Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Page 93

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Page 93
Umsagnir um bækur Jón Jóhannesson: íslendinga saga II. Fyrirlestrar og ritgerðir ura timabilið 1262—1550. Almenna bókafélagið 1958. Síðla árs 1956 kom út hjá ofannefndu forlagi fyrra bindi af sögu Islendinga eftir dr. Jón Jóhannesson prófessor, og tók það yfir sögu bjóðarinnar frá upphafi landsbyggðar til 1262 eða þjóðveldistímann allan. Gekk höfundurinn sjálfur frá því bindi að fullu og öllu. En fáum mánuðum eftir útkomu þess, hinn 4. maí 1957, burt- kallaðist dr. Jón á bezta aldri frá mörgum óloknum verkefnum í þágu íslenzkra sögu- vísinda, þar á meðal íslendinga sögu sinni, síðara bindinu, er ná skyldi yfir tímabilið frá 1262 til siðaskipta. Átti hann í það mikið efni, sem var háskólafyrirlestrar hans og ýmsar einstakar rannsóknir, er hann bafði gert um tímabilið, en verkið var á ýmsu stigi, sem vonlegt var, sumt fullsamið að kalla, sumt þurfti endurskoðunar við, m. a. samræmis vegna, og loks var samn- ingu nokkurra þátta skammt á veg komið eða þá vantaði jafnvel alveg. Fór þetta all- mjög eftir því, hvernig efnið lá fyrir til há- skólakennslu. Þar, sem eldri rit voru til, svo sem kristnisaga dr. Jóns biskups Helga- sonar, var ekki eins aðkallandi að Ijúka við kirkjusögu tímabilsins vegna stúdentanna, og enn fremur varð að taka tillit til þess og leggja áherzlu á að ljúka fyrr þeim þáttum sögunnar, sem mikilvægastir voru, eins og t. d. stjórnmálasögunni eða um samskipti íslendinga og konungsvaldsins, svo og verzlunar- og hagsögu tímabilsins. En þótt ritið í heild sinni væri hvergi nærri fullbúið frá höfundarins hendi, var því þó til allrar hamingju svo langt komið í mörgum grein- um, að ekki aðeins þótti fært, heldur meira að segja sjálfsagt að gefa það út sem annað bindi íslendinga sögu hans. Var sannarlega vel farið, að svo var gert nú þegar. Eins og vænta mátti, er þetta rit, sem mikill fengur er að, enda mun engum koma það á óvart, sem þekkir til vinnubragða dr. Jóns Jó- hannessonar, vísindalegrar hófsemi hans og vandvirkni. Rúmlega helmingur bókarinnar er há- skólafyrirlestrar dr. Jóns. IJafði hann löng- um þann liátt á, að liann lét stúdentana skrifa fyrirlestra sína eftir upplestri, svo að þeir gætu síðar notað þá til próflestrar. Um útgáfu þeirra segir I’órhallur Vilmundar- son cand. mag., sem annazt hefir útgáfu bindisins, svo í formála bókarinnar: „Ut- gáfu fyrirlestranna hefur verið liagað á þá lund, að fyrst var texti höfundar borinn saman við þrjár gerðir uppskrifta nemenda hans frá síðustu árum. Kom þá í ljós, að dr. Jón hafði allvíða aukið inn setningum, t. d. nánari skýringum, svo og betrumbætt orðalag í flutningi. T'ar sem öruggt þótti af samanburði hinna ýmsu gerða, að treysta mætti textanum, og hreytingarnar þóttu ótvírætt vera til hóta, var tekið tillit til þeirra í útgáfunni. Sérstöku máli gegnir um fyrirlesturinn um konungsvaldið og rétt- indabaráttu íslendinga í upphafi 14. aldar á 45.—61. bls. Þann kafla varð að prenta 83
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.