Tímarit Máls og menningar - 01.09.1973, Síða 20
Tímarit Máls og menningar
Eg nefni sem dæmi það frjálsræði, sem gætt hefur í auknum mæli undangeng-
in 30 ár í því, sem varðar siðferðilegar hliðar kynlífsins. Ennfremur mætti
nefna það umboð, sem veitt er í svokölluðum neyðartilfellum, til þess að virða
að vettugi nær öll siðfræðileg gildi. Þannig eru siðaboðin eingöngu viður-
kennd réttmæt og gildandi meðan jafnvægi ríkir í félagslegum og stjórnmála-
legum efnum.
Ef nú tekið er mið af hinu hversdagslega j afnvægisástandi hlýtur bylt-
ing að telj ast siðlaust athæfi; hún ógnar þeirri samfélagsskipan, sem fyrir er.
Hún gefur færi á og ýtir j afnvel undir fláræði, kænsku, kúgun, eyðileggingu
lífs og eigna o. s. frv. En dómur, þar sem þessi skilningur er lagður til grund-
vallar, er ekki réttur. Þar eð siðfræðileg boð eru í eðli sínu fyrirmæli um
breytni, eru þau hafin yfir tímabundnar aðstæður. Þó sveima þau ekki í neinu
frumspekilegu tómarúmi; þvertámóti eiga þau sér rætur í þeim j arðvegi sög-
unnar, sem sérhvert ríkjandi ástand er sprottið úr, þar sem sérhver breyting
á ríkjandi ástandi á upptök sín. Og með skírskotun til þessa sögulega jarð-
vegs, sem afmarkar stöðu og framvindu byltingarinnar, er sýnt, að siðfræði
byltingarinnar hlýtur að styðjast við sögulegan útreikning. Gefur sú sam-
félagsskipan, sem byltingunni er ætlað að koma á fót, hetra færi á fram-
förum í frelsisátt en sú, sem fyrir er? Það er Ijóst, þegar sjónum er beint að
sögunnar rás, að útreikningur áðurnefndra möguleika hyltingarinnar, verður
að vera hafinn yfir þær aðstæður, sem ríkjandi eru hverju sinni. Þetta þýðir
þó ekki, að slíkur útreikningur skuli byggjast á innantómum vangaveltum,
heldur skal hann hafinn yfir ríkjandi aðstæður í þeim skilningi, að hann
taki til þeirra efnislegu og andlegu, vísindalegu og tæknilegu möguleika, sem
völ er á, og bendi á skynsamlegustu leiðirnar tilað nýta þessa möguleika.
Reynist slíkur útreikningur mögulegur, þá getur hann orðið til þess, að unnt
verður að leggja hlutlægt mat á byltingar og söguleg áhrif þeirra; þ. e. hvort
þær muni valda framför eða afturför, hvort þær séu þess umkomnar að leiða
mennina fram til mennskari lífshátta.
Með því að virða fyrir sér feril sjálfrar sögunnar er auðvelt að komast að
bráðabirgðaniðurstöðu. í sögulegum skilningi beindust hlutlæg áhrif meiri-
háttar byltinga nútímans í þá átt að rýmka um frelsi og fullnægingu þarfa.
Enda þótt enska og franska byltingin hafi verið túlkaðar á mismunandi
vegu, munu þó allir skýrendur á eitt sáttir um það, að ný skipting þjóð-
félagslegra auðæfa hafi fylgt í kjölfarið. Þessi nýja skipting hafi orðið til
þess að bæta hag hinna vanmáttugu og undirokuðu þjóðfélagshópa í efna-
hagslegu og/eða stj órnmálalegu tilliti. Þrátt fyrir það, að á eftir fóru tíma-
130