Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Side 96

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Side 96
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Þú hugsar nú, flokksbróðir, livað sem þú vilt. — Eg liorfði þrotlaust á meyna, þótt atkvæði hennar væri ekki gilt við alþingiskosningu neina. Eg fékk ekki við þeirri furðu gert, hinn framboðni Guðmundur Ingi, að mér fannst nú annað meira vert en menn eða frumvörp á þingi. Og það á sjálfan kjördaginn og frambjóð- andinn í atkvæðasmölun. A sprettum verða mikil tilþrif í sumum kvæðum hans. Það er engin lognmolla yfir lýsingunni á gamla lireppstjóranum og vandalaust að sjá hann fyrir sér: Sástu, hvernig hann var reiður? Herðamikill, ennisbreiður, orðahvass og orðagreiður yfir jötunmagni bjó. En er liætt var liverjum fundi, hlý og einlæg kveðjan mundi. Hvað sem þaut og hvað sem dundi, hann var allra vinur þó. Af öðrum minnisstæðum ljóðum bókar- innar mætti nefna „Músarrindil“, „I fjár- húsi“, „Þegar borgin brann“ og síðast en ekki sízt „Velkomin, rigning" sem er fín- gert kvæði, hlýlegt og saman sett af til- gerðarlausri íþrótt. Guðmundur Ingi þyrfti að kynnast fram- andi þjóðum og löndum. Einangrun hefur háð skáldgáfu hans, og hann er enn svo ungur, að minnsta kosti í andanum, að ferskir vindar eiga áreiðanlega greiða leið að strengjum hans. Mætti þá svo fara, að hann ætti eftir að vaxa enn að mun og verða meira en góðskáld. Þ. G. Höfundur Njálu safn ritgerða eftir Barða Guðmundsson. Bókaútgáfa Menningarsjóðs, Rvík 1958. Hér eru saman komnar ritgjörðir Barða Guðmundssonar fimmtán að tölu og hafa fimm þeirra ekki verið prentaðar áður. Efni tólf þeirra er eins og heiti bókarinnar bendir til, leit að höfundi Njálu eða réttara sagt leit að röksemdum til stuðnings þeirri hugmynd að höfundur hennar hafi verið Þorvarður Þórarinsson, því að Barði virð- ist þegar í upphafi sannfærður um að svo hafi verið. I tveim ritgjörðum er rætt um aðrar sögur, en þó eru þær tengdar aðal- rannsóknarefninu, — og í þeirri þriðju er leitað fyrirmyndar einnar sögupersónu í Njálu, án þess að sveigt sé að Þorvarði Þór- arinssyni sem höfundi sögunnar. Þessa bók má lesa með að minnsta kosti tvennum hætti; hana má í fyrsta lagi lesa líkt og leynilögreglusögu, gefa sig á vald höfundinum og njóta skemmtunarinnar og listarinnar, en að öðrum kosti má lesa hana sem vísindarit með vökulli gagnrýni og verður hún þá seinlesin því að oft verður að nema staðar og athuga betur heimildir, vega og meta röksemdir. Það skal sagt strax að hér er ekki unnt að kveða upp dóm um höfuðniðurstöður Barða. Efnið er víðtækara en svo að því verði gjörð skil í ritdómi, — til þess þyrfti langa ritgjörð, jafnvel heila bók á borð við þá sem hér er til umræðu, — og er auðsætt að miklu auðveldara hefði verið við þetta að eiga, ef Barða hefði auðnazt að koma í framkvæmd því áformi sínu að gjöra úr þessum ritgjörðum eina samfellda bók um leit sína að höfundi Njálu, þar sem hefði mátt vænta að hann hefði greint betur á 86
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.