Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Page 94

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Page 94
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR nær allan eftir nýjustu uppskriftum nem- enda.“ Enn fremur kveðst útgefandi hafa aukið inn meginjjorra tilvitnana í hcimildir neðan máls, sannreynt orðréttar tilvitnanir og livers konar staðreyndir, svo sem manna- nöfn og ártöl, og sett millifyrirsagnir í flesta fyrirlestrana. Hefir allt þetta og ann- að starf að útgáfunni ekki verið vandalaust. Fæ eg ekki betur séð en það sé unnið af mikilli alúð og samvizkusemi. Fyrirlestrarnir skiptast í þrjá aðalþætti: 1) Sögu konungsvalds og alþingis, þar sem rætt er um lögbækurnar Járnsíðu og Jóns- bók, breytingar sem urðu á stjórnskipun- inni við lögtöku þeirra, réttindabaráttu fs- lendinga, tekjur konungs af landinu til siðaskipta og embættismenn konungs úti hér, og er þessi þáttur samfelldastur. 2) Sögu íslenzkrar kirkju, þar á meðal um staðamál hin síðari, kristinrétt hinn nýja, kosningar og skipanir biskupa og deilur Ólafs biskups Rögnvaldssonar og leik- manna um kirknamál, og nær þessi þáttur sögunnar fram á 15. öld. 3) Verzlunar- og hagsögu, sem nær í stórum dráttum fram til siðaskipta. 011 er þessi saga kjarnorð og stuttorð, víða um of, nánar uppistaða en ívaf, enda átti höfundurinn eftir að leggja á verkið síðustu hönd. Því eru og sumir þættir rækilegri en aðrir, að eftir var að vinna þá til samræmis, og loks eru þættir eins og atvinnu- og menningarsaga og síð- ari hluti kirkjusögunnar, sem vantar með öllu, þar eð höfundi vannst ekki tími til að semja þá, svo að hægt væri að birta þá. Lesendur mega því ekki búast við, „að í þessu bindi sé að finna samfellda sögu landsins á umræddu tímaskeiði, eins og höfundur hefði sjálfur viljað gera þá sögu úr garði“, eins og útgefandi tekur réttilega fram í formála bókarinnar. Þrátt fyrir það tel eg mikinn feng að fyrirlestrum þessum. Og þcir eru minningu höfundarins til auk- ins heiðurs. Síðari hluti bókar er safn nokkurra rit- gerða höfundarins, er fjalla um sama tíma- bil. Ilöfðu þær allar birzt áður í ýmsum ritum, og er vel að fá þær saman á einn stað. Ritgerðir þessar eru: Hirð'Hákonar gamla á Islandi; Réttindabarátta íslend- inda í upphafi 14. aldar; Gizur bóndi galli í Víðidalstungu; Reisubók Bjarnar Jórsala- fara; í Grænlandshrakningum 1406—1410, og Skálholtsför Jóns biskups Arasonar 1548. Bókin er prýdd allmörgum myndum, sem fara vel við efnið, og hefir dr. Kristján Eld- járn þjóðminjavörður annazt val þeirra. Sérstaklega ber að þakka vandaða og ræki- lega nafnaskrá við bæði bindin, er fylgir í síðara bindinu. Að ytra búningi er bókin að öðru leyti vel og myndarlega úr garði Ber- Guðni Jónsson. Jóliann Hjálmarsson: Undarlegir fiskar Rvík, IJeimskringla 1958. Við sem höfum fæðst með ofurlitla von ofurlitla von ekki stærri en augu barnsins sem gekk áðan yfir götuna og nam staðar á horninu við húsin fjögur sem mynda kross eins og Kristur bar eins og Kristur var festur á En einnig þetta barn hefur fæðst með ofurlitla von ofurlitla von eins og við og á liverju kvöldi gefur það mönnunum sem óttinn kvelur ofurlítinn hluta af sinni ofurlitlu von etta er fyrsta ljóð bókarinnar og hér valið sem sýnisliorn. Innihald hennar er nokkur smáljóð, hvert um sig nafnlaust, en flokkar þeirra bera heiti; órímuð, sum 84
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.