Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Page 11

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Page 11
Adrepur ef gagnrýnandi sem væri að skrifa um sýningu ákveðins landslagsmálara eyddi mestu rými í að fjalla um kosti og galla kolateikninga!) Hlutur leikstjórans í leiksýningunni er val á túlkunarleið og aðferð til að fá allt sem hlut á að sýn- ingunni til að hjálpast að við að skila henni. Leikara, leikmynd, leikmynda- gerðarmenn, ljósatæknimenn o. s. frv. Hvernig er túlkun leikara samkvæmt val- inni túlkunarleið? Hvað gerir hann í persónusköpun núna? Hvernig var hann í síðasta verkefni? Er um þróun að ræða eða stöðnun? Vinsæl lýsing á leikmynd er: „í anda verksins". Hvernig er hún í anda verks- ins, er hún raunsæ, táknræn, hvernig er litanotkun? Hver er andi verksins? Áttum við að finna hann í lýsingu gagnrýnandans á efni leikritsins? Leiksýning er ekkert smá fyrirtæki. Við Þjóðleikhúsið starfa að jafnaði mörg hundruð starfsmenn og meðal kostnaður við hverja uppsetningu skiptir mill- jónum. Það er lítilsvirðing við þetta fólk að fjalla af vanþekkingu um störf þess. Nýliða er spreyta sig í fyrsta sinn er oft ekki einu sinni getið frekar en þeir hefðu ekki birst á sviðinu og mikillar tilhneigingar gætir hjá gagnrýnendum til að fjalla lítið um minni hlutverk, seinna aðeins aðalleikurunum. í leikhúsinu er slík afstaða löngu fyrir bí. Umsagnir um leiksýningar nemendaleikhúss. Nemendur sem stundað hafa nám í leiklistarskóla allan daginn á fjórða ár fá engar umsagnir sem einstakl- ingar í fyrsta sinn er þeir mæta áhorfendum og gagnrýnendum. En um hvað fjaliar gagnrýnin þá fyrst hún svarar ekki fyrrnefndum spurn- ingum? Jú, þar er rakinn efnisþráður leikritsins, sem er þó bara hráefni sem höfundurinn hefur tekið og mótað í ákveðið form, og inn í þessa lýsingu á efninu blandast persónuleg afstaða gagnrýnandans til efnisins, hvort hann er með eða á móti skólakerfinu, hvernig kennslukonur eiga að líta út, hvaða af- stöðu hann hefur til útivinnandi kvenna eða húsmóðurstarfsins, afstaða hans til róttækrar listar yfirleitt o. s. frv. og vangaveltur út frá efninu og eru því þá lítil takmörk sett hvert hann kemst. Óneitanlega minnir þetta á myndlistar- gagnrýnanda er verði mestum hluta umsagnar sinnar í bollaleggingar um léreftið og afstöðu sína til hinna ýmsu gerða þess og efnasamsetningu lita. Það eitt að þenja endursögn á efnisþræði og persónulegar vangaveltur út frá efninu yfir 40—80% umsagnarinnar vekur grun um að gagnrýnandinn vilji skýla sér og komast hjá því að fjalla um sjálfa sýninguna. Flestir geta rakið söguþráð, einkum ef engin krafa er gerð um samþjöppun efnis. Þessi þáttur rýninnar minnir helst á þá áráttu sjónvarpsins að mata áhorfendur fyrirfram á efni kvikmynda. Persónulega afstöðu dómarans til efnisins er ástæðulaust að breiða yfir marga dálksentimetra, eftir nokkurra mánaða að ekki sé nú talað um nokkurra ára lestur á rýni einstakra manna, kemur fátt í persónulegri af- stöðu þeirra á óvart. 121
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.