Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Síða 27

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Síða 27
Með barnsins trygga hjarta ... Þótt Jóhannesi fyndist sem stríðsgróðinn hefði um sinn kippt brott for- sendum félagslegs baráttukveðskapar urðu ekki straumhvörf á ferli hans að því leyti að hann teldi ekki félagsleg og pólitísk viðfangsefni og vanda- mál eftir sem áður viðfangsefni skálda í sköpun bókmennta. Hann segir enda í áður nefndu viðtali við Einar Braga: Fyrst af öllu mundi ég segja við ungu skáldin á Islandi núna: þið eigið að skapa nýja sveiflu í menningarlíf þjóðarinnar, þið eigið að húðfletta spill- inguna, þið eigið að húðstrýkja þjóðina fyrir hermang hennar og stríðsgróða- brask, værugirni hennar og sljóleika, þið eigið að gegnumlýsa þetta svindl- araþjóðfélag sem við búum nú við: efnahagskerfið, skólakerfið, verkalýðs- hreyfinguna, íþróttirnar, skemmtanalífið — allt sem heiti hefur. Hvað eruð þið að gráta yfir andlegri kúgun austantjalds og nenna svo ekki að rífa kjaft í öllu ritfrelsinu hér vestra? Þið um það hvar og hvernig þið yrkið ljóð eða skrifið sögu, en látið ykkur ekki detta í hug að aðgreina listina frá lífinu, frá fólkinu, frá tímanum — já, frá stjórnmálunum og heimsmálunum eins og þau leggja sig. Oil okkar lífsfyrirbæri eru meira og minna háð pólitískri valdbeitingu og það er frumskylda listamanna, vísindamanna og annarra menntamanna að vaka yfir því að stjórnmálamennirnir geri ekki ríkisvaldið að félagslegu viðundri og miskunnarlausri gaddasvipu. Þær tvær Ijóðabækur Jóhannesar, sem komu út fyrst eftir heimsstyrjöld- ina síðari, eru og skýlaus vitnisburður um það hvernig þessi ættjarðarvinur og sósíalisti brást við tveimur pólitískum, sögulegum atburðum þótt með ólíkum hætti væri. Islendingar gengu í Atlantshafsbandalagið 1949 og 1951 settist banda- rískt herlið að á Keflavíkurflugvelli, skv. samningi við ríkisstjórn Islands. Arið 1952 gaf Jóhannes út Sóleyjarkvœði þar sem hann undir tónfalli þjóðvísu og þulu og með tilvísunum til ævintýra og þjóðarsögu lætur svipu ljóðsins húðstrýkja þau pólitísk öfl á Islandi, er hann taldi hafa svikið líf þjóðar sinnar. Þrátt fyrir heilaga reiði þessa kvæðis og myrkt sögusvið þess lýkur því þó í ögrandi spurn og von: Hermdu mér Þjóðunn Þjóðansdóttir, vísust af völum: ætlarðu að lifa alla tíð ambátt í feigðarsölum á blóðkrónum einum og betlidölum? 137
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.