Tímarit Máls og menningar - 01.09.1973, Page 65
Ásatrá og kristindómar
Þær kröfur, sem ég geri hér til ríkisstj órnarinnar, hver sem hún er, mættu
orðast á þessa leið:
1. Enginn sé löggiltur forstöðumaður neins safnaðar, nema hann hafi há-
skólamenntun, sem svari að fullu til þess guðfræðiprófs, sem krafizt er af
prestum þjóðkirkjunnar.
2. Lögð sé meiri áherzla en verið hefur á trúarbragðafræði í æðri skólum,
bæði kristnar trúarkenningar og almenna samanburðarguðfræði.
3. Kirkjuskipan sé hagað þannig, að hver einasti þegn landsins fái sem auð-
veldasta aðstöðu til að rækja reglulega kristnar guðsþjónustur.
4. Óski nýr flokkur, kristinn eða ókristinn, löggildingar, sé honum gert að
skilyrði að leggja fram skriflega greinargerð fyrir megin-stefnu sinni,
framkvæmd helgisiða, siðferðisboðum og öðru, er máli þykir skipta, enda
hafi ríkisstjórnin til ráðuneytis vel menntaða sérfrœðinga í þeim þáttum
trúarbragðavísinda, er bezt geta upplýst málið.
175