Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Page 12
Tímarit Máls og menningar
Umræður miili gagnrýnenda og leikhúsmanna hafa verið litlar og ekki er
ósennilegt að gagnkvæmir fordómar hafi litað þá umræðu. Mörgum áhorfend-
um finnst sem mikillar leikhúsþreytu gæti hjá gagnrýnendum. Lesendur leik-
húsgagnrýninnar eiga kröfu á að gagnrýnandinn gangi til hverrar leiksýningar
heilshugar og með ferska sýn, rétt eins og leikarinn sem þarf í hvert skipti
sem hann tekst á við nýtt hlutverk að afklæðast því gamla en nýta um leið
alla fengna reynslu. Þá fyrst gæfist gagnrýnandanum tækifæri til að skynja eitt-
hvað sem er nýtt og öðruvísi og meta það á hlutlægan hátt. Þannig yrði hann
fær um að skynja spírur nýrra vaxtarbrodda þegar þær skjóta upp kollinum.
Með slíkri athugun og næmi myndu þeir með uppörvandi og/eða gagnrýnandi
skrifum sínum í þágu íslenskrar leiklistar stuðla að þróun hennar. Þannig yrðu
gagnrýnendur loks virkir þátttakendur í þróun leiklistarinnar í landinu.
Helga Hjörvar.
Hvað nú?
í síðasta ádrepupistli var dregin upp mynd þeirra afleiðinga sem pólitísk stríðs-
yfirlýsing ríkisstjórnarinnar á hendur verkalýðshreyfingunni kynni að hafa í
för með sér. Þótt uppgjöf ríkisstjórnarinnar hafi enn ekki verið undirrituð
þá er það ljóst að undanhald hennar er hafið og flótti brostinn í liðið. í fyrr-
nefndum pistli var velt vöngum yfir því hver yrði hinn pólitíski eftirleikur
sigursins í stéttaátökunum. Fáa mun hafa rennt í grun að sá eftirleikur yrði
jafn kynngimagnaður og svo ótvíræður sem úrslit byggðakosninganna bera
vitni um.
Sagt hefur verið að byggðakosningarnar 28. maí s.l. eigi aðeins tvær hlið-
stæður á þessari öld, slíkt sé pólitískt umfang þeirra. Þar ber að sjálfsögðu hæst
fall borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokksins í höfuðstað landsins, þótt
fylgishrun borgaraflokkanna um land allt hafi verið tilfinnanlegt.
Við blasir sú staðreynd að vinstri flokkunum svokölluðu hefur verið falið
að stjórna Reykjavíkurborg næsta kjörtímabil. Það er sá pólitíski eftirleikur
sem ef til vill skiptir mestu máli.
Sú spurning er áleitin, hvað vinstri flokkarnir ætli að gera við sinn meiri-
hluta — annað en bara að stjórna borginni vel, sem er þeirra megin og aðal
skylda. Með lýsingarorðinu vel er átt við að fjármunum almennings í vörslu
borgarinnar verði ekki bruðlað eða sólundað í einhver hreysti-minnismerki og
flottræfilshátt, heldur aðeins í þágu íbúanna og að vel yfirlögðu ráði. í annan
stað þýðir vel að hæfni megi ætíð verða leiðarljós í sambandi við skipanir í
Framhald á hls. 223.
122