Tímarit Máls og menningar - 01.09.1973, Qupperneq 78
Tímarit Máls og menningar
nauðsyn þess að rétta við greiðsluhallann enn brýnni fyrir bragðið. Oruggt
er að bandamenn þeirra verða beðnir um að taka drjúgan þátt í þeim átökum
sem til þess þarf.
Rœtur hagvaxtar í Evrópu og Japan
Hagvöxtur Evrópumanna og Japana er einkum sprottinn af tveimur rótum.
Önnur þeirra er tvímælalaust auðveldur aðgangur Japana og Evrópumanna
að bandarískum mörkuðum. Keynes hefur fyrir löngu sýnt fram á það að
útflutningur er einn meginþáttur hagvaxtarins, og á sú skýring fyllilega við
um Japan. Utflutningur Japana til Bandaríkjanna jókst um 533% milli 1960
og 1971, en á sama tíma jókst sala Bandaríkjanna í Japan aðeins um 220%.
Hlutur Japana á bandarískum markaði hefur því tvöfaldazt, frá 7,6% upp í
16% 1972.
Hvað Efnahagsbandalag Evrópu snertir er dæmið flóknara. Útflutningur
Evrópumanna til Bandaríkjanna jókst að vísu mjög mikið á tíu árum, um
226%, en hinsvegar var vöruskiptajöfnuðurinn Bandaríkjamönnum mjög í
hag til 1965. Þá fór ástandið að breytast unz það snerist þeim í óhag 1972.
Þannig hafa bandarískir markaðir verið mjög opnir fyrir Evrópumenn og
Japani, þrátt fyrir verndarstefnu á vissum sviðum, og hefur það leitt til meiri
hagvaxtar í Japan en dæmi eru til um. Ýmsar tilhneigingar til tollverndunar-
stefnu hafa skotið upp kollinum í Bandaríkjunum á síðustu árum, og stafa
þær af því að Bandaríkjamenn eru farnir að gera sér nokkra grein fyrir þessu
fyrirbæri og vilja takmarka betur þessi miklu fríðindi, sem falla nú keppi-
nautum þeirra í skaut.
Hin rótin, sem hagvöxtur vesturlanda er sprottinn af, er herverndin, sem
Bandaríkjamenn hafa veitt Evrópumönnum og Japönum, því að hún hefur
gert þeim kleift að taka fjármagn, sem þeir hefðu annars orðið að nota í
hervarnir, og nota það í arðbærar fj árfestingar.
Þessi lönd hafa því notið góðs af ódýrari landvörnum í aldarfjórðung.
Þetta er mikilvægur þáttur í efnahagslífi þeirra, þegar á það er litið að Jap-
anir verja 1% af þjóðartekjum sínum í hervarnir, Evrópumenn milli 2% og
5%, en Bandaríkjamenn 9%. Samkvæmt nýjum skýrslum frá utanríkisráðu-
neyti Bandaríkjanna hafa Bandaríkjamenn varið 1300 milljörðum dollara í
hermál síðan heimstyrjöldinni lauk, Sovétmenn næstum jafnmiklu, eða 1000
milljörðum. Hins vegar hafa Evrópumenn ekki eytt nema 300-350 milljörð-
um dollara í hermál.
Þótt það sé að vísu rétt, að viss hluti herútgjalda hefur örvandi áhrif á
188