Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1973, Page 38

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1973, Page 38
Tímarit Máls og menningar En þegar ég var sextugur háttaði ég hjá ..og lengra verður ekki komizt í tónlist á þessari öld. Móðir mín, Hugborg Bjarnadóttir, var alin upp hjá skaftfellskum hús- dýrum og almúgafólki, sem stóð á svipuðu menningarstigi og dýrin. Um tíma, þegar hún var 13—14 ára, var hún á prestsetri einu og svaf á milli tveggja dætra prestsins. Því nær sem mennirnir standa dýrunum og náttúrunni, því betri eru þeir. Samt er ég svo hrifinn af fínum og ströngum siðum, að ég þori ekki að taka skaftfellsku húsdýrin að öllu leyti fram yfir heldrafólkið á Akureyri, sem faðir minn ólst upp hjá. Sem ung stúlka kynntist móðir mín mestu og beztu konu, sem mér er kunnugt um, að lifað hafi hér á landi, Ing- veldi í Eyjarhólum. A móti slíkri konu hefur Akureyri ekkert að bjóða. Sem drengur og unglingur kynntist ég þessu skaftfellska fólki, sem var svo nákomið dýrunum, að jafnvel málrómur þess líktist hljóðum þeim, sem dýrin gefa frá sér. En hvernig í ósköpunum átti ég, sem var fullur af rómantískum draumum um prinsa og prinsessur, að geta áttað mig á þessu fólki og séð í gegnum hið hrjúfa yfirborð þess? Sigríður Sigurðardóttir, kona Guðlaugs móðurbróður míns, var gædd svo sterku tilfinningalífi, að hún gerðist barnsræningi af eintómri ást til harns- ins. Eftir að hafa misst í sjóinn þrjá syni, sem hún átti með þremur eigin- mönnum sínum, vaknar hún einn morgun við, að á baugfingri hægri handar hennar er kominn dularfullur hringur, ekki úr málmi, en líkastur því sem hann væri úr einhverjum sjávargróðri. Það er ekkert yfirnáttúrlegt við þetta, ekki frekar en við stigmatiséringu, en hún er ósköp náttúrlegur hlutur, sem engin ástæða er til að undrast yfir. Þegar sterkur hugur einbeitir sér að ein- hverju ákveðnu viðfangsefni, eru engin takmörk fyrir því, sem skeð getur. Það sem einum manni af skaftfellskum ættum, Einari Ragnari Jónssyni, hefur tekizt að skapa og framkvæma, er miklu ótrúlegra en allar undrasögur veraldarinnar. Fyrrnefnd Sigríður var dóttir Salgerðar á Hryggjum, sem Eyjólfur á Hvoli segir, að verið hafi skergála mikil. Móður minni mislikaði stórum, þegar Friðrik Þorsteinsson frá Dyrhólum — í bréfi til Sigurðar bróður míns — minntist á „Salgerðar-hyskið“. Móðir mín gat fundið hið góða í fari þessa fólks, þó að það ekki alltaf lifði eftir ströngum siðferðisreglum. Sem drengur kynntist ég Salgerði gömlu. í rnínum augum var hún forneskjan sjálf. En hún kunni að njóta lífsins. Hún spilaði sólówhist fram í rauðan dauðann. Móðir mín var náskyld Guðríði Sveinsdóttur frá Ásum og bræðrum 148
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.