og Fornastaðir og nafnanna Frosti og Forni, sem nú hafa verið tekin upp að nýju. Endurvakning fornra nafna, sem geymzt hafa í bæjanöfnum, er skemmtilegt dæmi um þroskaða rækt- arsemi íslenzkra bænda við forna menningu. Einn er sá flokkur nafna, sem mjög er vinsæll nú á tímum, en það eru karlanöfn, sem enda á -ar. Ending þessi var algeng á fornum nöfnum, einkum koma slík nöfn fyrir í forn- aldarsögum. Nú hafa mörg þessi nöfn verið vakin upp, og ný nöfn eru mynduð með þessari endingu. Ég get ekki fellt mig við nýmyndanir, svo sem nöfnin Omar og Rúnar, enda er af nægum forða að taka. í fornum ritum koma til að mynda fyrir eftir- talin nöfn, sem enda á -ar, auk ann- arra algengari: Sœvar, Brynjar, Ævar, Aljar, Borgar, Hávar, Hróar, ísar, Sigar, Unnar, Víkar, Vatnar. Mörg þeirra nafna, sem hér hafa verið talin, hafa annaðhvort aldrei verið notuð hér á landi að skírnar- nöfnum eða þá einungis á síðustu ára- tugum. En þau eru þó tvímælalaust íslenzk nöfn, ef þau koma fyrir í ís- lenzkum fornbókmenntum og lúta að öllu leyti lögum íslenzkrar tungu. Endurvakning fornra nafna er í raun- inni hið þarfasta verk, því að þjóð- inni er nauðsynlegt, að mannanöfn séu sem flest. Slíkt kemur í veg fyrir, að of margir verði samnefndir, og auk þess eru mörg fornu nöfnin svo fögur, að hverjum manni ætti að vera ljúft að heita þeim. 7 Nú kem ég að þeim þætti í spjalli mínu, sem ég hef kviðið einna mest, en það er að telja upp sumar verstu misfellurnar á nafngiftum á vorum dögum. Því er mér að því mikill hugarléttir, að ég hef sleppt ættar- nöfnum. Nafnaglöp eru ærin, þótt þau séu ekki tekin með. Eins og áður var drepið á, er oft töluverður vandi að láta barn heita í höfuðið á tveim mönnum, svo að vel fari á. Þetta á þó einkum við, ef sveinn er heitinn eftir konu eða stúlka eftir manni. í fornum ritum koma fyrir nöfn á konum, sem virðast hafa verið látnar heita eftir karlmönnum. Þannig munu nöfnin Arnóra, Stein- þóra og Þórodda vera til orðin. Fyrr á tímum var stúlka heitin eftir manni, sem hét Björn eða Bjarni, á þann veg, að hún var kölluð Birna eða Bera. Svo er rétt skírt. En á síðari tímum hafa komið fram alls konar ónefni, af því að menn hirtu ekki um að hlíta slíkum venjum. I stað þess að mynda kvenmannsnöfn að fornum hætti, 55
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.